FLE blaðið - 01.01.2013, Blaðsíða 39
Einnig er rétt að benda á lokamálsgrein greinargerðarinnar sem fylgdi frumvarpinu, en þar segir að eftir lok samsköttunar, „getur yfir-
færanlegt tap, sem myndaðist í samsköttun, í hverju félagi fyrir sig nýst hjá því félagi sem myndaði tapið þegar það verður skattlagt
ísérsköttun." Félögum í samsköttun ber því að halda utanum yfirfæranleg töp á framtali hvers félags fyrir sig, það á því ekki að flytja
töp sem nýtanleg eru í samsköttun yfir á framtal móðurfélagsins á hverju ári. Aðeins ber að millifæra á milli framtala skattstofna sam-
skattaðra félaga og þau skattalegu töp sem nýtast á móti þeim skattstofnum á viðkomandi ári, hvort heldur sem um er að ræða töp
sem mynduðust á yfirstandandi ári eða á fyrri árum. Skattframtal hvers félags á því að sýna skattalega stöðu þess í árslok hvers árs.
Lokaorð
Hér að framan hef ég rakið mína túlkun á framangreindum lögum, en fjórtán árum eftir gildistöku þeirra hefur ráðherra ekki sett
reglugerð um meðferð tapa og hagnaðar á milli félaga í samsköttun eins og gert var ráð fyrir í greinargerð með frumvarpi til laganna
og heimilað er í lagagreininni sjálfri. Nú fjórtán árum síðar virðist þó enn brýn þörf á nánari reglum.
Það er ekki síður mikil þörf á að framtalsform félaga verði útbúið þannig að gert sé ráð fyrir samsköttun félaga.
Ég veit dæmi þess að í úrskurði ríkisskattstjóra í tilteknu máli um samsköttun var ekki framkvæmd jöfnun innan ársins áður en eldri
töp voru nýtt, en það er þó eitt að því fáa um nýtingu tapa sem er alveg skýrt í lagatextanum. Reglurnar virðist því ekki síður standa
í ríkisskattstjóra en öðrum.
Það er alveg Ijóst að framkvæmd samsköttunar hjá félögum er með mjög mismunandi hætti og túlkun aðila á lögunum er ekki
samræmd. Það er ekki lengur þannig að mjög fá félög séu samsköttuð, þeim hefurfarið ört fjölgandi á undanförnum árum og verður
þvi að telja fullt tilefni til að þessum málum verði komið í fastar skorður. Liður í því gæti verið að framtal lögaðila verði hannað með
tilliti til samsköttunar og þá myndi a.m.k. koma fram túlkun ríkisskattstjóra á lögunum.
Einnig væri eðlilegt að ráðherra nýtti heimild sína til þess að setja reglugerð um nýtingu tapa í samsköttun.
Steingrímur Sigfússon
Hvað þarf marga endurskoðendur til að skipta um Ijósaperu?
Hvaða tölu hefur þú í huga?
Hvað þarf marga endurskoðendur til að skipta um Ijósaperu?
1 til að skipta um peruna og 99 til að skrifa skýrslu um peruskiptin
Hvað þarf marga endurskoðendur til að skipta um Ijósaperu?
Hvað þurfti marga árið áður?
Hvað nota endurskoðendur sem getnaðarvörn?
Persónuleika sinn
Hver er skilgreiningin á endurskoðanda?
Aðili sem leysir vandamál hjá þér sem þú vissir ekki að þú ættir við að etja á þann veg
sem þú skilur ekki.
Þú ert endurskoðandi ef:
Þú reiknar út meðalfjölda bauna og gulróta á disknum þínum við kvöldverðarborðið.
Til eru þrjár týpur endurskoðenda, þeir sem kunna að telja og þeir sem kunna það ekki.
FLE blaðið janúar 2013 • 37