FLE blaðið - 01.01.2013, Blaðsíða 24
Gæðaeftirlit, verklag, mat og samræming
Valgerður Kristjánsdóttir er formaður gæðanefndar FLE
í grein þessari leitast gæðanefnd við að veita félagsmönnum FLE
innsýn í framkvæmd gæðaeftirlits sem sinnt er á vegum FLE,
hvers sá sem sætir eftirliti megi vænta og hver taki ákvörðun um
endanlega niðurstöðu. í samræmi við lög um endurskoðendur
sem tóku gildi þann 1. janúar 2009 er það hlutverk FLE að annast
gæðaeftirlit í samráði við endurskoðendaráð, sbr. 4. tl. 13. gr. og
laga nr. 79/2008 um endurskoðendur.
Markmið gæðaeftirlits með störfum endurskoðenda er að tryggja
að endurskoðendur og endurskoðunarfyrirtæki ræki störf sín í
samræmi við ákvæði laga nr. 79/2008 um endurskoðendur, siða-
reglur Félags löggiltra endurskoðenda og aðrar reglur sem taka til
starfa endurskoðenda þ.m.t. alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Þá
beinist gæðaeftirlitið ennfremur að því að kanna hvort endurskoð-
unarfyrirtæki hafi uppfyllt ákvæði um gæðastjórnunarkerfi sam-
kvæmt alþjóðlega gæðastaðlinum ISQC 1 (International Standard
on Quality Control 1).
Gæðaeftirlitinu er stýrt af endurskoðendaráði, sbr. 3. tl. 2. mgr.
15. gr. laga nr. 79/2008 um endurskoðendur. Þar kemur fram
að endurskoðunarráð skuli fylgjast sérstaklega með að reglulegt
gæðaeftirlit með störfum endurskoðenda og endurskoðunarfyrir-
tækja fari fram. Hlutverk gæðanefndar er að annast framkvæmd
gæðaeftirlitsins í umboði endurskoðendaráðs.
Allir félagsmenn FLE hafa kost á því að gerast gæðaeftirlitsmenn,
en FLE auglýsir árlega eftir aðilum sem hafa áhuga á að sinna
þessu verkefni. Fyrir gæðaeftirlit 2012 eru 17 löggiltir endurskoð-
endur gæðaeftirlitsmenn og áætlað er að 38 aðilar sæti eftirliti.
Aðkoma gæðanefndar FLE hefst að hausti hvers árs og fyrsta
verk nefndarinnar er að hitta eftirlitsmenn á námskeiði sem hald-
ið er á vegum nefndarinnar til undirbúnings fyrir gæðaeftirlitið.
Endurskoðendaráð ákveður hverjir skuli sæta gæðaeftirliti hverju
sinni og sendir boðunarbréf til viðkomandi aðila þar sem þeim er
tilkynnt um fyrirhugað eftirlit. Framkvæmdastjóri FLE sendir þeim
sem sæta gæðaeftirliti bréf um sameiginlegan skilning á fram-
kvæmd gæðaeftirlitsins. Þegar undirritað bréf um sameiginlegan
skilning liggur fyrir geta gæðaeftirlitsmenn framkvæmt sjálft eftir-
litið með heimsókn til þeirra sem sæta eftirliti.
Grundvöllur framkvæmdar gæðaeftirlitsins eru fjórir gátlistar sem
birtir eru með reglum um framkvæmd gæðaeftirlits (771/2012).
Gátlisti 1 varðar ákvæði laga og reglna, gátlisti 2 varðar endur-
skoðunarfyrirtækið og innra gæðakerfi þess, gátlisti 3 varðar
yfirferð einstakra endurskoðunarverkefna og gátlisti 4 varðar
einingar tengdar almannahagsmunum. Gæðaeftirlitsmenn meta
hvaða gátlistar eru viðeigandi hverju sinni. Reglurnar ásamt gát-
listum má finna á vef Atvinnuvegaráðuneytisins sem og innri síðu
FLE. Gæðaeftirlitsmenn framkvæma gæðaeftirlitið með yfirferð á
þeim spurningum sem fram koma í gátlistunum og yfirferð á við-
eigandi gögnum hjá endurskoðandanum. Eftirlitsmenn fylla síðan
út gátlistana á grundvelli þeirrar yfirferðar.
