Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Blaðsíða 11
Helgarblað 8.–11. júlí 2016 Fréttir 11 Allt til ræktunar og fullt af fíneríi fyrir heimilið og bústaðinn HÖFÐABAKKA 3 / 110 REYKJAVÍK / SÍMI 587 2222 / litlagardbudin.is / Við erum á Facebook Mannúðargjörningur klýfur þjóðkirkjuna Laugarneskirkju n Sóknarprestur sakar biskup um aðild að lögbroti Biskup með í að áforma lögbrot Geir Waage skilur ekki hvað biskupi gekk til með því að styðja aðgerðirnar „Það er ekki hægt að styðja þetta,“ segir séra Geir Waage, sóknarprestur í Reyk­ holtsprestakalli, spurður hvort hann styðji þær aðgerðir sem prestar og Laugarneskirkja gripu til á dögunum. Hann er lítt hrifinn. „Kirkjugrið eru fyrirbæri sem voru í gildi og full þörf var fyrir þegar þjóðfélögin voru ekki réttarríki. Þegar menn nutu ekki laga eða réttar. Þá leituðu þeir á náðir kirkjunnar og hún skaut yfir þá skjólshúsi. En þegar ríkisvaldið þóttist vera búið að koma því svo fyrir að konungur gat tryggt þegnum sínum frið og frelsi að lögum þá voru kirkjugrið afnumin hér með lögum. Þannig að kirkjugrið eru ekki lengur í lögum. Og í þessu réttarríki okkar eigum við að geta treyst því að farið sé að lögum og þau séu framkvæmd með réttum hætti. Þar af leiðandi er ekki forsenda fyrir þessu,“ segir Geir. Um þá staðreynd að biskup Íslands hafi lagt blessun sína yfir og stutt aðgerðirnar þá furðar Geir sig á aðkomu æðstu ráðamanna kirkjunnar. „Ég skil ekki hvað þeim hefur gengið til. Ef það er rétt að þessi samtök sem stóðu að þessu, Án landamæra, hafi átt fund með biskupnum fyrirfram – ég skil það bara ekki. Því að það er bara aðild að áformi um lögbrot, að mínu viti. Ég er ekki lögfróður en mér finnst það augljóst mál að með því að eiga slíkt ráðuneyti þá er verið að leggja á ráðin um að brjóta lög. Það gengur ekki.“ Aðspurður hvort hann telji að það verði einhverjir eftirmálar af þessum aðgerðum innan kirkjunnar kveðst Geir ekki vita það. „Ég vona að það verði ekki miklir eftirmálar, en það er náttúrlega alltaf mjög alvarlegt þegar svona lagað gerist.“ Kirkjan braut engin lög Guðrún Karls segir leitt ef lögreglan taki þessu sem persónu- legri árás presta og kirkjunnar „Mér finnst ekki gott að þessu sé stillt upp sem prestum gegn lögreglu. Það er alveg skýrt að kirkjan var ekki að brjóta lög. Heldur var verið að láta reyna á þessi grið sem er hefð, en hefur ekki neitt lagalegt gildi,“ segir séra Guðrún Karls Helgudóttir, sóknarprestur í Grafarvogsprestakalli. Hún kveðst hafa skilið þetta sem svo að prestarnir hafi aldrei ætlað sér að hindra lögregluna á nokkurn einasta hátt, enda hafi þeir ekki gert það. „Það var aðeins látið reyna á það hvort þetta gæti virkað því mér skilst að t.d. í Noregi neiti lögreglan staðfastlega að fara inn í kirkju þegar þetta hefur verið gert. Það er mikilvægt að þetta var ekki hugdetta eins prests, heldur eitthvað sem söfnuðurinn stendur á bak við, sóknarnefndin og fólkið sem þau eru að hjálpa er hluti af þeirra samfélagi, eins og var þarna.“ Guðrún segir málið ekki snúast um að einhverjir glæpamenn geti farið inn í kirkju og fengið þar skjól. „Að því leyti styð ég að þau hafi reynt þetta, til að skapa umræðu og til að benda á hversu óréttlát þessi Dyflinnarreglugerð er og hvernig hún er nýtt til fullnustu hér á Íslandi.“ Guðrún segir mikilvægt að hafa í huga að yfirvöld hafi verið látin vita að flóttamennirnir yrðu í Laugarneskirkju og að hægt yrði að sækja þá þangað. „Það er erfitt þegar umræðan verður þannig að annaðhvort standir þú með lögreglunni og lögum eða prestum og kirkjunni, þetta er ekki svona svart og hvítt. En það hefur tekist að skapa umræðu og svo er spurning hvort við séum tilbúin að ræða þetta af alvöru, hvernig við tökum á flóttafólki á Íslandi. En það er leiðinlegt ef lögreglan tekur þessu sem persónulegri árás presta eða kirkjunnar á sig, það er svo innilega ekki þannig.