Ráðunautafundur - 11.02.1979, Page 71
J tk oma
niðurstöður :
1) Kort :
Skráð landgræðslusvæði frá upphafi (1907) eru nú
(1978) 104 í 14 sýslum landsins og í Vestmannaeyjum. Flestar
girðingar eru í eftirtöldum sýslum: Vestur-Skaftafellssýslu
(20), Suður-Þingeyjarsýslu (18), Norður-Þingeyjarsýslu (18),
Rangárvallasýslu (18) og í Árnessýslu (16). Samanlögð lengd
allra girðinganna 104, er 1150 km. Heildar flatarmál þeirra
svæða, sem kortlögð hafa verið og mæld , er 220 .700 hektarar.
(Eftir er að kortleggja og flatarmæla sex lítil svæði). Lang-
stærstu svæðin eru: 1) norðan Þingvalla, girt 1976-77, 36 km
45000 ha., 2) Reykjanes, girt 1977 , 22 .3 km, 34350 ha. , 3)
Landmannaafréttur, girt 1970, 39.4 km, 20500 ha. Nokkur önn-
ur svæði eru mjög víðáttumiki1, svo sem Landeyjasandur , Með-
allandssandur , og Gunnarsholts svæðið , en þorri svæðanna er
nokkur hundruð hektarar, og fjöldi aðeins nokkrir tugir hekt-
ar a .
A.m.k. 27 svæði hafa nú verið afhent fyrri eigendum
og eru sum jafnvel tún og slægjur í dag, eins og t.d. margar
spildur í Skaftártungu. Meðal afhentra svæða eru að sjálf-
sögðu einnig sandræktir, svo sem á Skógasandi og á Sólheima-
sandi. Þegar talið er að tilætluðum árangri sé náð, gengur
landið oft aftur til fyrri eigenda, hafi því verið afsalað,
eða heimamenn taka landið á ný í sína vörslu. Gildir þetta
um flest þau svæði sem talin eru uppgrædd í dag.
í sambandi við úttektina var meiri áhersla lögð á þau
svæði þar sem virk uppgræðslustarfsemi á sér stað í dag.
Verulega háði það kortlagningu margra svæða, að ekki
eru til loftmyndir aðrar en þær sem teknar voru 1959-60.
Gefur auga leið að slíkt ástand torveldar mjög yfirsýn og
mat á árangri , þar eð uppgræðslustarfsemin - einkum með
flugvélum - hefst ekki í neinum mæli fyrr en eftir 1959, og
fyrst verulega með tilkomu Douglas vélarinnar árið 1973. Á
hinn bóginn mun án efa verða gagn af þessum gömlu loftmynd-
um til samanburðar síðar meir, er nýjar loftmyndir koma.
Með lista yfir landgræðslusvæðin (Viðauki 1) er skráð
hvort fletta megi tilteknu svæði upp á korti eða á loftmynd.