Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2016, Blaðsíða 23
Vikublað 8.–10. mars 2016 Kynningarblað - Flutningaþjónusta 7
„Trúin flytur fjöll við
flytjum allt annað“
Sendibílastöðin hf. fagna 67 ára afmæli í ár - Var stofnuð 29. júní árið 1949
S
endibílastöðin hf. var stofn-
uð 29. júní árið 1949. Hún
var upphaflega staðsett að
Ingólfsstræti 11 en flutti svo
í Borgartún 21 árið 1956. Í
dag er stöðin að Klettagörðum 1 og
hefur verið síðan 1999.
Sólveig Þóra Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sendibílastöðvarinn-
ar hf., segir að á staðnum sé einka-
rekið mötuneyti fyrir bílstjórana
og einnig er í boði kaffi og meðlæti
allan daginn. „Andrúmsloftið er
gott og menn hittast hér og rabba,
spila bridge og tefla þegar tími gefst
til. Það er reyndar ekki oft því mik-
ið hefur verið að gera undanfarið.“
Allt annar
rekstrargrundvöllur í dag
„Rekstur sendibílastöðva er með allt
annan grundvöll í dag en áður var.
Árið 2002 komu ný lög/ reglugerðir
varðandi að ekki var lengur skylda
fyrir sendibílstjóra að vera á viður-
kenndri sendibílastöð – eins og alltaf
hafði verið. Auk þess var sendibíla-
stöðvum bannað að gefa út hámarks-
gjaldskrá. Við fengum undanþágu frá
Samkeppniseftirlitinu. Því hámarks-
gjaldskrá er til verndar viðskiptavin-
inum,“ segir hún.
Bílar hafa stækkað í gegnum tíð-
ina og eru þeir burðarmeiri enda
kallar markaðurinn á það. Ný tæki
hafa komið til sögunnar sem létta
bílstjóranum vinnuna, t.d. rafmagns-
brettatjakkar og rafmagnströpputrill-
ur. Að sögn Sólveigar flytur Sendi-
bílastöðin allt frá umslögum upp í
stórflutninga. „Við erum með bíla
allt frá fimm rúmmetrum upp í tæp-
lega 50 rúmmetra burðargetu; allt að
10 tonnum. Sumir eru með vagna
aukalega sem eru um 50 rúmmetrar
þar sem burður er allt að 13 tonnum.
Einnig höfum við aðgang að krana
og búslóðalyftum sem ná allt að 50
metrum og bera 350 kíló í hverri ferð.“
Þjóna bæði fyrirtækjum og
einstaklingum
„Trúin flytur fjöll við flytjum allt
annað,“ segir Sólveig brosandi.
„Þjónusta okkar er víðtæk. Við þjón-
um bæði einstaklingum og fyrir-
tækjum. Á Sendibílastöðinni starfa
tveir starfsmenn en á stöðinni eru
alls 62 bílstjórar. Sendibílstjórarnir
eru allir sjálfstæðir verktakar með
sameiginlega símaþjónustu varð-
andi úthlutun túra og innheimtu
reikninga þeirra fyrirtækja sem eru
í reikningi á Sendibílastöðinni.“
Ísbjarnarflutningur
Aðspurð segir Sólveig að það
skrýtnasta sem fyrirtækið hefur flutt
til þessa sé líklega ísbjörn. „Hann
var uppstoppaður, sem betur fer,“
segir hún hlæjandi. „Annars er
ekkert sem við neitum að flytja svo
framarlega að farmurinn komist í
bílana og allt sé löglegt. Við höfum
hingað til ekki lent í því að þurfa að
neita viðskiptavini um flutning.“
Sendibílastöðin hf. Klettagörð-
um 1, 104 Reykjavík. Símar: 553
- 5050 og 533 - 1000. www.sendi-
bilastodin.is n Sólveig Þóra Jónsdóttir Framkvæmdastjóri Sendibílastöðvarinnar hf.