Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Side 2
Helgarblað 8.–11. júlí 20162 Fréttir
íslensk
framleiðsla
Án
viðbætts
sykurs
Gott í boostið, matargerð, baksturinn og fleira
Al Thani-fangar miðla
fréttum á Facebook
Stefnt á að opna vefsíðuna dagsljos.is með umfangsmiklum gögnum um málið
F
yrrverandi stjórnendur
Kaupþings, sem afplána nú
dóma sem þeir hlutu fyrir
aðild sína að Al Thani-mál-
inu svokallaða, hafa stofnað
Facebook-síðu sem miðlar nú efni,
skrifum og fréttum tengdum mál-
inu. Stefnt er á að opna vefsíðu í
haust þar sem birt verða gögn tengd
málinu.
Mannréttindadómstóll Evrópu
krafði á dögunum íslensk stjórn-
völd svara vegna málsmeðferðar-
innar í Al Thani-málinu en dóm-
stóllinn mun ekki taka afstöðu til
þess hvort mál fjórmenninganna
sem dóm hlutu verði tekið til efnis-
legrar meðferðar fyrr en þau berast.
Nýstofnað Dagsljós
Facebook-síðan heitir Dagsljós og
var stofnuð þann 3. júlí síðastliðinn.
Hún er skilgreind sem fjölmiðla-
og/eða fréttasíða á samskipta-
miðlinum og hefur þegar deilt
fjöl mörgum fréttum af Al Thani-
málinu sem birst hafa að undan-
förnu, sem og skrifum Sigurðar
Einarssonar, fyrrverandi stjórnar-
formanns Kaupþings, af Facebook.
Notendur Facebook urðu var-
ir við síðuna þar sem hún birt-
ist á tímalínu þeirra með kostaðri
dreifingu, sem er gjarnan notuð til
að vekja athygli á nýjum hópum
og síðum og krækja í fylgjendur.
Nokkrir tugir einstaklinga fylgdu
síðunni nokkrum dögum eftir að
hún var stofnuð.
Gagnaveita ekki fjölmiðill
„Þessi Facebook-síða er til að halda
utan um fréttir sem fluttar eru af
þessu máli þessa dagana. Það er
pælingin með henni,“ segir Freyr
Einarsson, sem haldið hefur utan
um verkefnið fyrir hönd fjórmenn-
inganna, í samtali við DV. Freyr
er jafnframt skráður eigandi léns-
ins dagsljos.is en aðspurður hvort
vefsíðan verði nýtt á sama hátt
og Facebook-síðan segir Freyr að
vefurinn verði líklega opnaður með
haustinu en hugmyndin sé ekki að
verða fjölmiðill.
„Dagsljós er meira hugsað sem
gagnaveita eða gagnasafn þar sem
við höldum utan um fréttir og gögn
af málinu. Það kemur í ljós síðar
hvenær vefurinn verður opnaður
en hann verður gagnasafn þar sem
fólk getur kynnt sér gögn málsins.“
Verkefni fjórmenninganna
Facebook-síðan er í lýsingu sögð
„samstarfsverkefni áhugamanna
um réttlæti“ í Al Thani-málinu
og því greinilegt að þarna var um
ákveðna hagsmunagæslu að ræða.
Freyr segir aðspurður um lýsinguna
að það sé ekkert óeðlilegt við það,
en „þetta sé ákveðið verkefni sem
Hreiðar Már Sigurðsson, Ólafur
Ólafsson, Sigurður Einarsson og
Magnús Guðmundsson standa að.“
Vísbending í nafninu
Aðspurður um nafnið Dagsljós
segir Freyr það vísan í að ýmislegt
hafi ekki komið fram í dagsljósið
varðandi Al Thani-málið.
