Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Síða 20
Helgarblað 8.–11. júlí 20162 Veiði og útivist - Kynningarblað Allt að verða uppselt – þó finna megi gullmola Stangaveiðifélag Reykjavíkur – SVFR í miklu úrvali Skíðavörur Útivistar- og veiðimiðstöð Norðurlands ehf Kaupvangsstræti 4, 600 Akureyri (+354) 461 1516 utivistogveidi@simnet.is Þ að er frábær veiði í ánum okkar núna,“ segir Ari Her- móður Jafetsson, fram- kvæmdastjóri Stangaveiði- félags Reykjavíkur, SVFR, en aðild að félaginu veitir forgang að veiðileyfum á mörgum af eftir- sóttustu veiðisvæðum landsins þar sem færri komast að en vilja. „Við erum með um 22 ársvæði, til dæmis með Langá, Haukadalsá, Hítará og Gljúfurá, að ógleymdum Elliðaán- um. Síðan erum við með urriðasvæð- in fyrir norðan,“ segir Ari. Aðild að SVFR veitir tækifæri til að sækja um veiðileyfaúthlutun félags- ins sem er afar fjölsótt, sérstaklega í Elliðaárnar, og segir Ari að það fólk þurfi að skipuleggja veiði hvers árs um áramót. Einnig segir Ari að veiðin í sumar fari gríðarlega vel af stað og að nánast sé uppselt í allar ár félags- ins. „Það má segja að við séum með uppselt í sumar í laxinn. Hítará, Andakílsá, Langá, Haukadalsá og fleiri eru nánast fullbókaðar. Þó er enn hægt að finna nokkra góða gull- mola inni á milli. Þannig eru enn lausir dagar í Bíldsfelli í Sogi, sem er frábært þriggja stanga laxveiðisvæði. Hentar því mjög vel fyrir litla hópa og þar má veiða á flugu, spún og maðk. Þegar við sáum fram á að vera nokkurn veginn búin með lagerinn fengum við austurbakkann í Hólsá í umboðssölu. Veiðin þar hefur farið fantavel af stað. Þetta er sex stanga svæði og fiskurinn í sumar er vel við vöxt! Að öðru leyti er ekki mikið laust nema þá kannski í Alviðru og Þrast- arlundi og þá detta annað slagið inn veiðileyfi sem eru í endursölu,“ segir Ari, en bætir við: „Þess vegna mæli ég með því að fylgst sé vel með vefsölunni okkar til að ná í þessi leyfi sem detta inn. Svo borgar sig auð- vitað að vera félagsmaður og tryggja sér þannig forgang að veiðileyfum á betra verði.“ Auk þess að hafa betri aðgang að eftirsóttustu veiðisvæðum lands- ins geta félagsmenn í SVFR einnig komist í mjög ódýra veiði en SVFR er helmingseigandi í Veiðikortinu. Fá félagar Veiðikortið á 5.550 krónur en það veitir ótakmarkaðan aðgang að 35 silungsveiðivötnum. Inntökugjald í SVFR er 22.800 krónur fyrir fullorðinn einstakling og 8.000 krónur fyrir börn og unglinga upp að 19 ára aldri. Árgjald er 11.400 fyrir fullorðna og 4.000 fyrir 67 ára og eldri og börn. Auk framangreindra fríðinda fá félagsmenn aðgang að öflugu félags- starfi SVFR og má þar nefna hnýt- ingarkvöld og skemmtikvöld yfir vetrartímann. Auk þess fá félags- menn senda söluskrá í desember og tvö eintök af blaðinu Veiðimaðurinn. Nánar má lesa um starfsemi Stangaveiðifélags Reykjavíkur á heimasíðu félagsins, svfr.is. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.