Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2016, Blaðsíða 8
8 Fréttir Vikublað 12.–14. apríl 2016
Brjóstapúðahneykslið
kostaði ríkið 61 milljón
n Mun minna en áætlanir gerðu ráð fyrir n 131 kona lét fjarlægja PIP-silíkonpúða á Landspítalanum
K
ostnaður íslenska ríkisins
vegna PIP-verkefnisins svo-
kallaða nam rúmlega 61
milljón króna. Verkefnið fól
í sér að bjóða öllum kon-
um sem fengið höfðu ígræddar PIP-
brjóstafyllingar hér á landi upp á
ómskoðun og að fjarlægðir yrðu si-
líkonpúðarnir umdeildu árið 2012.
Kostnaður ríkisins vegna þessa var
talsvert minni en jafnvel hóflegustu
áætlanir gerðu ráð fyrir. 131 kona lét
fjarlægja hina gölluðu púða úr brjóst-
um sínum á Landspítalanum.
350 konur fóru í skoðun
Kostnaðurinn við verkefnið kom í ljós
í svari heilbrigðisráðherra við fyrir-
spurn Willums Þórs Þórssonar á Al-
þingi á dögunum. Willum Þór lagði
fyrir nokkru síðan fram fyrirspurnir
til allra ráðherra varðandi kostnað
ráðuneyta þeirra vegna sérfræði-,
ráðgjafar- og kynningarstarfa á árun-
um 2010, 2011 og 2012, eða í tíð síð-
ustu ríkisstjórnar. Þar kemur fram í
sundurliðuðu svari ráðherra að PIP-
verkefnið hafi kostað 61,4 milljónir
króna. 11,2 milljónir rúmar fóru til
Krabbameinsfélags Íslands en konum
með PIP-brjóstapúða var boðið að
fara í ómskoðun hjá Leitarmiðstöð
Krabbameinsfélagsins frá 2. febrúar
til 31. maí 2012. 350 konur fóru í slíka
skoðun og reyndust alls 208 konur
vera með leka púða.
50 milljónir í brottnám
Rúmlega 50,2 milljónir króna fóru síð-
an til Landspítalans vegna verkefnis-
ins. Konum stóð til boða að láta fjar-
lægja PIP-púða sína með aðgerð á
vegum Landspítala en ísetning nýrra
brjóstpúða var ekki framkvæmd af
spítalanum þar sem brottnám PIP-
púðanna var álitið nauðsynleg heil-
brigðisþjónusta en ísetning nýrra
púða taldist fegrunaraðgerð.
Konur sem kusu að fá nýjar brjósta-
fyllingar í stað þeirra gömlu urðu að
greiða allan kostnað sjálfar og láta
gera það á einkastofum.
Í tilkynningu á vef velferðarráðu-
neytisins í byrjun febrúar 2012, þar
sem verkefnið var kynnt, kom fram
að áætlaður kostnaður ríkisins vegna
þessa yrði á bilinu 90–150 milljónir
króna. Var gert ráð fyrir að það myndi
ráðast af umfangi einstakra aðgerða
og því hve margar konur myndu
nýta sér boð stjórnvalda. Ljóst var á
þeim tíma að um 400 konur hefðu
fengið PIP-brjóstafyllingar á Íslandi
á árunum 2000–2010. Var gert ráð
fyrir að einhverjar þeirra hefðu þegar
verið fjarlægðar, einhverjar konur
væru ekki sjúkratryggðar hér á landi
og þyrftu því að greiða sjálfar kostnað
vegna aðgerða að fullu. Samkvæmt
upplýsingum frá velferðarráðu-
neytinu var enginn frekari kostnaður
vegna PIP-verkefnisins en fram
kemur í svari ráðherra. Ljóst er því að
brjóstapúða aðgerðin kostaði tæpum
30 milljónum króna minna en hófleg-
ustu áætlanir gerðu ráð fyrir. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is PIP-hneykslið í hnotskurn
Iðnaðarsilíkon og aukin rofhætta
Það var í ársbyrjun 2012 sem kom í ljós að
franska fyrirtækið Poly Implant Prothese
(PIP) hefði vísvitandi fyllt silíkon-
brjóstapúða sína með iðnaðarsilíkoni. Fyrir
vikið væri mun meiri hætta á að púðarnir
rofnuðu. Síðar bárust fréttir af því að
silíkonið væri í þokkabót mjög krabbameins-
valdandi.
Engar læknisfræðilegar né eiturefna-
fræðilegar sannanir fundust hins vegar
fyrir því að fjarlægja þyrfti óskemmda
PIP-silíkonpúða úr brjóstum kvenna, og að
þeir væru ekki skaðlegri heilsu fólks þegar
þeir rifnuðu en aðrir sambærilegir púðar,
samkvæmt niðurstöðu rannsóknarnefndar
á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins árið 2014. Niðurstaða nefndarinnar
var sambærileg niðurstöðum breskra sér-
fræðinga sem komust að þeirri niðurstöðu
að púðarnir umdeildu væru ekki krabba-
meinsvaldandi, en hins vegar líklegri til að
springa en hefðbundnir púðar af sama tagi.
Yfirmaður og stofnandi PIP, Jean-Claude
Mas, var í lok árs 2013 dæmdur í fjögurra
ára fangelsi í Frakklandi vegna málsins. Hér
heima beindist kastljósið að lýtalækninum
Jens Kjartanssyni sem var sá eini sem flutti
inn og notaði umrædda púða á umræddu
tímabili. Íhuguðu viðskiptavinir hans að leita
réttar síns gagnvart honum og íslenska ríkinu
en ekkert varð úr. Ein kona höfðaði einkamál
vegna málsins sem vísað var frá dómi.
Franskur dómstóll komst síðan í nóvem-
ber 2013 að því að þýskt eftirlits- og vottun-
arfyrirtæki, TÜV Rheinland, bæri ábyrgð á
því að PIP-púðarnir fóru í umferð. Þúsundir
kvenna, þar af fjölmargar íslenskar konur,
tóku þátt í hópmálsókn gegn fyrirtækinu.
PIP-málið kostaði sitt Kostnaður íslenska ríkisins vegna aðgerða í kjölfar PIP-
brjóstapúðahneykslisins var minni en upphaflega hafði verið gert ráð fyrir. Ómskoðun og
brottnám púðanna kostaði 61 milljón króna.