Ráðunautafundur - 13.02.1978, Blaðsíða 71
265
RAÐUNAUTAFUNDUR 1978
ÁHRIF DRÁTTARVgLAUMFERÐAR Á Tt?N
ðttar Geirsson,
Búnaðarfélagi Tslands.
Þrjár tilraunir voru gerðar á árunum 1964-1975 á Hvann-
eyri til að meta þau áhrif, sem umferð dráttarvála og annarra
þungra véla hefur á upþskeru og jarðveg.
T hinni elstu var ætlunin að bera saman umferð þungra
og léttra dráttarvéla. Þessi tilraun fór forgörðum vegna mis-
taka tilraunamanna, en varð þó til þess að sýna það, að umferð-
in hefur drjúg áhrif á uppskeru. I annarri tilraun voru bornir
saman mismunandi umferðartxmar og að mörgu leyti var fylgst
best með áhrifum umferðarinnar í þeirri tilraun. T þriðju
tilrauninni var kannað, hvort kalk og sement gætu dregið úr
skaðlegum áhrifum umferðar, ef þessum efnum væri blandað saman
við jarðveginn.
Umferðinni um reitina var hagað þannig, að dráttarvél
var ekið fram og aftur um reitina þannig að hjólfar nam við
hjólfar, þegar tilraunaáætlun gerði ráð fyrir umferð. Á
þennan hátt varð miðbik reitsins tvisvar undir afturhjóli og
tvisvar undir framhjóli vélarinnar en jaðrarnir einu sinni.
Er þetta síst meiri umferð en áætla má að tún verði almennt
fyr'ir, en hún dreifist jafnar á tilraunareitina heldur en
raunin er við venjulegar búskaparaðstæður, þar sem sumir
blettir sleppa án umferðar en aðrir verða margoft undir hjóli.
Fyrir utan tilraunameðferð var ekið um alla reiti með Agríu
tilraunsláttuvél.
Helstu niðurstöður voru þessar:
Uppskera var minni að vöxtum á þeim reitum sem ekið var
um heldur en hinum. Munurinn var minnstur fyrstu árin en fór
vaxandi eftir því sem á leið og varð allt að 30-40% einstök ár,
en að meðaltali um 16%. (Tafla 4, mynd 1).