Ráðunautafundur - 11.02.1979, Side 40

Ráðunautafundur - 11.02.1979, Side 40
32 9,36 ha að stærð (260 x 360 m)cg nefnd svæði I. Var ákveðin nánari könnun á þessu svæði. Því var skipt niður í 234 reiti, sem voru hver 20 m á kant. Síðan var þetta svæði mælt og metið hátt og lágt á næstu þremur árum. Að forrannsókn lokinni var síðan hafist handa við að ræsa fram mýrina, og er það gert með ýmsum framræsluháttum. Verður síðan fylgst með þeim breytingum sem gerast eftir ræsingaraðgerðir. Hér skulu talin upp nokkur þau verkefni, sem fengist var við í for- rannsókn mýrarinnar. Veðurathuganir Rennslismælingar Vatnsstöðumælingar Efnamælingar á vatni J arðlagakönnun J arðvegsathugun Mæling á yfirborðshæð mýrar Úttekt á þúfnagerö Greining á mosum Skráning æðri plantna Skráning á útbreiðslu plöntusamfélaga Mæling á vaxtarhraða plöntutegunda Uppskerumælingar á gróðri Skráning lægri dýra Könnun á afnotum fugla af svæðinu. Könnun á hegðun búfjár a mýrlendi. Niðurstöður af þessum forrannsóknum hafa birst í þremur fjölrituðum skýrslum frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins (Hestvist 1975, Hestvist 1976 Fjölrit Rala nr. 19 og Hestvist 1977 Fjölrit Rala nr. 31). Eftir er að vinna úrrannsóknum ársins 1978. Hér á eftir mun verða greint frá vatnsbú- skap mýrarinnar af Haraldi Árnasyni (1979). Friðrik Pálmason (1979) mun skýra frá efnagreiningum í jarðvegi og Guðmundur Halldórsson (1979) ræðir um afnot fugla af svæðinu. 1 þessu erindi skal hins vegar lauslega greint frá athugunum á æðri gróðri svæðisins og bent á hvernig fyrirhugað er að nota þau gögn sem þegar eru fengin. Gróðurfar. Gróður svæðisins var athugaður mjög nákvæmlega. Var þekja háplantna mæld með oddamælingu í 64 frumpunktum í hverjum 400 m^ reit og voru 10 oddar í hverjum frumpunkti. Fæst þannig mat á hlutdeild háplöntutegunda. Þessum upplýsingum hefur síðan verið komið fyrir á gataspjöld og eru þau hæf til úrvinnslu í tölvu. Má nota þessi gögn til þess að gera kort af útbreiðslu einstakra tegunda eða plöntusamfélaga og sýna fram á hvernig tegundahópar dreifast í hinar ýmsu vistir eftir rakastigi og öðrum umhverfisþáttum.

x

Ráðunautafundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ráðunautafundur
https://timarit.is/publication/1260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.