FLE blaðið - 01.01.2013, Side 26

FLE blaðið - 01.01.2013, Side 26
ist sem mest við sama tímabil. Innheimta opinberra gjalda er miðuð við almanaksárið. Skattskil félaga eru í mörgum tilvikum lögð til grundvallar staðtölugerð og áætlanagerð opinberra aðila. Af þessum ástæðum er rétt að ekki sé vikið frá þeirri megin- reglu að álagning skatta sé miðuð við almanaksárið nema til þess standi skýr rök og verulegir hagsmunir skattaðilans. Samkvæmt bréfinu telur Ríkisskattstjóri að nauðsynlegt sé að samræmis sé gætt á landinu öllu og setti því umræddar reglur til viðmiðunar. Sá sem hyggst taka upp eða breyta reikningsári sínu þannig að það falli ekki að almanaksárinu skal því rökstyðja óskir sínar þess efnis og sýna fram á þá hagsmuni sem hann hefur af breyttu fyrirkomulagi. Skattstjóri skal síðan leggja mat á óskir um breytt reikningsár og fallast á þær sé eitthvert eftir- farandi atriða til staðar: • Að félagið sé að mestu leyti starfandi í atvinnugrein þar sem venjulegt rekstrarár er ekki almanaksárið og annað tímabil sé eðlilegt og algengt að nota til uppgjörs á rekstri. Sem dæmi má nefna fiskveiðar þar sem miðað sé við fiskveiðiárið eða skólarekstur þar sem miðað er við fast skólaár. Ekki nægir I þessu efni að til staðar séu venju- legar árstíðasveiflur t.d. í verslun eða þjónustustarfsemi svo sem ferðamennsku. • Að óskað hafi verið samsköttunar fyrir félagið með móður- félagi, sem þegar hefur fengið samþykkt annað reiknings- ár en almanaksárið og að önnur skilyrði samsköttunar séu uppfyllt. • Að félagið sé í nánum fjárhags- og eignatengslum við annan aðila, innlendan eða erlendan, sem hefur reiknings- ár sem víkur frá almanaksárinu og verulegir hagsmunir tengjast því að fjárhagslegt uppgjör aðilanna fari saman. Starfsleg samvinna án fjárhagslegra tengsla eða eignar- hald eitt og sér á ekki að ráða í þessum tilvikum. Meðal þess sem Ölgerðin setti fram í sinni kröfugerð var að það væru miklar sveiflur í rekstrinum, sérstaklega í kringum áramót, en desember væri stærsti sölumánuðurinn og að sama skapi væri því janúar mesti vöruskilamánuðurinn og þar sem þessir tveir mánuðir lenda sitt hvorum megin við áramótin leiddi til þess að meta þyrfti áhrif þeirra á sitt hvort reiknings- árið. Taldi Ölgerðin að talsvert hagræði fengist af því að fá öll skil vegna desembersölunnar inn á sama rekstrarár. Jafnframt benti Ölgerðin á að samkeppnisaðilar þess fengju að gera upp á öðru rekstrarári en almanaksárinu, en að mati dómara var það ekki nægjanlega sannað. Ríkisskattstjóri benti hins vegar á að Ölgerðin væri f hefðbundnum verksmiðju-, -heild- sölu- og smásöluviðskiptum. Þannig væri ekki séð að neinir sérstakir hagsmunir væru hjá félaginu varðandi breytt reikn- ingsár umfram aðra aðila sem eru í viðskiptum og verslun hér á landi. Reksturinn væri ekki frábrugðinn rekstri annarra fyrir- tækja í svipaðri starfsemi sem lúti sambærilegum lögmálum. Rök Ölgerðarinnar fyrir því að fá heimild til þess að hafa annað reikningsár séu þess eðlis að þau geti nánast gilt almennt um rekstur verslana, þjónustufyrirtækja og framleiðslufyrirtækja. Alþekkt sé að mikið sé um skil á vörum að lokinni jólasölu og verði ekki fallist á að það breyti neinu I þessu sambandi, enda ekki byggt á því af hálfu Ölgerðarinnar að skil á vöru séu meiri hjá henni en öðrum. Dómurinn sýnir að það er erfiðleikum bundið fyrir íslensk fyrirtæki að fá að breyta reikningsári úr almanaksárinu í annað sem fellur betur að þeirra starfsemi. Ákvæði 59. gr. laga um tekjuskatt eru enn virk í lögum um tekjuskatt nr. 90/2003. Þar segir að tekjuskatt skuli miða við næsta almanaksár á undan, nema annað sé venjulegt rekstrarár í atvinnugrein aðila, eða hann sýnir, þegar hann telur fram, að hann hafi annað reikn- ingsár. Getur Ríkisskattstjóri þá veitt honum heimild til að hafa það reikningsár í stað almanaksársins. Því þurfa félög sem vilja hafa annað reikningsár að sækja um það sérstaklega til Ríkisskattstjóra. Þess má geta að Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. leggur nú fram reikningsskil sín miðað við 1. mars 2011 til loka febrúar 2012. Reikningsár fyrirtækja ættu að vera mismunandi Rökstuðningur fyrir því að hafa annað reikningsár en almanaks- árið liggur fyrst og fremst í hagræði fyrir fyrirtækin, að það veiti betri upplýsingar og sé í takt við starfsemi þess. Tekjustreymi getur verið árstíðabundið og því gefur það bestu upplýsingarnar fyrir notendur reikningsskila þegar búið er að innheimta mestan hluta þess, ganga frá vöruskilum og greiða birgjum þannig að hægt sé að hefja áætlanagerð fyrir næsta stóra tímabil. Þess vegna tel ég mikilvægt að reikningsár sé I samræmi við starf- semi fyrirtækja og frekar sé hvatt til að fyrirtæki hafi reikningsár við hæfi, heldur en hitt. Skilvirkni skattkerfisins og hagsmunir þess af því að hafa sama skattárið hjá öllum skattaðilum eru hins vegar ótvírætt til staðar. Það er hins vegar spurning, hvort á okkar tímum tækninnar sé ekki orðið einfalt mál við álagn- ingu skatta og framtalsgerð að taka tillit til þess að fyrirtæki geti haft mismunandi reikningsár og hagsmunir skattkerfisins af því að hafa sama reikningsár fari minnkandi. Með því að hafa mismunandi reikningsár aukast jafnframt möguleikar skatt- kerfisins á að stytta fresti við framtalsskil enda dreifist þá vinna þeirra sem annast framtalsgerð meira yfir árið. Á árinu 2007 var haldinn samráðsfundur RSK, FLE og Félags bókhaldsstofa þar sem félög með annað reikningsár voru til umræðu og voru þá skv. upplýsingum RSK alls 110 félög með annað reikningsár en almanaksárið. Ég velti því fyrir mér hvort ekki sé kominn tími til að taka þetta mál aftur á dagskrá með samráði þess- ara aðila þannig að fyrirtækjum sé gert auðveldara að velja sér reikningsár við sitt hæfi þannig að ársreikningar segi eina heila sögu í stað tveggja hálfra. Jón Rafn Ragnarsson 24 • FLE blaðið janúar 2013

x

FLE blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.