Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Blaðsíða 2
2 Fréttir Vikublað 30.–31. mars 2016 Verkamenn í eyjum gistu um borð í skipi E rlendir verkamenn sem unnið hafa að byggingu nýs uppsjáv- arfrystihúss Vinnslustöðv- arinnar í Vestmanna eyjum bjuggu um borð í færeyskum frystitogara um hríð í upphafi fram- kvæmda. Athugasemdir voru hins vegar gerðar við dvöl mannanna um borð í skipinu sem varð til þess að þeir fluttu sig um set yfir á gistiheim- ili í bænum. Þeir hafa hins vegar enn aðgang að skipinu og nota það meðal annars sem eins konar mötuneyti meðan þeir starfa við framkvæmd- irnar á vegum Byggingar félagsins Eyktar. Þótti sniðug lausn Framkvæmdastjóri Eyktar, Páll Daníel Svansson, segir að mönnum hafi fundist þetta sniðug lausn í byrjun en þeir hafi sýnt öllum ábendingum í aðra veru mikinn skilning og eftir á að hyggja hafi þær verið eðlilegar. „Þetta var kannski pínulítið vanhugsað þótt þetta væri sniðugt. Þar með var það að sjálfsögðu ekkert mál og þeir fóru inn á gistiheimili en þeir hafa enn aðgang að togaranum og um borð í honum er líkamræktarsalur og annað sem þeir nýta sér og eru mjög ánægðir með.“ Væsir ekki um menn um borð Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir að mennirnir hafi að undanförnu borðað um borð. „Það er hins vegar þannig að sá sem gistir um borð í fiski- skipi er í fullboðlegum vistarverum.“ Aðspurður segir Sigurgeir Brynjar að um sé að ræða færeyskan frysti- togara sem eitt sinn hafi verið í eigu fyrirtækisins. „Þetta er skip sem menn búa í heilan mánuð og væsir ekki um neinn.“ Páll segir enda að athugasemd- irnar sem bárust frá þeim aðilum sem hafi með málefnin að gera hafi ekki snúist um að það færi illa um menn um borð. Tekið fyrir gistingu „Þetta snýr kannski frekar að því hvort þeir megi gista þarna ef þeir eru ekki skráðir í áhöfn. Ég skil mjög vel, þegar maður hugsar það, að það komi svo- leiðis athugasemd. Ég stakk upp á því að hitta þessa aðila frá bænum og fá að vita hverjar athugasemdir þeirra væru svo það kæmi ekki út eins og við ætluðum að vaða yfir einhvern. Því það var ekki meiningin. Okkur fannst þetta sniðugt og körlunum líka, en þeir geta nýtt sér aðstöðuna þarna en það er alveg búið að stoppa að þeir gisti þarna. Maður verður að bera virðingu fyrir því,“ segir Páll að lokum. Framkvæmdir á fullu Stjórn Vinnslustöðvarinnar sam- þykkti í byrjun árs að hefja fram- kvæmdir við uppbyggingu nýs uppsjávarfrystihúss, mjöl- og frysti- geymslu ásamt tveimur hráefnis- tönkum. Eykt hóf framkvæmdir við frystihúsið í febrúar. Sigurgeir Brynjar segir framkvæmdir vera í fullum gangi og að vonir standi til að fyrsta áfanga verði lokið í haustbyrjun. n n Vinna við byggingu fiskvinnsluhúss Vinnslustöðvarinnar n Fluttir á gistiheimili Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is „Þetta er skip sem menn búa í heilan mánuð og væsir ekki um neinn. Sniðug lausn Framkvæmdastjóri Eyktar segir að mönnum hafi þótt lausnin sniðug en, eftir á að hyggja, vanhugsuð. Komast í ræktina Erlendir verkamenn sem gistu í færeyska frystitogaranum hafa fært sig um set yfir á gistiheimili eftir að athugasemdir voru gerðar við dvöl þeirra um borð. Mynd úr SaFni Gagnrýnir nýjar flugvélar Flugfélags Íslands Þingmaður var í vélinni þegar nauðlenda þurfti í Keflavík É g gagnrýni aðallega að allt sé sett úr skorðum. Það er eins og kerfið hjá félaginu sé ekki undir þetta búið,“ segir varaformaður þingflokks VG, Bjarkey Olsen Gunnars- dóttir, um nýjan flugvéla- flota Flugfélags Íslands. Bjarkey segist hafa ferð- ast einu sinni með einni af nýju flugvélum flugfélags- ins, það hafi verið ferðin þegar þurfti að nauðlenda í Keflavík. „Ég ferðast að minnsta kosti tvisvar sinnum í viku, það er mikið sama fólk- ið, margir eru ekki sáttir.“ Ekki náðist í Árna Gunnarsson, framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands, vegna málsins en að sögn Bjarkeyjar ferðast hún með samstarfsfélaga tvisvar í viku, sem sé frekar flug- hræddur. „Tilfinning fólks er eins og þetta sé ekki traustvekjandi. Dóttir mín flaug norður núna í gær og flugvélin hennar átti að koma klukkan hálf níu en kom ekki fyrr en um mið- nætti.“ Í samtali við blaða- mann sagði Bjarkey að þegar Fokker-vélarnar voru teknar í gagnið, þá hafi verið svipaðir byrjun- arörðugleikar. Samt sem áður þurfi að gera betur. „Flugfélagið segir að það sé klárt með þetta, en það virkar á mann eins og svo sé ekki,“ segir Bjarkey. n Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Varaformaður þingflokks Vinstri grænna. Mynd VGTilboð þér að kostnaðarlausu. Uppl. í síma: 820 8888 eða markmid@markmid-ehf.is ALHLIÐA FASTEIGNAVIÐHALD Smíðavinna · Pípulagnir · Raflagnir Málningavinna · Múrvinna · Flísalagnir Hellulagnir · Jarðvinna · Lóðavinna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.