Ráðunautafundur - 11.02.1979, Side 81
73
ákveðin tegand finnst. Tíðnin er mæld á þann hátt, að 25
smáreitir, 20x20 cm að stærð, eru afmarkaðir reglulega innan
2
hvers reits (4 m ).
Þéttleiki háplantna er einnig athugaður, þ.e. fjöldi
einstaklinga á flatareiningu.
Dæmi um nióurstöður:
Ássandur, Kelduhverfi, N-Þing.
Ássandur var girtur 1942 og melgresi sáð. Sandfok er
þar ekki lengur. Þar sem gróðurathuganirnar á Ássandi fóru
fram er fremur um öldótta mela að ræða en sanda . Gróður er
mjög strjáll og plönturnar smávaxnar og kyrkingslegar.
Athuganir hafa verið gerðar á fimm stöðum í um 25 m.
h.y.s., snið mæld út og merkt á þeim öllum árið 1974. Sumarið
1976 var svo gróður athugaður x þessum sömu sniðum að nýju
með sömu aðferð og fyrr og einnig sumarið 1978. Öll sniðin
eru á friðlandi innan girðingar. Tvö sniðanna eru á móts
við Lyngás í 20 - 25 m.h.y.s., annað í sáningu frá 1960, en
hitt á melunum skammt þar frá, þar sem hvorki hefur verið
borið á né sáð í. Hin sniðin þrjú eru norður af Byrgi í um
25 - 30 m.h.y.s., tvö í misgömlum sáningum og hið þriðja á
melunum þar austur undan .
Sumarið 1976 skáru rákir með gróskumiklum gróðri
gömlu sáningarnar frá 1960 hér og þar, þó ekki þar sem snið-
in eru. Líklega hefur verið borið á þarna 1975. Mest áber-
andi eru língresistegundir og túnvingull . Auk algengra teg-
unda á svæðinu fundust 1976 í áburðarrákunum hálíngresi,
hálmgresi, fjallafoxgras og baldursbrá sem sýnilega er slæð-
ingur.
Samanburður á sniði 1 1974 og 1976:
Sömu 7 háplöntutegundirnar fundust í sniðinu bæði árin.
Engin háplöntutegundanna reyndist hafa marktækan þéttleikamun
í þessum tveim athugunum. Tegundafjöldinn er hinn sami.
Heildarþekja gróðurs var um 1% 1974, en um 0.6% 1976.
' Samanburóur á sniði 2 1974 og 1976:
Marktækur munur reyndist vera á þéttleika blásveifgrass
og hundasúru, sem höfðu méiri þéttleika 1974. Tegundafjöldinn
var hinn sami við báðar athuganir en sáni túnvingullinn virtist