FLE blaðið - 01.01.2013, Qupperneq 16

FLE blaðið - 01.01.2013, Qupperneq 16
Hinn dæmigerði endurskoðandi! Sigríður Soffía Sigurðardóttir er löggiltur endurskoðandi hjá KPMG ehf. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi er máltæki sem átti svo sann- arlega við þegar ákveðið var að senda út stutta könnun á alla löggilta endurskoðendur og finna út hinn dæmigerða endur- skoðanda. Hugmyndin vaknaði á aðalfundi FKE (Félag kvenna í endurskoðun) sem haldinn var nýverið og voru þar teknar strax saman ýmsar tölulegar upplýsingar. Áhugi minn á örvhentum endurskoðendum hefur verið sérlega mikill síðan ég byrjaði að vinna hjá KPMG þar sem ótrúlega margir yfirmenn þar eru örvhentir! Því greip ég tækifærið og spurði hve margar á aðal- fundinum væru örvhentar, og þóttist ég viss um að svarið væri mikið meira en 10%, sem er normið. Varð ég fyrir gífurlegum vonbrigðum þar sem ég hélt að ég væri búin að finna týnda genið í hinum dæmigerða endurskoðanda, (the typical revis- ÖÖR) en svo var ekki. Því var ákveðið að stækka úrtakið og skoða alla endurskoðendur á íslandi og senda spurningakönnun varðandi hinn dæmigerða endurskoðanda. Til að ná utan um hinn dæmigerða endurskoðanda, þá var best að setja fram nokkrar spurningar. Þegar könnunin var gerð voru um 370 endurskoðendur skráðir hjá FLE. 208 endurskoð- endur svöruðu eða 56%. Fyrst var ákveðið að kanna hvernig vinnustatus svarenda væri og mikill meirihluti eða 42% var að vinna á stofu sem svarandi var eignaraðili að. Ég ákvað að meta það þannig að eigendur eru miklir vinnuþjarkar sem taka tölvu- póstum alvarlega og svara samviskusamlega öllum könnunum. Síðan kom að draumaspurningunni um örvhenta endurskoð- andann, eins og áður sagði. En svörin voru ekki á þann veg sem ég hafði vonað... 10% svarenda voru örvhentir.. ( þar af einn sem neitar því að hann sé örvhentur og skrifar með hægri (svikari)) og 90 % er rétthentir. Þar sem margir trúa á stjörnumerkin þá þótti best að kanna það líka; langflestir endurskoðendur eru Vatnsberar og Meyjur, eða 22 endurskoðendur samtals í báðum merkjum. Þar sem undir- rituð er Meyja og þekkir engan galla á Meyjunni þá fann ég til lýsinguna á Vatnsberanum og þá er spurning hvort hann eigi við um dæmigerða endurskoðandann: „Hinn dæmigerði Vatnsberi er yfirleitt rólegur, vingjarnlegur og þægilegur f framkomu. Hann er yfirvegaður og viðræðu- góður en hleypir fólki samt sem áður ekki of nálægt sér. Hann er oft á tíðum heldur dularfullur eða a.m.k. fjarlægur. Að minnsta kosti finnst öðrum oft erfitt að átta sig á honum. Ein ástæða fyrir þessu er sú að hann er frekar ópersónu- legur og lítið fyrir að ræða um sjálfan sig og bera tilfinningar sínar á torg." Við þurfum síðan að passa okkur á að Lasersjón sjái ekki þessa könnun, en 58,7% endurskoðanda notar gleraugu meðan ein- ungis 17,8% hafa farið í laseraðgerð. Greinilega stór markaður hjá endurskoðendum, sem vert er að skoða I Áhugamál dæmigerða endurskoðandans komu engan veginn á óvart en 32,6% eru golfarar í húð og hár, en þegar ákveðið var að skoða hvað endurskoðandinn skrifaði í valmöguleikann "annað" þá komu upp allskonar íþróttir, söngur, fjölskyldan og einn safnar frímerkjum og annar er mikið fyrir hvítvínsgleði. Farartæki dæmigerða endurskoðandans kom heldur ekki á óvart, en 55,6% aka um á landbúnaðarverkfærinu jeppa. Einn er meira segja á þríhjóli! Endurskoðendur eru engan veginn nógu duglegir að leggja sitt til umhverfismála en 38,8% flokkar ekki ruslið sitt, á meðan 27,8% flokkar allt ruslið sitt. Svarið við spurningunni um hvað svarandi starfaði við, væri hann ekki endurskoðandi, dreifðist á ótrúlegan hátt; 40 endur- skoðendur væru örugglega í iðngreinum, en 97 ákváðu að svara "annað", og þar komu ýmis starfsheiti. Síðan komu almennari svör, en flestir myndu vilja vera lögfræðingar, því næst verk- fræðingar eða fjármálastjórar og svo leyndust Ijónatemjari og jöklafræðingur á milli. Til þess að við gætum endað spurningalistann eins og sannur Capacent spyrjandi, var ákveðið að kanna hvers kyns svarandi væri, en 66,8% voru karlarog 33,2% konur. Einn neitaði alfarið að gefa upp kyn sitt. Síðasta spurningin sem var um hæfi bíl- stjórans, leiðir í Ijós að langflestir endurskoðendur virðast ekki gera neitt annað en að bakka í stæði, sem má ráða af því að 76,6% telja sig vera góða í að bakka, á meðan 18,7% bakka ekki í bílastæði, og 4,8% telja sig ekki klára í að bakka og hafa bakkað á. Samandregin niðurstaða er þessi: Dæmigerði endurskoðandinn er karlkyns rétthentur eigandi á stofu, notar gleraugu, er í Vatnsbera- eða Meyjamerkinu, blússar um á jeppa, spilar golf og dreymir um að vera iðnaðarmaður eða lögfræðingur, kýs að flokka ekki ruslið sitt og bakkar listilega vel í bílastæði. Sigríður Soffía Sigurðardólttir 14 • FLE blaðið janúar 2013

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.