FLE blaðið - 01.01.2013, Blaðsíða 23

FLE blaðið - 01.01.2013, Blaðsíða 23
Félagsmenn erlendis Sigurjón Geirsson í Ósló Ég, Sigurjón Geirsson, fluttisttil Óslóásamtfjölskyldunni sumarið 2010. Ástæða þess að við fluttum er að eiginkona mín, Harpa Stefánsdóttir arkitekt, er að vinna að doktorsverkefni í skipulags- fræðum við norskan háskóla. Sjálfur er ég að vinna á ráðgjafasviði Ernst & Young í Osló. Ég og konan hðfum áður búið í Noregi, á árunum 1988-1993. Þetta voru fyrstu fimm árin eftirað ég lauk háskólanámi, en þá var konan mín í námi við Arkitektaháskólann í Ósló. Þá starfaði ég hjá PWC a.s. Ég var þá að vinna við ytri endurskoðun einkum endur- skoðun alþjóðlegra fyrirtækja, s.s. Nike, Reuters, og Ericsson, auk banka og fjármálafyrirtækja. Á þessum tíma var bankakreppa í Noregi. Ég sérhæfði mig í endurskoðun banka og fjármála- fyrirtækja, með áherslu á m.a. mat á útlánum og yfirtökueignum bankanna. Jafnt nú sem og þá hefur aðalviðfangsefni mitt innan endurskoðunar og ráðgjafar í Noregi verið fjármálafyrirtæki og stærri alþjóðleg fyrirtæki. Norðmenn lærðu mikið af bankakreppunni. Þeir leggja mikla áherslu á aga, nákvæmni og gott skipulag í stjórnsýslu og rekstri fyrirtækja, ekki síst þegar kemur að rekstri fjármálafyrirtækja. Því standa þeir mjög framarlega þegar kemur að áhættustýringu og innra eftirliti hjá bönkum og fjármálafyrirtækjum. Þar hafa Norð- menn tileinkað sér vandvirkni ásamt öguðum en um leið skilvirk- um vinnubrögðum. Ég tel að íslendingar geti lært mikið af Norð- mönnum á þessum sviðum. Það er ýmislegt við vinnustaði í Noregi sem er öðruvísi en hér á landi. Norðmenn leggja mikla áherslu á að vinna markvisst og nákvæmt, svo mikið verði úr verki. Frítíminn er svo verðlagður hátt sem gerir það að það að verkum að lítill tími gefst oft til að kynnast samstarfsfélögum. Menn eru duglegir að einbeita sér og vinna skipulega og gera sömu kröfur til sinna samstarfsfélaga. Á íslandi gerir fólk hluti gjarnan meira eftir sínu eigin höfði. Hér verður vinnudagurinn því oft á tíðum lengri, án þess að það skili sér þó endilega í samsvarandi vinnuafköstum. Um þessar mundir eru ég og fjölskylda mín að flytja heim aftur og hef ég tekið við stöðu yfirmanns ráðgjafasviðs Ernst and Young á íslandi. Ég mun hins vegar halda stöðu minni í fjármálateymi Ernst & Young á Norðurlöndunum, Ernst & Young Norden, og sinna áfram verkefnum úti samhliða störfum mínum hér á landi. I Læknir kemur inn til sjúklings sem bíður eftir nýju hjarta. „Ég er með góðar fréttir" segir læknirinn „þetta er afar óvenjulegt, en við getum valið milli tveggja líffæragjafa". „Við hvað störfuðu þeir" spyr sjúklingurinn. „Annar var kennari, en hinn var endurskoðandi" segir læknirinn. „Ég vel hjarta endurskoðandans" segir sjúklingurinn „Þá er ég öruggur um að það sé lítið notað". Læknir kemur til sjúklings og segir „Ég er með slæmar fréttir, þú átt einugis 6 mánuði ólifaða". „Ó nei, hvað get ég gert" spyr sjúklingurinn. „Ég mæli með að þú finnir þér endurskoðanda og giftist honum" segir læknirinn. „Mun ég lifa lengur ef ég geri það" spyr sjúklingurinn. „Nei" segir læknirinn „ en þér mun alveg örugglega líða eins og þú hafir gert það" FLE blaðið janúar 2013 • 21

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.