„Það er hluti af ástæðu þess að
Mannréttindadómstóllinn er að
skoða þetta mál, að það eru gögn og
annað sem hefur ekki komið fram í
dagsljósið, enn sem komið er. Það
er því kannski hugmyndin á bak við
nafnið, að kalla öll gögn varðandi
málið fram í dagsljósið.“
Fjórmenningarnir, sem hlutu
þunga dóma fyrir aðkomu sína að
Al Thani-viðskiptunum afplánuðu
fyrsta árið af dómum sínum á Kvía-
bryggju en eru nú allir komnir á
áfangaheimilið Vernd eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Dagsljósið Fjórmenningarnir sem dóma hlutu í Al Thani-málinu hafa stofnað Facebook-síðu þar sem fréttum og skrifum tengdum mála-
rekstri þeirra er deilt. Stefnt er á að opna vefsíðu með sama nafni síðar þar sem gögn verða gerð aðgengileg.„Verður gagnasafn
þar sem fólk getur
kynnt sér gögn málsins.
Vildi senda hann til Íslands
Ráðgjafi Hillary vildi refsa hlutdrægum diplómata
R
áðgjafi Hillary Clinton hæddist
að stöðu sendiherra Banda-
ríkjanna á Íslandi, í sam-
skiptum sínum við utanríkis-
ráðherrann fyrrverandi vorið 2012.
Þetta er á meðal þess sem finna má
í tölvupóstsamskiptum Hillary, sem
Wikileaks hefur birt að undanförnu.
Í tölvupóstsamskiptum sem
gengu á milli tveggja ráðgjafa
Hillary, Sidney Blumenthal og Pat-
rick Lang, undir yfirskriftinni „Just a
note of skepticism“ eða „Bara svo-
lítil tortryggni“ veltir Lang því upp
hvort stjórnvöld eigi að leggja trún-
að á það mat sem Ísraelsmenn
leggja á herstyrk Hizbollah í Sýr-
landi. Þetta var í mars 2012 en átök-
in blóðugu í Sýrlandi höfðu staðið
yfir síðan í apríl 2011. „Eigum við að
taka þeirra orð trúanleg? Hvað segir
leyniþjónustan?“ Í orðsendingunni
er í lokin minnst á diplómatinn
Jeffrey Feltman, yfirmann pólitískrar
deildar Sameinuðu þjóðanna. Lang
spyr hvers vegna hann sé enn í starfi,
þar sem hann sé augljóslega hlut-
drægur. „Vantar okkur ekki nýjan
sendiherra á Íslandi?“ Lang gerir
með öðrum orðum að tillögu sinni
að refsa eða taka téðan Feltman úr
umferð með því að senda hann til Ís-
lands.
Svar Hillary við vangaveltunum er
stutt. „Engin ástæða til tortryggni“. n
baldur@dv.is
Hillary Er nú
forsetaefni
demókrata.
Beckham til
Íslands
David Beckham og og Victoria
eru á Íslandi. Þau eru gestir
Björgólfs Thor Björgólfssonar
athafnamanns. Beckham-hjón-
in eru heimsfræg. David er fyrr-
verandi leikmaður Manchester
United og enska landsliðsins.
Victoria var söngkona í Spice
Girls og hefur getið sér gott orð
sem fatahönnuður. Mikil leynd
hefur hvílt yfir komu hjónanna
en þau ætla að dvelja nokkra
daga á Íslandi í sumarfríi. Með í
för verða vinahjón þeirra. Ætla
þau, meðal annars, í veiði með
Björgólfi og líklegt að Langá verði
fyrir valinu.
Lágpunktur
framsóknar
Ekki er marktækur munur á fylgi
Sjálfstæðisflokksins og Pírata,
samkvæmt nýrri skoðana-
könnun MMR. Sjálfstæðisflokk-
urinn mælist með 25,3 prósent
en Píratar með 24,3 prósent.
Framsóknarflokkurinn hefur
ekki mælst með minna fylgi í átta
ár en hann mælist með 6,4 pró-
senta fylgi. Flokkur Viðreisnar
mælist með 6,7 prósent en ekki er
marktækur munur á fylgi hans og
Framsóknarflokksins.
Vinstri græn sækja á á milli
kannanna. Fylgið mælist 18 pró-
sent en Samfylkingin mælist
með 10,9 prósent. Björt framtíð
kæmi ekki manni á þing ef kosið
yrði nú. Fylgið mælist aðeins 2,9
prósent. Fylgi við Sturlu Jónsson
mælist tvö prósent.