Ráðunautafundur - 13.02.1978, Blaðsíða 28
222
ullarvara hafa notað bæklinginn til kynningar á sérkennum
íslenzku ullarinnar. Bæklingurinn er prýddur litmyndum af
íslenzku sauðfé við ýmsar aðstæður auk litmynda af vörum
úr íslenzkri ull.
Bæklingurinn verður gefinn út aftur x vetur og er það gert
x samráði við útflytjendur ullarvara.
12. Vöruvernd.
Allmikið hefur borið á því hin síðari misseri, að farið sé
að líkja eftir íslenzku ullarvörunum erlendis. Er hér bæði
um að ræða eftirlíkingar í venjulegum skilningi, en einnig
er um að ræöa eftirlíkingar, þar sem talað er um að notuð
sé íslenzk ull í vöruna. Full þörf virðist á því að taka
mál þetta til umræðu og leita leiða, £ samráði við útflytj-
endur ullarvara. Mjög hefur verið deilt um útflutning
vélprjéna garns, sem notað er erlendis til framleiðslu á
eftirlíkingu íslenzks fatnaðar.
Skinnaverkefnið
Á vegum Ullar- og skinnaverkefnisins hefur mun
minna verið unnið að málum er snerta skinnaiðnaðinn en þeim
málum sem snerta ullariðnaðinn. Ljóst er þé, að þar eru
mörg og mjög erfið vandamál við að glíma. Eitt vandamál
gæruiðnaðarins er hráefnið, upphafleg gæði þess, meðferð,
verkun og geymsla. Það var því fyrsta atriðið sem tekið
var fyrir.
Hér á eftir verður í stuttu máli gerð grein fyrir helstu
viðfangsefnum er snerta gæði hráefnisins og iðnaðinn.
1. EÓlisgæði gærunnar
Árið 1971 gerði Rannséknarstofnun landbúnaðarins úttekt á
þýðingu ýmissa eiginleika gærunnar fyrir gæði hennar sem
hráefni fyrir iðnaðinn. Á s.l. hausti var aftur gerð könnun
á viðhorfum iðnaðarins til ýmissa eiginleika gæra, bæði
eðliseiginleika og meðferðargalla. Unnið verður úr þessum
niðurstöðum og þær síðan lagðar til grundvallar við ákvörðun