“ Þá bendir Guðrún á að þó að prestur innflytjenda og prestur Laugarneskirkju hafi gert þetta þá sé ekki þar með sagt að allir prestar þurfi að vera þessu fylgjandi. Hver hafi sína skoðun. Biskup hafi lagt blessun sína yfir þetta og aðgerðin hafi ekki verið skyndiákvörðun sem gripin hafi verið úr lausu lofti. Meðal annars hafi prófessor í kirkjusögu verið hafður með í ráðum varðandi þessa hefð og þýðingu hennar. Aðgerðin var predikun í verki Hildur Eir vill frekar tóma Þjóðkirkju en að kirkjan hætti að predika um það sem skiptir máli „Þetta var predikun í verki að þessu sinni en ekki bara úr predikunarstólnum,“ segir séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarprestakalli, sem kveðst ánægð með framgöngu og viðbrögð prestanna í Laugarneskirkju. Hún hafi fyrst og fremst upplifað þetta sem táknrænan stuðning og yfirlýsingu um að við þyrftum að endurskoða þessi mál. „Og gera okkur grein fyrir að manneskjan semur reglur og lög um þetta. Þannig að hún hefur líka vald til að breyta þeim. Ég upplifði að þarna væri kirkjan að undirstrika það að manneskjur væru verðmætari og mikilvægari en einhverjar reglur sem settar eru. Velferð þeirra væri mikilvægari. Mannréttindi og mannslíf væru alltaf yfir reglur hafin.“ Hildur kveðst vissulega hafa samúð með þeim lögregluþjónum sem sendir voru í þetta verkefni en hins vegar geti menn þó aldrei firrt sig ábyrgð á því hvernig þeir gangi inn í aðstæður. Vafalaust hafi þær verið vandasamar en hún ímyndi sér að hægt hefði verið að gera þetta með friðsamari hætti. Það sem máli skipti nú sé að við sem samfélag endurskoðum og tölum um hvernig við ætlum að taka á móti hælisleitendum. „En mér fannst kirkjan með þessum gjörningi vera að hlýða köllun sinni og skyldum. Ég er sannfærð um að kirkjan var ekki að fara í átök við lögregluna og var ekki að stilla henni upp við vegg. Það er smá fórnar­ lambshugsunarháttur hjá lögregluyfir­ völdum að sjá það þannig.“ Hin verklega predikun hafi verið nauðsynleg til að koma skilaboðum kirkjunnar áleiðis. „Því það er ekki öll þjóðin að mæta í kirkju á sunnudögum þar sem verið er að ræða og predika um þessi mál. Þetta var ekki gert til að styggja lögregluna eða setja hana í erfiða stöðu því við virðum lög­ regluna það mikið, að þetta sé fag­ fólk og við séum jafningjar. Þannig störfum við með þeim daglega. En ég er ekkert miður mín yfir því að einhverjir lögreglumenn ætli að segja sig úr Þjóðkirkjunni, mér finnst það ákveðinn píslarvættishugsunar­ háttur,“ segir Hildur sem klykkir út með sterkum skilaboðum: „Það er betra að allir segi sig úr Þjóðkirkjunni og Þjóðkirkjan haldi áfram að predika um það sem skiptir máli, frekar en að það séu rosalega margir í Þjóðkirkjunni og Þjóðkirkjan þegi.“ „Það sem er ámælis- vert er að gera slíkt að pólitískri aðgerð Hildur Eir Bolladóttir Segir kirkjuna hafa verið að sinna skyldum sínum og að úrsagnir lög­ reglumanna úr þjóðkirkjunni risti grunnt. Mynd Bjarni EiríKsson Guðrún Karls Helgudóttir Styður framtakið til að skapa um­ ræðu um óréttlæti Dyflinnarreglu­ gerðarinnar og móttöku hælisleit­ enda hér á landi. Mynd siGtryGGur ari Geir Waage Skilur ekki hvað fólki gekk til. tóku afstöðu Kristín Þórunn Tómasdóttir, sóknarprestur í Laugarneskirku, og Toshiki Toma, prestur innflytjenda, stóðu fyrir því að opna dyr kirkjunnar fyrir írökskum hælisleitendum sem vísa átti úr landi. Mynd siGtryGGur ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.