Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Side 30
22 Menning Vikublað 30.–31. mars 2016 það var starfrækt og sýndi verk úr einkasafni hjónanna til ársins 2007. „Borgin lagði smá pening í að endurgera húsið og borgaði húsa­ leiguna en ég lagði fram vinnu og safneignina. Maður fékk reyndar svolitla gagnrýni á sig vegna þessa fyrirkomulags. Það er voða skrýtið, alltaf ef prívatmaður er að gera eitt­ hvað svona heima á Íslandi þá mætir hann gagnrýni einhvers hóps. Margir listamenn sögðu að ég væri að fá þetta frítt, sem var bara ekki satt. En það var ofboðslega gaman að reka þetta. Þó að ferðamannastraumurinn hafi ekki verið hafinn komu sjötíu þúsund manns í galleríið á þeim fimm árum sem við rákum það,“ segir Pétur. „Það er greinilega þörf fyrir ís­ lenskt nútímalistasafn, ferðamenn og aðrir vilja sjá list þess lands sem þeir eru að heimsækja. Þetta er svo­ lítið slæmt ástand hjá okkur. Það vantar alveg „permanent“ sýningar, til dæmis í Listasafni Íslands. Þú getur aldrei gengið að neinu. Hluti af hlut­ verki Listasafnsins er að sýna íslenska myndlist og verk úr safneigninni. En í dag er þetta bara eins og gallerí, það eru alltaf endalausar sýningar. Þeir hafa náttúrlega ekki hentugt húsnæði – nema kannski til að sýna eldri list, málaralist og slíkt.“ Af hverju er það þér kappsmál að sýna samborgurum þínum verk úr safninu? „Ég held að það sé bara svolítið svipað eins og hjá listamanni, hann langar að sýna það sem hann er að gera. Mér finnst á sama hátt gaman að sýna það sem mér finnst gott. Svo það er ósköp einföld skýring á því af hverju maður gerir það: að miðla fagnaðarer­ indinu,“ segir Pétur og hlær. Ótrúleg flóra listamanna í Berlín Til að miðla fagnaðarerindi nútíma­ listarinnar var opnað nýtt Safn, í Berg­ staðastræti í Reykjavík byrjun árs 2014 og tveimur mánuðum síðar í Berlín, en undanfarin ár hafa Pétur og Ragna búið hluta ársins – fjóra til fimm mánuði – í borginni. „Okkur hafði alltaf langað til að eiga heima einhvers staðar erlendis hluta af ævinni. Svo var þetta hrun heima eitthvað svo svakalega fúlt. Maður var bara orðinn pínuleiður á því að vera heima, að vakna á hverjum morgni með þessi leiðindi. Þetta ástand virðist ekki beint vera að batna, það er alltaf eitthvað nýtt sem kemur upp,“ segir Pétur og smám saman leiðist samtal okkar að ástandinu á leigumarkaðin­ um á Íslandi og vangaveltum um póli­ tíska þátttöku ungs fólks. Okkur er aftur kippt til Berlínar þegar Katharina Wendler, stjórnandi Safnsins, gengur inn og heilsar glað­ lega. Hún býður okkur upp á köku og við hellum upp á kaffi. Pétur segist lengi framan af ekki hafa haft mikinn áhuga á Berlín, listin þar hafi verið of expressjónísk fyrir hans smekk „Áður fyrr var meira að gerast í Köln og Dusseldorf, þessi þrí­ hyrningur sem gekk inn í Belgíu og Holland. Þar var eiginlega vagga nú­ tímalistar, allir frægu Ameríkanarnir byrjuðu að sýna þar. Ég fór alltaf tvisvar eða þrisvar á ári þangað á lista­ messur og til að skoða söfn og gall­ erí. Berlín var aldrei inni í dæminu. En síðan breyttist allt hérna. Berlín varð aftur höfuðborg Þýskalands, og hún er náttúrlega óskaplega ódýr miðað við aðrar borgir í landinu. Mjög margir listamenn fóru svo að koma hingað, Skandinavar, Bretar og Ame­ ríkanar. Núna er alveg ótrúleg flóra af listamönnum hérna í öllum greinum og borgin mjög spennandi og ódýr,“ segir Pétur. Hann segir enn fremur að nokkuð samfélag safnara sé í borginni, gallerí sem sýna verk úr söfnum einstaklinga nokkur, enda séu margir einstaklingar betur í stakk búnir til að kaupa góð verk en fjársvelt listasöfnin. Íslendingar engin myndlistarþjóð „Maður var bara búinn að þramma göturnar hérna