Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Blaðsíða 12
Helgarblað 8.–11. júlí 201612 Fréttir Viðskipti Mikið bar á Milli stjórnvalda og stærstu aflandskrónueigenda n bandarískir fjárfestingarsjóðir vildu losna út á genginu 165 krónur gegn evru n Ítrekaðar tilraunir til samkomulags báru ekki árangur b andarískir fjárfestingar­ sjóðir, sem eiga aflandskrónur fyrir um 150 milljarða, vildu ekki losna út fyrir fjármagns­ höft með eignir sínar í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri á gengi sem væri óhagstæðara en 165 krónur fyrir hverja evru. Þetta kom fram á fundum með fulltrúum sjóð­ anna í aðdraganda 320 milljarða aflandskrónuútboðs Seðlabanka Íslands sem fór fram um miðjan síðasta mánuð, samkvæmt heim­ ildum DV. Slík niðurstaða fyrir sjóðina hefði þýtt útboðsgengi sem væri um 15% lægra en skráð gengi krónunn­ ar. Í gjaldeyrisútboði Seðlabank­ ans gafst aflandskrónueigendum hins vegar færi á að selja eignir sín­ ar á genginu 190 krónur fyrir hverja evru – um 27% lægra gengi miðað við skráð gengi – og bar því talsvert á milli væntinga bandarísku fjár­ festingarsjóðanna og vilja íslenskra stjórnvalda. Í útboði Seðlabankans bárust tilboð fyrir alls 188 milljarða og nam fjárhæð samþykktra tilboða um 83 milljörðum. Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði um rúm­ lega 54 milljarða í kjölfar útboðsins. Stál í stál Þrátt fyrir dræma þátttöku sjóð­ anna í gjaldeyrisútboðinu, þar sem þeir kusu annaðhvort ekki að taka þátt eða skiluðu inn tilboðum sem Seðlabankinn gat ekki fallist á, þá er því enn haldið opnu af hálfu ís­ lenskra stjórnvalda að sjóðirnir geti átt í beinum gjaldeyrisviðskiptum við bankann vilji þeir endurskoða afstöðu sína um að enda fastir með fé sitt á vaxtalausum reikningi um ófyrirséðan tíma. Þannig kemur til greina, samkvæmt heimildum DV, að hleypa þeim út fyrir höft á gengi sem væri lítillega hagstæðara fyrir þá en 190 krónur fyrir hverja evru að því gefnu að fjárfestingarsjóð­ irnir, sem eru fjórir talsins, sam­ mælist allir um slíka niðurstöðu. Á þessari stundu bendir þó fátt til þess að sjóðirnir séu reiðubúnir til viðræðna við stjórnvöld á þeim grundvelli. Í kjölfar útboðs Seðla­ bankans hafa sjóðirnir falið lög­ mönnum sínum að kanna þann möguleika að láta reyna á rétt þeirra fyrir íslenskum og erlendum dómstólum. Þá hafa þeir einnig skilað inn kvörtun til Eftirlits­ stofnunar EFTA (ESA) vegna frumvarps fjármálaráðherra um aflandskrónueignir sem varð að lögum 23. maí síðastliðinn. Telja sjóðirnir að frumvarpið feli í sér ólögmæta eignaupptöku og brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Þeir sem gæta hagsmuna sjóðanna á Íslandi eru Pétur Örn Sverris son lögmaður sem hefur unnið fyrir slitabú gamla Landsbankans (LBI), og Magnús Árni Skúlason, hag­ fræðingur og eigandi ráðgjafafyrir­ tækisins Reykjavík Economics. Hafa fengið sérmeðferð Íslensk yfirvöld gefa hins vegar lítið fyrir þá tilburði sjóðanna enda telja þau engum vafa undirorp­ ið að aðferðafræði þeirra við þetta næsta skref í losun fjármagnshafta sé í fullu samræmi við íslensk lög og alþjóðlegar skuldbindingar. Frumvarp fjármálaráðherra um aflandskrónur og vinna við undir­ búning útboðs Seðlabankans hafi verið unnin í samráði við Al­ þjóðagjaldeyrissjóðinn auk þess sem stóru lánshæfismatsfyrirtæk­ in hafi ekki talið ástæðu til að gera athugasemdir við áætlun stjórn­ valda. Í tilkynningu frá Moody's, sem var birt skömmu eftir að aflandskrónufrumvarpið varð að lögum, er þannig ekki vikið einu orði að mögulegri lagalegri áhættu í tengslum við útboð Seðlabankans. Ákvað matsfyrirtækið að lánshæfis­ einkunn ríkissjóðs Íslands yrði endurmetin með hækkun í huga á næstunni. Á fundi sem samtökin Emerging Markets Traders (EMTA) stóðu fyrir í New York þann 27. júní síð­ astliðinn benti bandaríski lög­ maðurinn Lee Buchheit, sem hefur veitt íslenskum stjórnvöldum ráð­ gjöf, að með frumvarpi um með­ ferð aflandskrónueigna væri ekki þrengt að eigendum slíkra eigna heldur þvert á móti verið að auka fjárfestingarheimildir þeirra. Hafi einhverjir fengið sérmeðferð, út­ skýrði Buchheit, þá hafi það verið aflandskrónueigendur sem áttu þess einir kost á undanförnum árum að losna út fyrir höft með því að selja krónur í skiptum fyrir gjald­ eyri í tengslum við fjárfestingar­ leið Seðlabankans. Núna hefðu ís­ lensk stjórnvöld hins vegar tekið ákvörðun um að röðin væri kom­ in að því að hleypa út innlendum aðilum – og á meðan þyrftu þeir aflandskrónueigendur sem kusu að taka ekki þátt í útboði Seðla­ bankans að lúta því að vera settir til hliðar. Autonomy tregastur í taumi Stærstu eigendur aflandskróna eru, eins áður hefur verið rakið á síðum DV, vogunarsjóðirnir Autonomy Capital og Discovery Capital ásamt sjóðastýringarfyrirtækjun­ um Loomis Sayles og Eaton Vance. Vogunarsjóðurinn Discovery Capi­ tal var sá eini sem skilaði inn til­ boðum í nýafstöðnu gjaldeyris­ útboði, samkvæmt heimildum DV, sem voru samþykkt af Seðlabank­ anum og minnkaði um 17 millj­ arða aflandskrónueign sjóðsins við það um helming. Af fjárfestingar­ sjóðunum fjórum er Discovery Capital minnsti aflandskrónu­ eigandinn – sjóðurinn var á sín­ um tíma langsamlega stærstur – en hinir sjóðirnir eiga hver um sig aflandskrónur að fjárhæð 30 til 40 milljarða. Í opinberum fjárhags­ upplýsingum frá Loomis Sayles og Eaton Vance má sjá að sjóðirnir bókfæra þær eignir hjá sér á annars vegar 220 krónur gagnvart evru og hins vegar 195 krónur fyrir hverja evru. Á undanförnum mánuðum hafa fulltrúar stjórnvalda átt í um­ talsverðum samskiptum við þessa helstu eigendur aflandskróna til að kanna hvort grundvöllur væri fyrir samkomulag um að leysa út eignir þeirra sem væri ásættanlegt fyrir báða aðila. Í því skyni leituðu ráð­ gjafar stjórnvalda meðal annars til starfsmanna tveggja fjármálafyrir­ tækja – Íslandsbanka og Kviku fjár­ festingarbanka – til að vera milli­ gönguaðilar í slíkum viðræðum þar sem þeir þekktu persónulega vel til fulltrúa sjóðanna hér á landi. Þær tilraunir báru aftur á móti engan árangur ekki frekar en þegar Bandaríkjamaðurinn Rob Citro­ ne, stofnandi og forstjóri Discovery Capital, reyndi að fá alla sjóðina til ná sameiginlegu samkomulagi við íslensk stjórnvöld. Sá fjárfestingar­ sjóður sem hefur reynst langsam­ lega tregastur í taumi gagnvart Aflandskrónuútboð Stjórnvöld leituðu liðsinnis ýmissa einstaklinga með það fyrir augum að þeir yrðu milligönguaðilar til að kanna hvort hægt væri að ná samkomulagi við stærstu eigendur aflandskróna. Það bar ekki árangur. Mynd Sigtryggur Ari Hörður Ægisson hordur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.