Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Síða 12
12 Fréttir Vikublað 30.–31. mars 2016 Bláberjabragð Vanillubragð Jarðarberjabragð Bragðgo skyr að vestan É g trúi á hið góða í fólki og treysti því þessum aðila, sérstaklega af því að erlent stórfyrirtæki, Air­ bnb, átti að annast milligöngu með leiguna. Einnig spilaði inn í að mig sárvantaði þak yfir höfuðið og leigumarkaðurinn er þess eðl­ is að allt sem er bitastætt fer í hvelli,“ segir Kamilla Duong, sem lenti í klóm svikahrappsins „Christians Thurner“ sem herjað hefur á notendur bland.is með auglýsingum um íbúðir til leigu. DV hefur fjallað ítarlega um svika­ hrappinn undanfarið. Kamilla milli­ færði um 315 þúsund krónur á er­ lendan bankareikning, upphæðin var tekin út af reikningi hennar en komst ekki alla leið í hendur svikahrappsins. Haft mikið fyrir hverri krónu „Þetta er mikið áfall enda með öllu óljóst hvort að ég fái peningana mína aftur,“ segir Kamilla. Hún flutti til Ís­ lands frá Víetnam árið 1993 og hefur þurft að hafa mikið fyrir hverri krónu alla tíð. „Þegar ég kom til Íslands þá tók ég að mér alla vinnu sem að ég gat fundið, meðal annars við þrif og vinnu á veitingastöðum. Ég ákvað einnig að spara peninga í samgöngukostnað og því fór ég um allt höfuðborgarsvæðið fótgangandi, sama hvernig viðraði,“ segir Kamilla. Með sparsemi og elju hefur hún náð að koma ár sinni vel fyrir borð. Í dag er hún íslenskur ríkis­ borgari og rekur veitingastaðinn Krua Mai Thai í Spönginni sem og Háteigs­ búðina við Rauðarárstíg. Airbnb átti að hafa milligöngu „Ég hef aldrei tíma til þess að fylgjast með fréttum og því fór fyrri umfjöllun um svikahrappinn fram hjá mér,“ segir Kamilla. Hún hafði fyrst samband vegna íbúðarinnar, sem var sögð vera í Lönguhlíð 19, í lok febrúar og vildi ólm tryggja sér hana sem fyrst. „Verðið var mjög hagstætt, 105 þúsund krón­ ur á mánuði. Ég vildi að sjálfsögðu fá að skoða íbúðina en það var ekki hægt því eigandinn var staddur erlendis. Það var gefið í skyn að margir væru um hituna og því samþykkti ég að millifæra þriggja mánaða leigu, sam­ tals 315 þúsund, til Airbnb sem átti að hafa milligöngu um húsaleiguna. Ég treysti því enda er um stórt alþjóð­ legt fyrirtæki að ræða,“ segir Kamilla. Hún átti að fá lyklana senda þegar greiðslan hefði borist Airbnb og fá nokkra daga til þess að gera upp hug sinn, hvort henni líkaði íbúðin eða ekki. „Ef eitthvað hefði verið í ólagi þá átti ég að geta skilað lyklunum og fengið endurgreitt. Eigandi íbúðar­ innar átti ekki að fá greitt fyrr en ég væri búin að ganga úr skugga um að allt væri í lagi,“ segir Kamilla. Stígur fram til að vara aðra við Hún upplifir mikla skömm fyrir að hafa látið glepjast af gylliboðum svikahrappsins en stígur fram til þess að aðrir geti lært af reynslu henn­ ar. „Það eru tvö atriði sem mikil­ vægt er að fólk sé meðvitað um og ég lærði af þessari reynslu. Í fyrsta lagi þá tekur Airbnb ekki við millifærsl­ um í gegnum banka, aðeins kreditkortum,“ segir Kamilla. Þá átt­ aði hún sig á því eftir að upp komst um svik­ in að hin fagmannlegu svör frá Airbnb komu úr tölvupóstfanginu airbnb@consultant. com sem tengist ekki Airbnb. „Þegar ég fer yfir samskipt­ in okkar núna þá sé ég ýmiss konar smáatriði, eins og varðandi tölvu­ póstfangið, sem hefðu átt að hringja viðvörunarbjöllunum. Ég vona bara að þetta hjálpi öðrum til þess að vera á varðbergi,“ segir Kamilla. Hún ætlar að kæra svikin til lögreglu. Var í samskiptum við blaðamann Eins og áður segir hefur DV áður fjallað um svikahrappinn „Christian Thurner“. Til að mynda var blaðamaður í sam­ bandi við annan að­ ila fyrir áramót sem gekk undir nafninu Phillip Bunse. Nokkru síðar setti sami blaða maður sig í samband við áður­ nefndan Christian Thurner og voru svör þeirra keimlík, nánast stöðluð. Bunse bjó í London, þar sem hann var grafískur hönnuður, en Thurner segist vera verkfræðingur í Vínarborg. Bréfa­ samskiptin voru bæði vel stíluð og vingjarnleg. „Leigusölunum“ virtist mikið í mun að fá góðan leigjanda og gáfu því miklar upplýsingar um sjálfa sig. Í báðum tilfellum kom fram að vegna vinnu ætti maðurinn erfitt með að ferðast, hann ætti dóttur á þrítugsaldri, sem hefði búið á Ís­ landi og þess vegna ætti hann íbúð hér á landi. Þá væru þau dýravinir og þeim væri því alveg sama þó að dýraeigandi tæki íbúðina á leigu. Allt var til alls í íbúðunum, sjónvarp, net og rafmagn átti að vera innifalið auk þess sem íbúðin hafði verið inn­ réttuð með fallegum og vönduðum munum. Að auki buðu báðir mikið leiguöryggi, eitthvað sem er fátítt á ís­ lenskum leigumarkaði. n Millifærði þriggja mánaða leigu á erlendan svikahrapp n Óvíst hvort hún fær peningana tilbaka n Upplifir mikla skömm Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is „Eigandi íbúðar- innar átti ekki að fá greitt fyrr en ég væri búin að ganga úr skugga um að allt væri í lagi. Af bland.is Auglýsingin hér að ofan varðar hina meintu íbúð sem Kamilla reyndi leigja. Hún hefur verið fjarlægð af síðunni. Samskipti við Christian Thurner 16. desember 2015 Margir berjast um hituna Fólk getur orðið ansi örvæntingarfullt á erfiðum leigumarkaði. Mynd SigTryggur Ari 4.mars 2016

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.