Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Side 4
Helgarblað 8.–11. júlí 20164 Fréttir
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Súrdeigsbrauðin
okkar eru alvöru
u Heilkorna
u 100% spelt
u Sykurlaus
u Gerlaus
u Olíulaus
T
ugþúsundir Íslendinga
hafa lagt leið sína á
Evrópumótið í knattspyrnu
sem hófst í Frakklandi fyrir
þremur vikum. Mikill fjöldi
fylgdi liðinu í riðlakeppninni en þá
fóru stórir hópar gagngert á leikinn
við Englendinga í 16-liða úrslitum
keppninnar í Nice og á viðureignina
gegn Frökkum í 8-liða úrslitunum í
París um liðna helgi. Á annan tug
flugvéla fór, til að mynda, frá Íslandi
með knattspyrnuáhugamenn til
Parísar í tengslum við leikinn gegn
Frökkum.
Ekki liggur ljóst fyrir hversu
margir lögðu land undir fót ein-
göngu vegna Evrópumótsins en
hópurinn er mjög stór. Allt að tíu
þúsund íslenskir áhorfendur voru á
hverjum leik. Kortavelta Íslendinga
í Frakklandi hefur verið gríðarleg.
Sú spurning hlýtur að vakna hvort
þessi mikli straumur Íslendinga til
Frakklands hafi komið niður á sölu
á öðrum ferðum nú þegar sumar-
frí landsmanna eru að ná hæstum
hæðum?
Þeir sem selja ferðir til sólar-
landa segja svo ekki vera heldur sé
straumurinn stöðugur.
Löngun grípur fólk
Guðrún Sigurgeirsdóttir, fram-
leiðslustjóri hjá VITA-ferðum, segir
málið hafa verið tekið fyrir á fundi
síðastliðinn föstudag. Það hefði
þurft að setja nokkur sæti á tilboð
undir lok júní, en annað líti vel út.
„Mikið er um bókanir á næstu
tveimur mánuðum. Ferðir í júní
seldust upp ef undan eru
skildir síðustu dagar
þess mánaðar. Það
er eins og það grípi
fólk mikil löngun
og þörf fyrir að
komast út. Ég
held að í fram-
haldinu muni
það gerast að
minnkandi eft-
irspurn verði í
ferðir í haust og
í vetur. Það fólk
sem er að fara á
Evrópumótið núna
fer ef til ekki út aftur í
haust,“ segir Guðrún.
Karlinn á EM, konan í borgarferð
Þyrí Kristínardóttir, sölustjóri hjá
Heimsferðum, segist síður en svo
merkja minnkandi eftirspurn eftir
ferðum í sólina. Að hennar mati er
hreinlega um viðbót að ræða.
„Þetta kemur okkur ekki beint á
óvart en það voru fjölmargir búnir
að ákveða sig snemma í ár hvað
varðar ferðir til útlanda, þá bæði á
EM í knattspyrnu og ferðir af öðru
tagi. Maður hefur líka séð
ákveðið mynstur í
þessu, eiginmað-
urinn fer á EM
með vinunum
og eiginkonan
fer í staðinn í
borgarferð í
haust með
vinkonun-
um. Svo eru
þó nokkur
dæmi um
að fólk skelli
sér líka í sólar-
landaferð í viku-
tíma. Almenningur
tekur enn fremur óvænt-
ar ákvarðanir, kannski mun
meira en áður. Eftirspurnin er svo
sannarlega fyrir hendi. Við skynj-
um mikla útrásarþörf hjá fólki.
Kannski er ástæðan að einhverju
leyti að fólk, sumt hvert, hafi meira
á milli handanna en áður. Ég veit
ekki fyrir víst, en áhuginn á að ferð-
ast er mikill,“ segir Þyrí. n
Útrásarþörf Íslendinga
sjaldan verið meiri
Eftirspurn í sólarlandaferðir ekki minni þrátt fyrir mikinn straum fólks á EM í knattspyrnu
Jón Kristján Sigurðsson
jonk@dv.is
„Almenningur
tekur enn fremur
óvæntar ákvarðanir,
kannski mun meira en
áður.
Nauthólsvík Íslensku góðviðrisdagarnir eru ekki ýkja margir, ár hvert.