Ráðunautafundur - 11.02.1979, Page 62
54
Spói (Numenius phaeopus):
28/6 fannst hreiður hans á lækjarbakka vestast í mýrinni. 1
hreiðrinu sjálfu voru 2 eggs en til hliðar við það lágu 2 önnur,
köld og fúl. 16/7 var hann búinn að unga út og ungar farnir úr
hreiðrinu. Landið kring um hreiðrið var rök smáþýfð mýri, með
fjalldrapa í þúfnakollum , en horblöðku milli þúfna. Annars eru
starir þar ríkjandi (mýrarstör). En hreiður spóans var þó á til-
tölulega þurrum stað, í stórri þúfu, sem stóð nægilega hátt yfir
vatnsborði lækjarins til að haldast vel þurrt. Á þúfunni óx nokkuð
af fjalldrapa.
Kjói (Stercorarius parasiticus):
Hreiður nans fannst 9/6 í forblautri mýri með fleytingsþúfum í
austurhluta mýrarinnar. 1 því voru 2 egg. 1/7 voru ungarnir komnir
úr eggjunum. Land kring um hreiðrið var eins og áður sagði forblaut
mýri. Þúfur voru mjög stórar um sig, en lágar og flatar. Hilli
þúfna voru yfirleitt mýrarrauðaseyrur. Gróðurfar einkenndist af
mosaþembum í þúfum, með störum inn á milli, en á milli þúfna var gróður
lítill, en einna mest var þó af horblöðku (hennar gætti líka í þúfum).
Stelkur (Tringa totanus):
Hreiður hans með 4 eggjum í fannst 13/6 á lækjarbakka í austurhluta
mýrarinnar, 5/7 var útungun lokið. Land kring um hreiðrið var
rök smáþýfð mýri. Helsti gróður var mýrarstör.
Eftirtalin hreiður fundust í mýrinni sumarið 1976.
Þúfutittlingur (Anthus pratensis)r
6/6 fannst hreiður hans með 4 eggjum í, í jaðri í austurhluta mýrar-
innar. Ungar voru komnir úr eggjum þann 7/6. Land þarna er mjög
svipað og við hreiður lóuþrælsins 1975 og vísa ég til þeirrar lýsingar.
Hrossagaukur (Gallinago gallinago):
Tvö hrossagaukshreiður fundust sumarið 1976. Annað var á svipuðum
slóðum og hrossagaukshreiðriö sem fannst 1975 og fannst það hreiður
23/6, í því voru 4 egg. 12/7 var útungun lokið í því hreiðri.
Hitt hreiðrið var í rakri mýri í austurhluta mýrarinnar. Það fannst
5/6 og í því voru 4 egg. tír því hreiðri komst á legg 1 ungi og
gerðist það 24/6. Land við hreiðrið er smáþýft og gróður einkennist
af störum (mýrarstör), þó er dálítið af lxngresi í þúfum.
Spói (Numenius phaeopus):
Þann 6/6 fannst hreiður hans í rakri mýri í vesturhluta mýrarinnar.
1 hreiðrinu voru 4 egg. Þann 7/6 var búið að ræna öllum eggjunum.
land kring um hreiðrið var smáþýfð rök mýri. Helsti gróður starir
(mýrarstör).
Til að átta sig ögn nánar á hugsanlegum afleiðingum framræslu á þær
fuglategundir sem hreiður áttu í mýrinni sumrin 1975 og 1976 er rétt að
líta á meðfylgjandi töflu.