Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2016, Page 18
Vikublað 12.–14. apríl 20162 Brúðkaup - Kynningarblað
Belgíska súkkulaðitertan getur
staðið í veislusalnum alla veisluna
Kökulist Hafnarfirði og Reykjanesbæ
Þ
etta er belgísk súkkulaði
terta, safarík, blaut og
með kókosfyllingu. Hún er
hrikalega góð, bæði sem
konfektmoli með kaffinu
og einfaldlega sem eftirréttur með
ís eða rjóma. Þessi terta þolir að
standa alla veisluna.“ Þetta segir
Jón Arilíusson hjá Kökulist en
þessi girnilega súkkulaðiterta er
óneitanlega þægileg í meðförum
og gleður augu veislugestanna
allan tímann. Jón bendir líka á að
súkkulaðigerð sé á meðal þess sem
Belgar eru þekktastir fyrir, sem ætti
að vera góð vísbending um gæði
tertunnar og hvað hún er gómsæt.
En meðfærileikinn er þó líklega
það sem gerir hana einstaka:
„Í staðinn fyrir að flotti eftir
rétturinn þurfi að standa í kæli
alla veisluna getur tertan notið sín
í veislusalnum og glatt augu gesta
áður en þeir gæða sér á henni.
Þetta einfaldar mjög flækjustigið
hjá þeim sem halda brúðkaups
veislu,“ segir Jón.
Kökulist er auk þess með allt
annað í brúðkaupsveisluna, til
dæmis snittur, grillspjót, bakkelsi
og margt fleira, og veitir heild
stæða veisluþjónustu fyrir brúð
kaup. n
Kökulist ehf.
Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar
Valgeirsbakarí, Hólagötu í
Reykjanesbæ.
Sími: 555-6655 og 662-5552
kokulist@kokulist.is
Á heimasíðunni www.kokulist.is
eru ítarlegri upplýsingar um veislu-
rétti í máli og myndum.