Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Blaðsíða 18
Helgarblað 8.–11. júlí 201618 Fólk Viðtal Kraftmikil fasteignasala sem fer ótroðnar slóðir af því að þín fasteign skiptir máli É g veit eiginlega ekki hvað ég á að segja við þig. Ég er örugglega sá alþingismaður sem hefur verið hvað oftast í viðtölum undanfar- in ár og fólk er örugglega kom- ið með nóg af mér,“ segir framsóknar- konan og hlær. Framsóknarflokkurinn var mikið í umræðunni í vor áður en þinghlé var gert, og skoðanakannanir sýndu minnkandi fylgi. Vigdís gaf út að hún myndi tilkynna í byrjun júlí hvort hún hygðist sækjast eftir áframhaldandi umboði til þingsetu fyrir flokkinn. Af hverju ertu að hætta núna? „Fólk hættir af ýmsum ástæðum á Alþingi. Sumir hafa hætt sem ég mun sakna úr pólitíkinni, eins og til dæmis píratarnir Jón Þór og Helgi Hrafn. Aðr- ir sem ég myndi gjarnan vilja sjá fara hafa tilkynnt að þeir sækist áfram eft- ir umboði.“ Var þrýst á þig að hætta? Nei, alls ekki. Ég gerði þetta með dálitlu áhlaupi, svo fólk myndi ekki reyna að telja mér hughvarf. Ég ræddi þetta við mjög þröngan hóp vina og fjölskyldu. Áður en ég sendi frá mér tilkynninguna fengu trúnaðar- menn flokksins hana. Í kjölfarið hafa hins vegar margir reynt að fá mig til að skipta um skoðun, hringt og sent tölvupóst og skilaboð á Facebook og ég er þakklát fyrir þann stuðning. Ég var tilbúin með yfirlýsingu mína þann 1. júlí Svo ákvað ég að bíða með að opinbera hana vegna EM. Leik- urinn við Frakka var á sunnudeginum og mér fannst ekki hægt að skyggja á hann. Svo kom í ljós að það ætti að taka á móti fótboltaliðinu á mánudeginum klukkan sjö, og ég hugsaði „oh, það er bara aldrei rétti tíminn“. Svo ákvað ég að láta slag standa, enda voru 240 ár þennan dag síðan skrifað var undir sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna. Það var kannski ágætt að hafa eitthvað annað í hádegisfréttum en bara tap- ið gegn Frökkum, svo þegar upp var staðið var tímasetningin góð. Ég upp- lifði létti og mikla sátt þegar ég sendi tilkynninguna frá mér.“ Hefði þegið meiri stuðning Þú hefur oft synt á móti straumnum. Fannstu fyrir skorti á stuðningi flokks- félaga þinna eða varstu kannski lögð í einelti innan flokksins? „Nei, ég var nú ekki lögð í einelti en oft hefði ég alveg þegið meiri stuðn- ing. Manneskja eins og ég getur ekki alltaf reiknað með að fá stuðning. Ég „Ég hoppa alltaf upp eins og óreglulegt hjartalínurit Uppgjör Vigdísar Vigdís Hauksdóttir er að hætta á Alþingi. Hún tilkynnti ákvörðun sína í byrjun vikunnar og ætlaði allt að verða vitlaust á samfélagsmiðlum í kjölfarið. Allir hafa nefnilega skoðun á henni. Ragnheiður Eiríksdóttir hitti þessa umdeildu konu og ræddi um ferilinn og ýmislegt fleira. Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.