Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2016, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2016, Blaðsíða 18
Vikublað 12.–14. apríl 20162 Brúðkaup - Kynningarblað Belgíska súkkulaðitertan getur staðið í veislusalnum alla veisluna Kökulist Hafnarfirði og Reykjanesbæ Þ etta er belgísk súkkulaði­ terta, safarík, blaut og með kókosfyllingu. Hún er hrikalega góð, bæði sem konfektmoli með kaffinu og einfaldlega sem eftirréttur með ís eða rjóma. Þessi terta þolir að standa alla veisluna.“ Þetta segir Jón Arilíusson hjá Kökulist en þessi girnilega súkkulaðiterta er óneitanlega þægileg í meðförum og gleður augu veislugestanna allan tímann. Jón bendir líka á að súkkulaðigerð sé á meðal þess sem Belgar eru þekktastir fyrir, sem ætti að vera góð vísbending um gæði tertunnar og hvað hún er gómsæt. En meðfærileikinn er þó líklega það sem gerir hana einstaka: „Í staðinn fyrir að flotti eftir­ rétturinn þurfi að standa í kæli alla veisluna getur tertan notið sín í veislusalnum og glatt augu gesta áður en þeir gæða sér á henni. Þetta einfaldar mjög flækjustigið hjá þeim sem halda brúðkaups­ veislu,“ segir Jón. Kökulist er auk þess með allt annað í brúðkaupsveisluna, til dæmis snittur, grillspjót, bakkelsi og margt fleira, og veitir heild­ stæða veisluþjónustu fyrir brúð­ kaup. n Kökulist ehf. Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar Valgeirsbakarí, Hólagötu í Reykjanesbæ. Sími: 555-6655 og 662-5552 kokulist@kokulist.is Á heimasíðunni www.kokulist.is eru ítarlegri upplýsingar um veislu- rétti í máli og myndum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.