Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2016, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2016, Blaðsíða 20
Vikublað 8.–10. mars 20164 Flutningaþjónusta - Kynningarblað F lutningaþjónustan ehf. var stofnuð árið 2004 en fyrir­ tækið byggir á dýrmætri reynslu eigandans Jóns Birgis sonar sem hefur starfað í flutningabransanum frá 1989. Að sögn Jóns er fyrirtækið traust flutn­ ingaþjónusta með fullgilt rekstrar­ leyfi. „Hjá fyrirtækinu starfa aðeins reyndir menn sem hafa metnað til að veita afburða þjónustu,“ segir hann. Fyrirmyndar fyrirtækjaþjónusta „Mörg fyrirtæki þurfa ekki á flutn­ ingaþjónustu að halda á hverjum degi,“ segir Jón. „En þegar þörfin skapast, skiptir máli að verkefnið sé í höndum aðila sem er starfi sínu vax­ inn og traustsins verður. Hvort sem um er að ræða tilfallandi sendingar eða flutning á höfuðstöðvum fyrir­ tækisins er mikilvægt að hafa fag­ mennsku að leiðar­ ljósi. Þar kemur einmitt Flutninga­ þjónustan til skjal­ anna!“ segir hann brosandi. Tímabundnar og langtímalausnir „Við útvegum starfsmanninn sem vantar bara stund­ um. Hjá okkur starfa einungis harðduglegir menn, laghentir, úrræðagóðir og fljótir að komast inn í ný verkefni. Það fær enginn vinnu hjá Flutningaþjónustunni sem ekki hefur hreint sakavottorð og góðan ökuferil. Eitt aðal markmið okkar er hag­ kvæmni. Ef þig vantar starfsmann tímabundið inn á lager, eða íhlaupamann í nokkra klukkutíma, hafðu þá sam­ band við okkur. Við getum sett saman húsgögn, fært til innréttingar og stillt upp ef þörf er á. Við þrífum, göngum frá, stillum upp og gerum það sem til fellur í sambandi við flutninga – já og meira til!“ Heildarlausnir og hagkvæmni Jón segir að Flutningaþjónustan geti einnig séð um heildarlausn á flutninga­ málum fyrirtækja. „Það færist í vöxt í ís­ lensku viðskiptalífi að fyrirtæki kjósi að láta verkþætti sem ekki tengjast dag­ legum rekstri fyrirtækisins, t.d. vöru­ dreifingu, frá sér og fela þau sérhæfðum fagaðilum. Hvort sem um er að ræða vörudreifingu eða aðföng, þá erum við með réttu lausnina fyrir þitt fyrirtæki. Við hvetjum ykkur til þess að hafa samband og kanna hvað við höfum upp á að bjóða,“ segir Jón að lokum. n Flutningaþjónustan ehf., Dugguvogur 17–19, 104 Reykjavík, Sími 555 1100 www.flutningathjonustan.is Flutningaþjónustan á facebook. Flutningaþjónustan: Metnaður og afburðaþjónusta „Hjá fyrirtækinu starfa aðeins reyndir menn sem hafa metnað til að veita af- burða þjónustu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.