Svava - 01.09.1903, Qupperneq 17
67
fitu í líkamanum og þanu veg orðið hold af voru holdi,
Bn óbeinlínis, en sykur og sterkjuefni geta þuð aldrei;
er það niesti munurinn. Sterkjuefnin í fœðu vorri geta
aptur Ummyndast bæði í hold og blóð í líkamanum og
þau geta greinzt í sundur í honum á ýmsan hátt, svo af
þeim myndist fituefni, sem þá geta samlagast líkaman-
um. Þann veg sjáum vjer, að holdgjafaefnin og fitu-
efnin eru alveg nauðsynleg í fœðu vorri og án þeirra
niá líkaminn eigi vera, sje hann liraustur og eigi að
geta haldið heilsu. Haun má vel vera áu sykurs og
sterkju, en þar sem þessi efni miða til þess, að iíkam-
inn eyði eigi um of holdgjafa- og fituefnum sínum eða
Uieð öðrum orðum: þar som vjer þurfurn eigi til þess,
að halda lífi og heilsu, að neyta eins mikils af eggja-
hvítuefuum og fitu, ef vjerblöndum fœðu Vorri sykur og
sterkju, þá er og auðskilið, að þau samt eru einkar
mikilvæg og enda nauðsynlegur hluti fœðunoar; þar við
bœtist, að þessi efni eru að mun ódýrari en holdgjafa-
efnin cða fituefnin, og því auðveldara að afla þeirra.
Vjor höfum þá virt fyrir oss af hverjum efnum lopt-
)ð, sem vjer öndum að oss, er samsett, en úr því fáura
vjer einnig fœðu vora, þó að húu þurfi að fara marga
krókavegi áður en hún er i askana látin og oss í munn
5