Ráðunautafundur - 11.02.1979, Blaðsíða 38
30
hæð og jarðvegi og í nokkur ár hefur verið fylgst með sprettu og þroska
grastegunda samfara veðurfarsmælingum. Þessar athuganir hafa verið gerðar
á Hveravöllum og jafnframt á tilraunastöðinni Korpu og hafa starfsmenn Veður-
stofu Islands annást mælingar á Hveravöllum.
Þá má geta þess, að rátt þótti að kanna hvort ræktun gæti á einhvern
hátt raskað sjaldgæfu plöntu og dýralxfi og haft þannig skaðleg áhrif á
annað lífríki og umhverfi þess. Var því hafin forrannsókn á landi sem
taka átti til uppgræðslu og gerð athugun á gróðri, dýralífi og vistfræði-
legu gildi svæðisins eins og það var £ upphafi friðunar og áður en
ræktunaraðgerðir hófust, til þess að unnt væri að bera þær niðurstöður
saman við væntanlegar breytingar.
Ræktun getur hugsanlega haft áhrif á afkomu og breytt stofnstærð
annarra grasb.íta en hinna venjulegu húsdýra landsmanna. Má þar til nefna
gæsir, álftir og hreindýr. Þetta viðfangsefni var einnig tekið fyrir og
verður skýrt frá því í öðru erindi (Tryggvi Gunnarsson og Sturla Friðriksson '79).
Þessi og ýmis fleiri viðfangsefni á sviði landbúnaðarvistfræði þótti
rétt að kanna, svo sem áhrif mengunar frá landbúnaði og ýmis áhrif vargs og
villidýra í samneyti við landbúnað.
Eitt veigamikið viðfangsefni, sem rétt þótti að taka fyrir, var fram-
ræsla mýrlendis með öllum þeim hugsanlegu áhrifum sem uppþurrkun getur haft
á lífríki mýrarinnar og nærliggjandi umhverfi. 1 eftirfarandi erindi,
skal þessum hluta vistfræðirannsóknanna gerð nánari skil.
Mýrlendi Islands.
Mýrar á Islandi eru taldar vera um 10.000 km2 að flatarmáli eða tæpur
helmingur af gróðurlendi landsins. I mýrum hefur safnast saman mikið magn
lífrænna efna, sem víða hefur myndað þykkt mólag. Elstu mýrar hér á landi
hafa fyrst tekið að myndast í lok síðustu ísaldar. og geta verið allt að
6 m þykkar. Mýrlendi er heimkynni fjölda lífvera, bæði plantna og dýra
og vistkerfi þetta hefur orðið manni og húsdýrum hans notadrjúgt. Þangað
var sóttur mór til eldsneytis, þar mátti skera reiðingstorf, þaðan var
fenginn mikill hluti útheys, og búpeningur gengur í mýrum til beitar og
nýtir mýrargróður. Þessi mýrargróður, mest starir og brok, hefur þó ekki
jafn mikið fóðurgildi og heilgrös og áburður kemur þar ekki að neinu teljandi
gagni.