Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Side 14
14 Fréttir Erlent Vikublað 30.–31. mars 2016
Þ
að munu líða nokkrir
mánuðir áður en hægt
verður að opna flugvöllinn
Zaventem í Brussel að
fullu aftur, segir fram-
kvæmdastjóri hans. 800 starfsmenn
mættu aftur til vinnu á mánudag eftir
hryðjuverkaárásina á þriðjudaginn
í síðustu viku. Eyðileggingin á flug-
vellinum er slík að aðeins verður
hægt að opna 20 prósent hans fyrir
ferðalanga í dag, miðvikudag.
31 lét lífið í hryðjuverkaárásum
hryðjuverkasamtakanna Daesh,
sem kenna sig við Íslamska ríkið.
Auk þess létust þrír árásarmenn
sem búnir voru sprengjum sem þeir
sprengdu í loft upp. Formleg kennsl
hafa verið borin á 28 fórnarlömb. 15
manns létust í árásinni á flugvöllinn
en 13 í árás sem gerð var á jarðlesta-
kerfi borgarinnar, á lestarstöð rétt
við höfuðstöðvar Evrópusambands-
ins. 96 manns eru enn á sjúkrahúsi,
sárir eftir árásirnar. Enn á eftir að
bera kennsl á þrjú fórnarlömb.
„Það munu líða margir mánuðir
áður en við getum opnað flugvöll-
inn að fullu að nýju,“ sagði Arnaud
Feist, framkvæmdastjóri flugvallar-
ins. Eins og sakir standa er starfs-
fólk flugvallarins að gera prófanir
og kanna hvaða hluta hans er hægt
að opna aftur öryggisins vegna.
Sett hefur verið upp tímabundin
bygging til að taka á móti farþeg-
um, en eins og fram hefur komið
sprungu sprengjurnar í brottfarar-
sal flugvallarins. Venjulega fara um
5.000 manns á klukkustund í gegn-
um flugvöllinn, en búist er við því
að aðeins 800-1.000 geti gert það á
næstu vikum. Það verður í höndum
stjórnvalda í Belgíu að ákveða
hvernig verður staðið að opnun
flugvallarins að fullu að nýju. Það
þarf enda að huga að mörgu, endur-
byggja byggingar og setja upp allar
innréttingar.
Á þriðjudag, viku eftir árásirnar,
mætti starfsfólk Evrópusambandsins
aftur til vinnu en öryggisviðbúnaður
er mikill í borginni. Gera má ráð fyrir
því að leitað verði á fólki við opinberar
byggingar og ítarlegar en áður. Þá
verður einnig leitað í bílum við Evrópu-
þingið. Mörgum viðburðum sem halda
átti í borginni hefur verið frestað.
Lögreglan í Brussel leitar nú
manns sem sést á öryggismynd-
bandi úr brottfararsal flugvallarins.
Hann er talinn hafa verið einn
árásarmannanna, en hann
stendur við hlið tveggja þeirra með
farangurs kerru. Hann er talinn hafa
flúið af vettvangi. n
Eyðilegging
Eyðileggingin er mikil
í Zaventem. Myndir EPA
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Byrja á að opna
20% vallarins
Margir mánuðir þar til hægt verður að opna Zaventem í Brussel á ný
Leitað
Lögreglan
leitar þessa
manns.
Hann er
talinn hafa
flúið af
vettvangi.
Gerðu daginn
eftirminnilegan
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Bakarameistari & Konditormeistari
Skoðaðu tertuúrvalið á heimasíðunni www.kokulist.is
Gamli GluGGinn úr nýi GluGGinn í
svo einfalt
er það!
súðarvoGur 3-5, reykjavík
GluGGaGerdin@GluGGaGerdin.is
s: 5666630 / GluGGaGerdin.is
»