FLE blaðið - 01.01.2013, Blaðsíða 20

FLE blaðið - 01.01.2013, Blaðsíða 20
Björn afastrákur fagnar nýju ári inni hjá einu viðskiptafyrirtæki firmans, reyndar í óskyldum iðnaði, stóru fólksflutningafyrirtæki. Fyrst við innri endurskoð- un og síðar við fjármáladeildina. Nú sat ég hinum megin við borðið svo að segja, kominn inn í pólitík „Corporate Ameríka". Nú þurfti að taka ákvarðanir fremur en að gefa ráðleggingar og fyrirtækjamenningin gjörólík. Störfin voru þó að öllu jöfnu skemmtileg, ferðalög víða um land, allt á milli Vancouver, British Columbia til Windsor, Ontario. Þannig hlóðust vildar- punktarnir upp frá flugfélögum og hótelum. Það var mikið um ráðstafanir vegna endurskipulagningar og rekstrarhagræðingar innan fyrirtækisins á þessum árum, ráðningar og uppsagnir árs- fjórðungslega, „hire-fire". Aftur veruleg yfirvinna um skeið. Datt mér þá í hug gamli málshátturinn að ekki er grasið alltaf grænna hinum megin. Einhvern veginn, í gegnum árin, gátum við innan fjárhagsdeildarinnar hrist þessar endurskipulagningar af okkur þangað til að stórt breskt fyrirtæki tók yfir reksturinn og flutti stóran hluta af rekstrardeildunum og alla fjármálastarf- semi til stöðva sinna í Bandaríkjunum. Nú var fyrirtækið orðið „Petty Cash" á efnahagsreikningi yfirtökufyrirtækisins. Eftir þetta var ég ekki í fullu starfi (u.þ.b. tvö ár, tók lífinu rólega, en fékkst við smáverkefni og skattskil þar til mér barst óvænt tilboð að starfa við fjármáladeild einkafyrirtækis, sem framleiðir nýþróaðar olíudælur og hefur starfsemi í flestum heimsálfum. Svo ég er strangt til tekið enn við fagið, þótt hinum megin við borðið sé. En sólin sígur hægt til vesturs hvað störfin snertir, tekur kannski eitt til tvö ár. Hvað viðkemur íslensku vinnuumhverfi nú og núverandi vinnu- umhverfi hér, get ég ekki farið mörgum orðum um, vegna langrar fjarveru. Við félagsmenn FLE fáum af og til bréf frá Sigurði og Hrafnhildi, sem hefur gefið mér nasasjón af hvað hefur skeð heima fyrir. FLE hefur komið langan veg á 75 árum, og félagið og nefndir þess hafa gert mjög vel í sambandi við áframhaldandi betrumbætur. Við samanburð hér og þá heima fyrir tel ég að vinnuumhverfið hafi verið í grundvallaratriðum álíka. Menntunarkröfur til endurskoðendanáms á íslandi hafa síðan aukist verulega og einnig er námsefnið nú ítarlegra og fjölbreyttara. Þegar ég hlaut löggildinguna á íslandi var ekki komin formleg handbók um reiknings- og endurskoðunarstaðla, e.t.v. nokkrar verklagsreglur. Þá var stuðst við almennar venjur í þessum málum eins og að nemendur lærðu hjá sínum meist- urum. En í sumum tilfellum, einkum meðal stærri stofanna, var þó farið að styðjast við Alþjóðastaðalinn og jafnvel við þann bandaríska. Þá voru til dæmis ekki kennd samstæðureiknings- skil við námið og skattfrestun (deferred income taxes) ekki færð í reikningsskilum. Fyrirtæki heima fyrir notuðu þó jafnan sömu afskriftarreglur í bókum sínum eins og leyfð voru í skatta- lögum og var því þessi staðall nær óþarfur. Þessar nýju aðferðir fyrir mig, komu með kalda vatninu hér. í endurskoðunarferlinu hér var mun meiri tíma varið í mat á endurskoðunarhæfi, yfirferð á kerfislýsingum og flæðiritum, mat á áhættu og prófun á innra eftirliti með ýmsum úrtaksað- ferðum. Aðferðafræði endurskoðunarinnar hefur þó breyst að nokkru leyti hér, endurskoðendur kanna og meta nú í ríkara mæli hvað stjórnendur gera yfir árið til að viðhalda góðu innra eftirliti, meta verk innri endurskoðenda og þar sem við á endur- skoða skýrslur og staðfestingar samkvæmt kröfum Sarbeynes Oxley (hér kallað SOX). Einnig eru endurskoðunarnefndir jafnan skipaðar innan almenningshlutafélaga. Það hefur margt gerst um dagana hér og reynt hefur verið að stikla á stóru í þessari grein. Þegar ég lít til baka segi ég með sanni að endurskoðunarstarfið hefur verið ánægjulegt og reynsluríkt. Ungu fólki, sem stendur á vegamótum hvað taka eigi fyrir í háskólanáminu, bendi ég á að endurskoðunarnámið er verðugt íhugunar. Lífið hefur verið gott hér og veðurfar ekki alltaf eins slæmt og ég nefndi í upphafi. Við fáum hér af og til hnúkaþey, sem kemur frá Kyrrahafinu yfir Klettafjöllin. Þá getur orðið ansi mikill munur á hitastigi frá degi til dags. Til gamans má geta, þegar við kvörtuðum yfir kuldanum við komuna hér brosti fólk og sagði „hvað eruð þið að kvarta, frá íslandi, við héldum að þið væruð hér í sumarfríi". Það er alltaf sterk taug sem tengist heimlandinu. Ferðir yfir Atlantshafið hafa verið með nokkuð jöfnu millibili gegnum árin til að heimsækja ættingja og vini og að sjálfsögðu til að sjá Esjuna í vetrarbúningi eða undir sólroðnum skýjum. Einnig var ég þess aðnjótandi að koma í kaffi á 75 ára afmælishátíðinni og sitja með gömlum vinnufélögum. Á milli ferðanna verður mér oft hugsað til Klettafjallaskáldsins og kvæði hans „Þótt þú lang- förull legðir...." Eins og vitað er, þá settist Stephan G. á sínum tíma að í Markerville, sem er stutt fyrir norðan Calgary. Með framlagi íslendingafélaganna ( N-Ameríku og Albertastjórnar var hús hans og bú gert að sögusafni. Ég vil nota tækifærið til að óska öllum innan FLE og fjölskyldum þeirra gleðilegs nýs árs og áframhaldandi velgengni á komandi árum. 18 • FLE btaðið janúar2013

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.