Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Blaðsíða 21
Helgarblað 8.–11. júlí 2016 Veiði og útivist - Kynningarblað 3
Allt að verða uppselt
– þó finna megi gullmola
Bakpokar sem komast fyrir á lyklakippu
Léttur, fyrirferðarlítill og vatnsheldur útivistarbúnaður
Ú
tivistarvörur frá ástralska
framleiðandanum Sea to
Summit njóta feikilegra vin-
sælda víða um heim. Fjalla-
kofinn býður fjölbreytt úr-
val af Sea to Summit-vörum, en
þær eru gæddar eiginleikum sem
stuðla að þægilegri og ánægjulegri
ferðalögum, ekki síst útilegum og
gönguferðum um hálendið. Sem
dæmi eru í boði samanbrjótan-
legir pottar, diskar og glös, ótrúlega
fyrirferðarlítil og létt, en pottarnir
eru afar hentugir á prímusinn í úti-
legunni.
Útivistarhandklæðin frá Sea
to Summit hafa notið mikilla vin-
sælda, þau eru létt, fyrirferðarlítil
og bráðnauðsynleg í ferðalagið.
Mikið er til af vatnsheldum vör-
um frá Sea to Summit, til dæmis
vatnsheldir bakpokar, vatnsheld
hulstur fyrir síma, spjaldtölvur,
veski, kort, og annað sem þarf að
verja fyrir bleytu.
Eitt af því sem vekur athygli í
vörulínu Sea to Summit er vatns-
heldur bakpoki sem hægt er að
brjóta svo vel saman að hann
kemst fyrir í litlum poka sem festur
er á lyklakippu.
Fyrir utan að vera fallegar,
slitsterkar og margar hverjar vatns-
heldar þá njóta útivistarvörurnar
frá Sea to Summit sérstaklega
mikilla vinsælda vegna þess hve
léttar og fyrirferðarlitlar þær eru.
Kostirnir eru augljósir þegar koma
þarf fyrir öllum búnaði í bílnum
fyrir útileguna eða stefnt er á góða
og langa gönguferð með vistir í
bakpoka.
Sea to Summit-vörurnar eru
til sölu í Fjallakofanum sem rekur
þrjár verslanir: að Reykjavíkurvegi
64 í Hafnarfirði, í Kringlunni 7 og á
Laugavegi 11 í Reykjavík. Fjallakofinn
er fyrirtæki sem hefur vaxið og dafnað
í takt við síaukinn útivistar- og ferða-
áhuga landsmanna. Starfsmenn fyrir-
tækisins eru enda fagmenn á þessu
sviði og gera sér far um að veita úti-
vistarfólki framúrskarandi þjónustu.
Sjá nánar um Fjallakofann á heima-
síðu fyrirtækisins, fjallakofinn.is. n