Ráðunautafundur - 11.02.1979, Side 9

Ráðunautafundur - 11.02.1979, Side 9
1 RAÐUNAUTAFUNDUR 1979. LEIÐBEININGAÞJÖNUSTA OG MÖRKUN LANGTÍNASTEFNU I LANDBJNAÐI. Steingrímur Hermannsson. Landbúnaðarráöuneytinu. Erfiöleika íslenzks landbúnaöar má fyrst og fremst rekja til þess, aö vaxandi framleiösla umfram innanlands- þarfir, hefur ekki reynst seljanleg á erlendum mörkuðum fyrir viðunandi verö. Því veldur m.a. viðleitni flestra þjóöa til þess að halda veröi landbúnaðarafuröa niöri og hækkandi framleiðslukostnaður hérlendis. Þar sem ekki er líklegt aö þetta breytist á næstunni er nauðsynlegt aö marka nýja stefnu í málefnum landbúnaöarins. Gera veröur ráö fyrir því aö framleiðsla landbúnaðar- afuröa veröi sem næst þörfum þjóöarinnar sjálfrar og þess iðnaðar sem á slíkri framleiöslu byggir. Jafnframt veröur að leggja áherzlu á að tryggja bændum tekjur, sem eru sam- bærilegar viö það sem aðrar stéttir í þjóöfélaginu hafa, og svipaða félagslega aöstöðu. Til þess aö breyta þeirri fram- leiðsluþróun, sem verið hefur upp á síðkastið og ná slfkum markmiðum og öörum, sem hljóta aö tengjast stefnumörkun í landbúnaði, t.d. á sviði byggðamála, er nauðsynlegt að gera áætlun um þróun landbúnaðarframleiöslunnar til nokkurra ára. Til þess að slík áætlun standist og sett markmið náist verður að samhæfa starfsemi hinna ýmsu aðila, sem að landbúnaðarmálum starfa. Nauðsynlegt er, að allir þættir vinni vel saman. Tryggja verður örugg tengsl á milli hinna ýmsu aðila, sem að framkvæmd stefnunnar starfa, og framleið- enda sjálfra. Upplýsingar og leiðbeiningar þurfa að komast vel til skila, og jafnframt mat á þróun landbúnaðarframleiðsl- unnar. Við framkvæmd nýrrar stefnu í landbúnaði verður þetta ekki sfzt verkefni ráðunautanna. Það er ákaflega mikilvægt.

x

Ráðunautafundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ráðunautafundur
https://timarit.is/publication/1260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.