Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Page 11
Fréttir 11Vikublað 30.–31. mars 2016 Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500 Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526 www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is IVECO Da ily 4x4 - tilbúinn í hvað se m er! „Hann hélt fast í hana og öskraði á hana“ n Guðrún var kýld þegar hún reyndi að aðstoða unga konu É g var auðvitað í smá sjokki eftir þetta en ég sé engan veginn eftir því að hafa skipt mér af,“ segir Guðrún Ásta Þórðardóttir sem á sunnudagsnótt varð fyrir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur þegar hún hugðist koma í veg fyrir átök á milli ungs pars. Guðrún hlaut þónokkra áverka en segist vera fegin því að hafa hugsanlega komið í veg fyrir líkamsárás á aðra unga konu. Brást ókvæða við „Þetta var á milli þrjú og hálf fjögur aðfaranótt mánudags,“ segir Guðrún í samtali við dv.is. „Ég var að ganga fram hjá skemmtistaðnum Fredrik­ sen og var að fara að hitta vini mína, en það voru ekki margir á ferli um þetta leyti. Ég sá þá par hinum megin við götuna, á bílastæðinu við Lista­ safn Reykjavíkur og það var augljós­ lega að rífast. Ég sá að strákurinn var harkalegur við stelpuna, hann hélt fast í hana og öskraði á hana og á meðan var hún grátandi. Það fyrsta sem mér datt í hug var að reyna að stoppa hann, þannig að ég gekk upp að þeim og spurði hann hvað hann væri eiginlega að gera. Því næst sagði ég honum að láta hana í friði.“ Hún segir piltinn þá hafa brugð­ ist ókvæða við. „Strákurinn varð strax reiður, líklega af því að hann vissi upp á sig sökina. Hann hrinti mér harkalega í jörðina og á meðan horfði stelpan á allt saman miður sín og öskraði á hann að hætta,“ segir Guð­ rún því næst og bætir við að hennar ósjálfráðu viðbrögð hafi verið að rjúka á fætur og ýta við piltin­ um. „Þá tekur hann í mig og kýlir mig fast í andlitið svo að ég dett harkalega í jörðina. Því næst hleypur hann í burtu.“ Í miklu uppnámi Í kjölfarið hjálpaði Guðrún stúlk­ unni að hafa uppi á vinkonum sín­ um sem voru staddar á skemmti­ staðnum Hressó. „Hún var í rosalegu miklu uppnámi og lítið hægt að tala við hana. Mér skildist á vinkonum hennar að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem þessi strákur réðist á utan­ aðkomandi manneskju sem reyndi að stoppa hann,“ segir hún en atvikið náðist ekki á öryggismyndavélar. Hún kveðst vera fegin að hafa stigið inn í og stöðvað rifrildið, jafn­ vel þó að það hafi kostað hana þessi átök. Hún hvetur alla til að skipta sér af þegar fólk sé of­ beldi beitt. „Ég vil endi­ lega hvetja fólk til að grípa inn í þegar það verður vitni að ein­ hverju svona. Það er auðvelt að ganga bara fram hjá og hugsa að þetta komi manni ekki við. Það er aldrei vita hvað hefði getað gerst þarna á milli þeirra,“ segir hún. „Ég er með brákað nef og mér er illt í því, svo er vont að ganga út af verk í hnénu. Ég á líka erfitt með hreyfa olnbogann eftir þetta,“ segir hún aðspurð um líðan sína eftir at­ vikið. Hún segist hafa rætt við lög­ regluna á sunnudagsnóttina og verið ráðlagt að fá áverkavottorð ef hún vilji leggja fram kæru. Annars sé lítið hægt að gera. Guðrún segist þó ekki vera búin að gera upp hug sinn. n Auður Ösp Guðmundsdótir audur@dv.is Vildi hjálpa Guðrún Ásta var að ganga í miðborginni þegar hún hitti parið. „Ég vil endilega hvetja fólk til að grípa inn í þegar það verður vitni að ein- hverju svona. Eftir fallið Hér má sjá áverka Guðrúnar eftir fallið í jörðina. Hún er einnig brákuð á nefi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.