svolítið og fannst maður ekki alveg hafa nóg fyrir stafni,“ segir Pétur um stofnun Safns í Berlín. „Svo rákumst við á þetta pláss – við vorum búin að kíkja svolítið víða – og það hentaði mjög vel fyrir sýningar, ekki of stórt og passaði vel fyrir verkin sem við eigum. Ég er líka hættur að vinna níu til fimm, og þá finnst mér gaman að stússast í þessu. Ég hef virkilega gaman af því að kynna góða íslenska listamenn hérna, sem ég hef verið að gera,“ segir hann. „Ég veit hins vegar ekki alveg hvað ég held þessu lengi áfram. Maður náttúrlega yngist ekki og það er svo­ lítið djobb að standa í þessu,“ segir Pétur Hvað verður svo um verkin í kjöl- farið? „Ég veit það ekki, það eru bara áhyggjur. Ég held að það sé að minnsta kosti varla til neins að gefa þetta safn einhverju listasafni heima, það er engin aðstaða til að taka á móti því,“ segir hann og bendir á að oft á tíðum hafi slíkar gjafir einfaldlega grotnað niður í vörslu stofnana, enda séu söfnin illa stödd fjárhagslega og myndlist njóti lítils skilnings meðal þeirra sem út­ hluta úr sameiginlegum sjóðum sam­ félagsins. „Við Íslendingar erum engin mynd­ listarþjóð, við berum litla virðingu fyrir myndlist. Heima er viðhorfið í garð listamanna að þeir eigi að bara að „vinna fyrir sér“. Það er líka oft talað um myndlist eins og þetta séu nýju föt­ in keisarans. Þetta heyrir þú aldrei hér úti. Það er vissulega einungis mjög fá­ mennur hópur sem hefur brennandi áhuga á myndlist annars staðar í heiminum, en þar ekki verið að gera grín að listinni eins og er gert á Íslandi. Þetta sést líka á því að bestu íslensku listamennirnir eru ekki að selja neitt heima, þetta er bara allt í einhverjum sossum og dossum,“ segir Pétur. Einn þeirra íslensku listamanna sem hann furðar sig á að skuli ekki selj­ ast á Íslandi er Bjarni H. Þórarins son, en hinar sérstæðu vísirósir hans auk verka sem unnin voru upp úr hreyf­ ingu taflmanna í skákeinvígi Bobby Fischer og Boris Spassky í Reykjavík eru nú til sýnis í Safni, auk verks eftir Hanne Darboven, sem var einhver allra fremsta hugmyndalistakonan í Þýskalandi á síðustu öld. „Fólk á opnunni var alveg svaka­ lega hrifið af verkunum hans Bjarna. Ég bjóst ekkert endilega við því, af því að hann er auðvitað ekki allra. Hann er samt svaka sniðugur og flottur lista­ maður. Fólk heima áttar sig ekki endi­ lega á því hvað hann er snjall,“ segir Pétur. n Visiology/ Methodology, sýning á verkum Bjarna H. Þórarinssonar og Hanne Darboven, stendur yfir í Safni Berlín, til 30. júlí, en safnið er opið á föstudögum og laugardögum frá kl. 13.00 til 17.00. „Við Íslendingar erum engin mynd- listarþjóð, við berum litla virðingu fyrir myndlist. Sýnir einaksafnið í Berlín og Reykjavík Pétur Arason fyrir framan verk eftir þýsku hugmyndalistakonuna Hanne Darboven, sem er sýnt um þessar mundir í Safni í Berlín. Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi. Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna hornhimnunnar gegn þurrki. Droparnir eru án rotvarnarefna og má nota með linsum. Ég fór í laseraðgerð hjá Sjónlagi í lok maí 2015. Keypti mér Thealoz dropana eftir aðgerðina og var mjög ánægð, ákvað samt að prufa að kaupa mér ódýrari dropa og fann rosalega mikinn mun á gæðum. Þessir ódýrari voru bara ekki að gera neitt fyrir mig og þurfti ég að nota mikið meira magn. Mælti með dropunum við tengdamömmu og er hún alsæl með Thealoz dropana. Elín Björk Ragnarsdóttir Þurrkur í augum? Thealoz augndropar Fæst í öllum helstu apótekum. Mikið úrval af fermingagjöfum Gullkistan Frakkastígur 10 • 101 Reykjavík • Sími: 551-3160 gullkistan@vortex.is • thjodbuningasilfur.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.