Svava - 01.11.1903, Page 5
151
nœgilegur tii húsagjörðar og eldiviðar. Þetta var ná
aðal-ástæðurnar, sem komu þeim félögum til að álíta
strönd Winnipeg-vatnsin8 heppilegasta nýlendusvæðið.
Nokkurir af sendinefnd þessari héldu austur aftur, þeg-
ar afráðið var með þeim um nýlendustaðinn; en Skafti
varð eftir í Austur-Selkirk við járnbrnutarvinnu og
Sigurður Kristófersson með honum. Unnu þeir Skafti
og Sigurður þar sjö vikur. En að þeim liðnum var
fólksins von að austan til Nyja-íslands og vildu þejr
f'jálpa því til að komast ofan 'eftir. Um lok október-
mánaðar, síðasta sumardag, konni þeir með fólkið til
Nýja-Islands og var Skafti þar um veturinn. Yar þá
dýrtið allmikil í nýlenduuni, eins og búast mátti við,
þar sem aðflutningar og samgöngur var miklum erfiðleik-
um háð. Hundrað pund hveitiinjöls kostuðu $3.75, fros-
in jarðepli 90 cts hvert bu-shel, saltað svínakjöt 16 cts
PUndið, reykt 18 til 20, kaffi 40 cts pundið, púðursykur
14 cts, steinolía 40 cts hvort gallon, edik 40 cts pottur-
^un, te 65 pundið, vísundalcæfa (pemmican) 20 cts pundið
1 hundrað punda belgjum. Af öðrum matartegundum
en þessum höfðu menn lítið, og reyndi Friðjón Friðriks-
sem gjörðist verzlunarmaður nýlendunnar, að hafa
að sér svo mikið af vörum þessum, að engan brysti
i-ráðustu nauðsynjar, Hveitikom sneru menn sundur í.