FLE blaðið - 01.01.2013, Page 4

FLE blaðið - 01.01.2013, Page 4
Af stjórnarborði Sigurður Páll Hauksson er formaður FLE Strax í upphafi starfsársins 2011/12 ákvaö nýkjörin stjórn að leggja áherslu á nokkur atriöi auk hefðbundinna verkefna. Helstu áhersluatriði á liðnu starfsári, voru: • Aukin áhersla á samskipti, formleg og óformleg, við opin- bera aðila sem vinna að eða tengjast málefnum endur- skoðenda. • Aukið samstarf við háskólana m.a. á sviði menntunar endurskoðenda. • Breyting á fyrirkomulagi gæðaeftirlits. • Kynning á starfi FLE og málefnum endurskoðenda út á við. • Sinna málefnum nema sem á síðasta aðalfundi fengu sérstaka aðild að FLE. • Bæta rekstur félagsins sjálfs og styrkja fjárhagsstöðu þess. Að mínu viti hefur okkur orðið nokkuð ágengt þó svo að flest þessara verkefna séu þess eðlis að þeim Ijúki aldrei. Engin breyting varð á stjórn félagsins á aðalfundi félagsins 2. nóvember s.l., en í framhaldi af honum hélt stjórnin ásamt for- mönnum nefnda félagsins skipulags og verkefnafund. Á þeim fundi var ýmsum hugmyndum velt upp um möguleg verkefni og áherslur félagsins til framtíðar. Stjórn félagsins mun halda áfram að leggja áherslu á þau atriði sem lagt var upp með á fyrra starfsári, en jafnframt vinna úr og taka mið af þeim frjóu og gagnlegu hugmyndum sem komu fram á skipulags og verk- efnafundinum. Reglubundin samskipti við opinbera aðila eins og ráðuneyti, RSK, FME, Ríkisendurskoðun og háskólana eru mikilvægur liður í starfi FLE. Þessi tengsl má þróa enn frekar, m.a. eins og farið var yfir á síðasta morgunverðarfundi í október þar sem kynnt var hugmynd að samskiptareglum endurskoðenda og FME. Samskipti sem þessi hafa og munu verða félagsskap okkar til hagsbóta. Aukin áhugi á atburðum félagsins í fjölmiðlum sýnir að FLE og endurskoðendur taka virkan þátt f þeim málefnum sem brenna heitast á stéttinni hverju sinni. Tengsl okkar við Norræna endur- skoðendasambandið (NRF) og Evrópusamtök endurskoðenda (FEE) hafa komið að góðum notum í þessu samhengi. Eins og lög kveða á um þá ber Endurskoðendaráð ábyrgð á skipulagi gæðaeftirlitsins, en FLE kemur einungis að fram- kvæmdinni eftir forskrift Endurskoðendaráðs. Eðli málsins samkvæmt er óraunhæft að ætla að slíkt eftirlit virki svo allir séu sáttir frá fyrsta degi. Frá stjórnarfundi FLE: Auður Ósk Þórisdóttir, Arna G. Tryggvadóttir, Sigurður Páll Hauksson, Sturla Jónsson, Friðbjörn Björnsson og Sigurður B. Arnþórsson 2 • FLE blaðið janúar 2013

x

FLE blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.