Þegar gæðaeftirlitsmenn hafa lokið heimsókn sinni og fyllt út við-
eigandi gátlista útbúa þeir eftirlitsskýrslu þar sem fram kemur
niðurstaða þeirra. í eftirlitsskýrslunni kemur fram hvort um alvar-
legar athugasemdir var að ræða og fjöldi þeirra ef við á, sama á
við um ábendingar. Eftirlitsmenn taka ekki afstöðu eftir skoðun
sína, heldur er það endurskoðendaráð sem metur niðurstöður
gæðaeftirlitsins og tekur afstöðu til frekari meðferðar á grundvelli
ákvæða laga um endurskoðendur.
Eftirlitsskýrslan er send gæðanefnd til yfirferðar áður en hún er
birt aðilum sem sæta gæðaeftirliti. Þetta vinnulag var framkvæmt í
fyrsta sinn í gæðaeftirliti 2011, en gæðanefnd hefur m.a. það hlut-
verk að samræma eftirlitsskýrslur. Gæðanefnd les yfir allar eftirlit-
skýrslur og gátlista og metur hvort samræmi sé í mati gæðaeftir-
litsmanna á alvarlegum athugasemdum og ábendingum. Þetta er
gert til að tryggja að sambærileg athugasemd sé ekki skilgreind
sem alvarleg athugasemd á einum stað en ábending a öðrum.
Við yfirferð gæðanefndar á einstökum eftirlitsskýrslum er nafn-
leyndar gætt. Gæðanefnd framkvæmir alla sína yfirferð á númer-
um en aðeins framkvæmdastjóri FLE, endurskoðendaráð og við-
komandi gæðaeftirlitsmenn vita hverjir sæta eftirliti hverju sinni.
Gæðaeftirlitsmenn eru bundnir þagnarskyldu um allar upplýsingar
sem þeir fá vitneskju um í störfum sínum, sem og gæðanefnd og
framkvæmdastjóri FLE. Allir þessir aðilar undirrita sérstaka yfirlýs-
ingu um óhæði og þagnarskyldu áður en gæðaeftirlitið sjálft hefst.
Þegar gæðanefnd hefur lokið yfirferð á eftirlitsskýrslum senda
gæðaeftirlitsmenn þeim sem sætir gæðaeftirliti eftirlitskýrsluna.
í samræmi við reglur um framkvæmd gæðaeftirlits með störfum
endurskoðenda nr. 771/2012 fá aðilar tíu daga andmælarétt frá
þeim degi sem þeir hafa móttekið skýrsluna. Hafi ekki borist svar
innan þess tíma verður litið svo á að andmælarétturinn verði ekki
nýttur og ofangreindri skýrslu því skilað til endurskoðendaráðs án
andmæla eða athugasemda.
Endanleg niðurstaða gæðaeftirlitsins er í höndum endurskoð-
endaráðs en Félag löggiltra endurskoðenda kemur ekki að þeim
hluta gæðaeftirlitsins. Endurskoðendaráð byggir niðurstöður
sínar á eftirlitskýrslum gæðaeftirlitsmanna og tekur afstöðu til
frekari meðferðar á grundvelli ákvæða laga um endurskoðendur.
Mikilvægt er að hafa í huga að markmið gæðaeftirlitsins er að
tryggja að endurskoðendur og endurskoðunarfyrirtæki ræki störf
sín í samræmi við ákvæði laga og reglna sem gilda um endur-
skoðendur. Gæðaeftirlit getur einnig verið vettvangur til að miðla
þekkingu og auka víðsýni starfandi endurskoðenda, bæði þeirra
sem sæta eftirliti sem og þeirra sem annast framkvæmd þess.
Valgerður Kristjánsdóttir
22 • FLE blaðiðjanúar2013