Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Page 36
28 Fólk Vikublað 30.–31. mars 2016 Litabreytingar í húð Ör / húðslit Húð með lélega blóðrás / föl húð Öldrun og sólarskemmdir í húð / tegjanleiki húðar Blandaða og feita húð / stíflaðir fitukirtlar Hin upphaflega JURTA HÚÐENDURNÝJUN Árangur um allan heim í yfir 50 ár. Máttur náttúrulegrar fegurðar www.vilja.is Ö ll dauðsföll eru vissulega sorgleg og svipleg dauðs- föll vekja stundum athygli fjölmiðla. Svipleg dauðsföll þekktra einstaklinga eru þar að sjálfsögðu í sérflokki, enda þá ekki bara vinir og ættingjar sem syrgja, heldur einnig aðdáendur. Þá koma gjarnan fram ýmsar getgátur og sam- særiskenningar um hvernig dauðs- fall viðkomandi bar að og þær kenn- ingar lifa oft góðu lífi meðal manna þrátt fyrir að rétt dánarorsök hafi verið kunngjörð. n Svipleg dauðSföll Stjarnanna n Sumir deyja með voveiflegri hætti en aðrir Fjölskylduharmleikur Dauði tónlistarmannsins Marvins Gaye var skelfilegur fjölskylduharmleikur. Eftir að hafa glímt við vímuefnafíkn um árabil flutti Gaye heim til foreldra sinna, en sú ákvörðun átti eftir að draga dilk á eftir sér. Þann 1. apríl árið 1984 lenti hann í deilum við föður sinn út af reikningi frá skattinum. Það kom til handalögmála á milli feðganna sem enduðu þannig að faðir hans greip byssu og skaut son sinn þrisvar í brjóstið með byssu sem hann hafði gefið honum. Faðirinn fullyrti fyrir dómi að um sjálfsvörn hefði verið að ræða en hann var að lokum dæmdur fyrir manndráp. Krufningar- skýrslan innsigluð Eftir að hafa misnotað lyf í fjölda ára fannst söngvarinn Elvis Presley meðvitundarlaus á baðherberginu á Graceland-setrinu þann 16. ágúst 1977. Farið var með hann á spítala þar sem hann var úrskurðaður látinn. Margir telja þó að hann hafi þegar verið látinn þegar hann fannst. Opinber dánarorsök Presleys er hjartastopp af völdum hjartsláttartruflana. Faðir hans, Vernon Presley, lét hins vegar innsigla krufningarskýrsluna þar til árið 2027, eða í 50 ár. Talið er nokkuð líklegt að kokteill af lyfseðils- skyldum lyfjum hafi valdið hinum óreglulega hjartslætti sem varð til þess að hjarta Elviss stoppaði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.