FLE blaðið - 01.01.2013, Blaðsíða 22

FLE blaðið - 01.01.2013, Blaðsíða 22
Félagsmenn erlendis Birgir Finnbogason í Skopje Árin 2008 og 2009 voru að ýmsu leiti róstursöm fyrir mig og mér fannst kom- inn tími til að láta gamla hugmynd rætast og þreifa fyrir mér með starf erlendis. Ég hafði engan sérstakan áfangastað í huga og leitaði því hófanna í flestum heimsálfum, þó minnst í norður Evrópu. Auglýsing frá ÖSE/ OSCE (Organization for Security and Co-operation in Europe) á starfi yfirmanns stjórnsýslu og fjármála (Head Administration and Finance) á starfsstöð stofnunarinnar í Skopje vakti athygli mína og ég ákvað að sækja um. Það var síðan á viðburðarík- um afmælisdegi mínum haustið 2009 sem ég var boðaður í símaviðtal og í framhaldi af því i þriggja daga ferð til Skopje til klukkustundar starfsviðtals. Mér var boðið starfið, ef til vill hafði ég útlitið með mér, þó svo óheppilega hafi viljað til að farangurinn kom ekki samtímis mér og ég varð því að klæða mig upp í krumpuð ferðafötin. Ég vissi ósköp lítið um Makedóníu en ákvað að slá til og hella mér út I óvissuna. Makedónía eins og landið er almennt kallað fær þó ekki að nota það heiti opinberlega í alþjóðasamskiptum því sögulega séð er hin forna Makedónía hluti af fjórum löndum, Makedoníu (fYROM - former Yugoslav Republic of Macedonia), Grikklandi, Búlgaríu og Albaníu. Nágrannarnir í suðri, Hellenska lýðveldið (Grikkland), er ekki tilbúið að leyfa fyrrum Júgóslavneska lýð- veldinu Makedóníu að nota það heiti yfir landið og kemur m.a. í veg fyrir aðild Makedóníu að NATO og Evrópusambandinu á meðan nafnamálið svokallaða er óleyst. Þó þetta nafnamál hafi verið um langan tíma eitt stærsta milliríkjadeilumálið er það ekki ástæða þess að ÖSE er með starfsstöð í landinu. Þegar sambandsríkið Júgóslavía leystist upp urðu mikil átök á Balkanskaganum og einna hörðust í Kósóvó sem liggur að Makedóníu í norðri og var (er) hluti af Serbíu. Óttast var að átökin færðust yfir til landsins og ÖSE setti því upp starfs- stöð í Makedóníu árið 1992 til að fylgjast með ástandinu. í Makedóníu búa nokkur þjóðarbrot sem byggja á ólíkri menn- ingu, en stærsti minnihlutahópurinn er af Albönskum upp- runa og á því mikla samleið með meirihluta íbúa Kósóvó. Þess vegna er landið viðkvæmt fyrir því eldfima ástandi sem enn er til staðar á Balkanskaganum en árið 2001 kviknaði ófriðarbál og Makedónía var á barmi borgarastyrjaldar. Ástandið í dag er þó skaplegt og umsvif ÖSE minnka ár fá ári á sama tíma og landið nálgast óðfluga aðild að Evrópusambandinu og erlend fyrirtæki setja i auknum mæli upp starfsemi í landinu. Það er ekki hægt að segja að starfið sem ég gegni sé beint á fagsviði endurskoðanda. Auðvitað nýtist reynsla mín og fag- þekking á margan hátt en stjórnunarreynsla vegur þó þyngra. Starfið felst í því að sjá um daglegan rekstur, en undir minni stjórn eru fjármál, starfsmannamál, upplýsingatækni, innkaup, eignaumsjón, rekstur ökutækja og skjalastjórnun. Þetta virðist nokkuð umfangsmikið, en er þó tæknilega tiltölulega einfalt því verkferlar eru vel skilgreindir og verksvið og störf vel afmörkuð. Stofnunin notar Oracle upplýsingakerfi sem er mjög fastmótað og virkar alveg prýðilega. Lítið um séraðlaganir nema þá fyrir stofnunina í heild og menn læra að lifa með því sem þeim er fengið I hendur en byggja upp sérlausnir í öðrum kerfum ef þeir hafa efni á. Eitt af því sem vakti athygli mína strax er hve mikil virðing er borin fyrir fjárhagsáætluninni. „Frammúrkeyrsla" er hugtak sem þekkist ekki í heimi ÖSE og mér datt ekki í hug að reyna að efna til fræðslu um þá íslensku rekstrarmenningu. Ástæðuna fyrir því að ekki er farið fram úr má einkum rekja til góðs og fastmótaðs skipulags innkaupa, starfsmannaráðningar umfram fyrirfram samþykktar starfsheimildir þekkjast ekki og viðtekið er að leggja fram mánaðarleg uppgjör í fyrstu eða annarri viku eftir uppgjörsmánuð, yfirfara og kynna fyrir stjór- nendum einstakra rekstrareininga. Það þykir gott að loka árinu með 97% - 98% nýtingu, 99% -100% er frábært en allt þar yfir er rauða spjaldið. Með einfaldara kerfi mætti efalaust ná sama árangi en mér þykir ansi oft miður hve fjármunir sem veittir eru til starfseminnar brenna upp í skrifræði og óskilvirkni þannig að þekkt óhægræði og yfirbygging í íslensku stjórnkerfi er léttvægt í þeim samanburði. Ef það er rétt að vega saman framúrkeyrslu og skrifræði, þá er ég viss um að hægt er að létta á báðum ásum og ná jafnvægi og svipuðum árangri fyrir minni fjármuni. Þess konar verkefni fer væntanlega ekki á dagskrá að nokk- urri alvöru í fyrirséðri framtíð. Fyrir þá sem hafa gaman af að „tukta til í kerfinu" er ÖSE ekki rétti starfsvettvangurinn, en ef menn eru sáttir við að fá lífsreynslu, upplifun, útrás fyrir hóf- lega stríðni og horfa á kerfið svífa inn í framtíðina á pólitískum vængjum, þá má hafa töluvert út úr þessu starfsumhverfi og þrifast vel til lengri tíma. Fyrir mig hefur tíminn hjá starfsstöð ÖSE í Skopje verið mikil upplifun og lífsreynsla og minnir á margan hátt á umhverfi sem lýst er í bókunum Stasiland1 og Rússland Pútíns2. Nú er að koma að leiðarlokum, þriggja ára samningur uppfylltur og tími sem ég hefði ekki viljað missa af, að enda. En næsti áform- aði áfangastaður minn á flakki um heiminn er Bandaríkin, land tækifæranna. Hver veit nema ég fari að rækta þar tannþræði Kkt og Frank Zappa söng svo hnyttilega um í lagi sínu Montana3. 1. Stasiland; Anna Funder 2. Putins Russland; Anna Politkovskaja 3. Lag af Over-Nite Sensation 17 hljóðversskífu Frank Zappa og The Mothers of Invention 20 • FLE blaðið janúar 2013

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.