Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Qupperneq 27
Helgarblað 8.–11. júlí 2016 Lífsstíll 23 6 Rautt kjöt Próteinríkar fæðutegundir, eins og mjólk, hnetusmjör og ostar, virka vel á svefn og hvíld, sérstaklega ef þeirra er neytt með kolvetnum. Rautt kjöt virðist hins vegar innihalda aðeins of mikið af því góða og getur komið í veg fyrir góðan nætursvefn. Ástæðan er annars vegar sú að meltingarkerfið þarf að ráðast í mjög orkukrefjandi vinnu eftir kjötmáltíð, og hins vegar inniheldur rautt kjöt mikið af amínósýrunni týrósín, en hún hefur hressandi áhrif á heilann. Að auki er meiri hætta á vélinda- bakflæði ef maður leggst til hvílu strax eftir stóra steikar- máltíð. 5 Fituríkar máltíðir Pepperónípítsa eða borgari með öllu gæti virkað girnilegur biti fyrir svefninn, en áhrif slíkra máltíða á svefn eru slæm. Margt bendir til þess að fituríkar máltíðir trufli jafnvægi ákveðinna boðefna í heilanum, sem snerta svefn og vöku. Rannsóknir benda til þess að þeir sem borða fituríkar máltíðir sofi lengur, en gæði svefnsins eru skert, og þeir sömu eiga erfiðara með að halda sér vakandi og hressum í dagsins önn. 7 Ávextir og grænmeti Já, nú er að verða fokið í flest skjól. Þetta á þó ekki við um allt sem fellur í þennan flokk, heldur það tormelta og trefjaríka. Það er til dæmis vandræðalegt að brokkolí og blómkál innihalda mikið af amínósýrunni tryptófan, sem alla jafna hefur góð áhrif á svefninn – en þau áhrif verða gagnslaus því trefjarnar koma í veg fyrir að maður sofni. Annað í þessum flokki sem skynsamlegt er að varast fyrir svefninn er hvítkál, dökkgrænt laufgrænmeti, sellerí, grasker, baunir og hvítir sveppir. Tómata er líka gott að láta eiga sig, þeir eru svo svakalega súrir. 8 Sætindi Sykur æsir, það vita allir. Hann er því verulega truflandi fyrir svefn, sé hans neytt skömmu áður. En sykurneysla almennt er líka slæm fyrir svefn, því hún truflar jafnvægi líkamans, sama hvenær maður ætlar í háttinn. 9 Skyndibitar Það er ekki góð hugmynd að skreppa í bíltúr út á hamborgarastað fyrir svefninn. Skyndibiti rétt fyrir svefn hefur slæm áhrif, og auðvelt er að festast í vítahring, því rannsóknir hafa leitt í ljós að slæmur svefn eykur á löngun í óhollustu. Hófsemi er því best. 10 Vatn – nei, hættu nú alveg! Eins og vatn er nauðsyn- legt öllum lífverum á jörðinni, getur það alveg eyðilagt góðan nætursvefn. Líkaminn sér raunar til þess að það hægist á þvagframleiðslu yfir nóttina – en ef drukk- ið er vel fyrir svefninn er fátt sem getur komið í veg fyrir salernisferð um miðja nótt. 11 Gosdrykkir Af framangreindu ætti þetta að liggja ljóst fyrir. Gosdrykkir innihalda gjarnan sykur sem hressir, koffín sem hemur virkni slakandi hormóna í líkamanum, og svo eru þeir mjög súrir og trufla framleiðslu okkar náttúrulegu magasýra. Gosdrykkir með gervisætunni aspartam eru lítt skárri. Aspartam inni- heldur amínósýruna fenylalanín en of mikið magn af henni er talið geta valdið svefntruflunum. 12 Lyf Reyndar ekki fæðutegund, en við innbyrðum þau á sama hátt. Þeir sem eru á lyfjum og stríða við svefnvanda ættu að kanna vandlega hvort um aukaverk- anir gæti verið að ræða. Þung- lyndislyf og astmalyf eru til að mynda þekkt fyrir að valda svefntruflunum. Spjall við lækni gæti verið góð hugmynd!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.