Ráðunautafundur - 11.02.1979, Page 74

Ráðunautafundur - 11.02.1979, Page 74
66 mikla þýðingu fyrir viðkomandi bæi eða pláss. Friðun og sáningar að Kirkjubæjarklaustri skapaði viðunandi ástand í bæjarlandinu, og eru nú tún og byggð þar sem áður voru svartar sandöldur. I Álftaveri fullyrða heimamenn að 1100 ha uppgræðslusvæði í Suðurhögum hafi bjargað þremur býlum frá eyðingu. övíða í sýslunni er þó árangur landgræðslustarfsins jafn áþreifanlegur eins og í Vík í Mýrdal. Áður en upp- græðslan hófst 1933, var þar ekkert nema svartur sandur, sem iðulega fauk í hneháa skafla við húsveggi. Farið var smátt af stað í byrjun, og aðeins fengist við sandinn fram- an við þorpið. Síðar fikruðu menn sig austar með sand- ræktina og nær hún nú að Ker1ingadalsá, alls 400 ha . Mel- gígar hafa nú verið slettaðir og er allt landgræðslusvæðið á hraðri leið með að verða að valllendi . Rangárvallasýsla : Meira átak hefur verið gert til uppgræðslu örfoka lands og heftingu sandfoks í Rangárvallasýslu en í nokkurri annarri sýslu á landinu. Fyrsta girðingin í sýslunni var sett við Þykkvabæ árið 1909, næst var girt við Kaldárholt 1914, en árið 1922 var brotiö blað í uppgræðslumálum sýsl- unnar þegar tekið var til við að girða hin miklu sandfoks- svæði í Landsveit. Samtals eru 18 smærri og stærri land- græðslusvæði í Rangárvallasýslu. Þrjú þessara svæða hafa án efa haft mesta þýðingu, og hafa líklega bjargað upp - sveitum sýslunnar frá eyðingu. Þessi svæöi eru: í Land- sveit, girt 1922-41, samtals 67,2 km, 7600 ha; Gunnars- holtssvæðið, girt 1926-46-73, samtals 74.1 km, 10500 haj og Landmannaafrettur, girt 1970 , 39 .4 km, 20500 ha . Á Rangárvöllum hafa fleiri jarðir farið í eyði vegna sandfoks en á nokkru öðru svæði á landinu. Til dæmis tekur uppgræðslusvæðið í Landsveit yfir landssvæði sem eitt sinn tilheyrði samtals 30 býlum, og á Gunnarsholts svæðinu er talið að veriö hafi 17 býli fyrir um það bil tveimur öldum . í heild hafa þessi svæði yfirleitt verið svo gersamlega örfoka að friðun ein hefur nær ekkert haft að segja þar sem slíkt hefur verið reynt . Þe ss vegna var

x

Ráðunautafundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ráðunautafundur
https://timarit.is/publication/1260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.