Ráðunautafundur - 11.02.1979, Side 89

Ráðunautafundur - 11.02.1979, Side 89
81 II. Hugsanlegt notagildi. búpínan virðist hafa mjög víðtækt notagildi, en þó er líklegt að gall- ar hennar upphefji kostina á sumum sviðum. Við uppgræðslu á örfoka landi hefur lúpínan ótvírætt sannað gildi sitt, en það er þó raunar háð því að hún hopi fyrir öðrum gróðri með tímanum. A landinu eru þúsundir hektara af friðuðu landi sem lúpínan myndi henta vel til uppgræðslu á. Samanborið við uppgræðslu með "venjulegum aðferðum" er sáning lúpínu mjög álitleg, því ekki þarf að kosta til neinum áburði og fræ ætti ekki að vera dýrt. Slík sáning gæti raunar verið hentugt verkefni fyrir áhugamannasamtök. Forræktun og sáðskipti. Víðast hvar erlendis eru lúpínutegundirnar einkum notaðar við forræktun ófrjósams lands og sem áburðarframleiðendur í sáðskiptum (green manure). Einkum eru þá notaðar fljótvaxnar einærar teg- undir og þær plægðar niður áður en öðru er sáð í landið. Hér myndi lúpínan henta vel til fræræktunar sanda og mela sem á að taka til ræktunar, einkum til að hækka innihald áburðar og lífræns efnis í jarðveginum. Sem áburðarframleiðandi í skógrækt virðist lúpínan mjög álitleg. A Hallormsstað hefur komið í ljós að lerki, sem vex með lúpínu,vex hraðar en annað lerki við sambærileg skilyrði. Það er þegar byrjað að nýta þessa vitneskju við útplöntun á Hallormsstað. Skýringin á þessum jákvæðu áhrifum lúpínunnar er fólgin í því að rótar- bakteríur (gerlar) sem lifa á lúpínunni, framleiða meira köfnunarefii enlúpían getur nýtt. Tafla 1 sýnir niðurstöður efnagreininga, sem gerðar voru á barri sitka- grenis innan og utan lúpínubreiða í Heiðmörk. Sýnunum var safnað, (A) 12/9, 2) 1978 og (B) haustið 1970. Tafla 1. Köfnunarefnis- (N) og fosfór-(P) innihald barrs af sitkagreni. % af þurrefni N P A. 1978 Með lúpínu 1.12 0.18 An lúpínu 0.94 0.20 B. 1970 Með lúpínu 1.38 0.19 An lúpxnu 1.04 0.21 Eins og sjá má af töflunni hefur sambýlið við lúpínuna aukið köfnunar- efnisinnihaldið talsvert og þar með möguleika grenisins til vaxtar.

x

Ráðunautafundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ráðunautafundur
https://timarit.is/publication/1260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.