Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Blaðsíða 8
Helgarblað 8.–11. júlí 20168 Fréttir Fékk pakka frá Þýskalandi eftir hjólreiðaslys n Listamaður frá Berlín sendi Sigmari Breka glaðning n Var uppnuminn af íslenska landsliðinu Í byrjun vikunnar barst fallegt umslag frá Þýskalandi á skrif- stofu DV með þeim skilaboð- um að innihaldið væri ætlað Sig- mari Breka Sigurðssyni, 12 ára dreng, sem slapp ótrúlega vel úr alvarlegu hjólreiðaslysi á dögun- um. Sendandinn var 56 ára gamall listamaður frá Berlín, Uwe Bressem, sem hefur engin tengsl við land og þjóð, önnur en þau að hafa heillast af framgangi íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í Frakklandi. Hann tók því saman úrklippur úr þýskum blöðum og vildi að ung- ur Íslendingur myndi njóta þeirra auk þess sem hann lét frímerki, sem hann hannar sjálfur, fylgja með. Hjálmurinn bjargaði Sigmari Breka Blaðamaður og ljósmyndari DV kíktu í heimsókn til Sigmars Breka með glaðninginn. Eins og DV greindi frá lenti hinn 12 ára gamli Sigmar Breki Sigurðsson í alvarlegu hjólreiðaslysi á dögunum. Hann var að hjóla heim til sín þegar að hann lenti í árekstri við bíl með þeim af- leiðingum að hann flaug yfir húdd bílsins, lenti í götunni og rotað- ist. Sigmar Breki var blessunarlega með hjálm á höfðinu sem bjargaði án nokkurs vafa lífi hans. „Þetta var slys og við höfum verið í góðu sam- bandi við bílstjóra bílsins sem hefur fylgst með bata Sigmars. Sprungur komu í fjóra hryggjarliði en að sögn læknanna mun það gróa og dreng- urinn hefur verið ótrúlega fljótur að jafna sig eftir slysið,“ segir Gerða Sig- bergsdóttir, móðir Sigmars Breka. Hún sýnir okkur hjálminn sem Sig- mar var með á höfðinu en hann er gjörónýtur auk þess sem hjólið hans er verulega laskað að sögn lög- reglu. „Ég er ekki búinn að sjá það en ég held að ég verði að fá nýtt hjól. Hitt var farið að ryðga,“ segir Sig- mar og horfir sposkur á móður sína. „Þetta var eins árs gamalt hjól,“ segir Gerða og hváir en síðan skellihlæja mæðginin yfir tilraun Sigmars til þessa að hagnast á aðstæðum sín- um. Að því sögðu afhendir blaða- maður Sigmari Breka umslag- ið góða sem hann opnar og skoðar af áhuga. „Þetta er mjög skemmti- legt og fallega hugsað. Ég verð að „gúgla“ þennan listamann og senda honum kveðju,“ segir Sigmar Breki brosandi. Heillaðist af íslenska landsliðinu „Ég heillaðist af framgöngu íslenska landsliðsins í Frakklandi og það minnti mig á hvað ég var spenntur sem ungur drengur yfir framgöngu þýska landsliðsins. Fjölmiðlar hérna í Þýskalandi voru uppfullir af frétt- um og glæsilegum myndum af ís- lensku landsliðsmönnunum og þess vegna tók ég saman nokkrar fal- legar greinar og vildi leyfa ungum Ís- lendingi að njóta þeirra,“ segir Uwe Bressem sem sendi áðurnefndan glaðning á skrifstofu DV. Uwe starfar sem listamaður í Berlín og býr í Wedding-hverfinu ásamt eiginkonu sinni og tveimur köttum. Hann segist engin tengsl hafa við Ísland og hafi ekki heimsótt landið. Það sé þó kirfilega komið á dagskrá. „Ég rétt svo vissi hvar Ísland er staðsett á korti en núna er á dag- skrá að heimsækja landið. Þegar ég hafði tekið saman greinarnar reyndi ég að finna einhvern heppilegan við- takanda. Ég fór inn á íslenskar frétta- síður og fann þá umfjöllun um Sig- mar Breka og slysið sem hann lenti í. Mér fannst alveg kjörið að senda honum glaðninginn á meðan hann lægi á sjúkrabeði,“ sagði Uwe og bað fyrir góðar kveðjur til drengsins. n Sigmar Breki Sigurðsson Kappinn er óðum að ná sér eftir hjólreiðaslys og hafði gaman af kveðjunum hlýju sem honum bárust frá Berlín. Á myndinni má sjá gjörónýtan hjálminn sem að öllum líkindum bjargaði lífi hans. Mynd Sigtryggur Ari „Ég heillaðist af framgöngu íslenska landsliðsins í Frakklandi og það minnti mig á hvað ég var spenntur sem ungur drengur yfir framgöngu þýska landsliðsins. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Karamella og perur Súkkulaði og ferskjur Vanilla og kókos Bragðgóð grísk jógúrt að vestan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.