Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Page 10
Helgarblað 8.–11. júlí 201610 Fréttir
Tilboð þér að kostnaðarlausu
Uppl. í síma: 820 8888 eða markmid@markmid-ehf.is
ALHLIÐA
FASTEIGNAVIÐHALD
Smíðavinna · Pípulagnir · Raflagnir
Málningavinna · Múrvinna · Flísalagnir
Hellulagnir · Jarðvinna · Lóðavinna
Mannúðargjörningur klýfur þjóðkirkjuna
n Ekki allir prestar á bandi biskups n Skiptar skoðanir á aðgerðum presta í
S
kiptar skoðanir eru meðal
presta Þjóðkirkjunnar á
þeirri ákvörðun Laugarnes
kirkju að opna dyr sínar og
skjóta skjólshúsi yfir íröksku
hælisleitendurna Alí Nasír og Majed
í lok síðasta mánaðar. Einn sóknar
prestur sem DV ræddi við segir
biskup Íslands hafa tekið þátt í að
skipuleggja lögbrot sem sé alvar
legt mál meðan annar segir að hann
vilji frekar að Þjóðkirkjan tæmist en
að hún þegi um málefni sem skipti
máli.
Aðgerðirnar voru gerðar með
blessun biskupsembættisins en þar
var ákveðið að láta reyna á hina
fornu hefð um kirkjugrið. Líkt og
komið hefur fram hélt sú hefð ekki
og voru Alí og Majed, þar af annar
í járnum, færðir í fylgd lögreglu og
starfsmanna Útlendingastofnunar
út í bíl og þeim ekið út á flugvöll og
þeir síðan fluttir úr landi til Noregs.
Toshiki Toma, prestur innflytjenda,
og Kristín Þórunn Tómasdóttir,
sóknarprestur í Laugarneskirkju,
fóru fyrir framtakinu, sem þau köll
uðu mannúðargjörning, sem síðan
hefur vakið hörð viðbrögð og mis
yfirvegaða umræðu.
Úrsagnir og vandlæting
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálf
stæðisflokksins og hæstaréttarlög
maður, hefur sakað prestana um lög
brot með því að hafa reynt að koma
í veg fyrir að lögregla gæti fram
fylgt lögum í landinu. Helgi Magn
ús Gunnarsson vararíkissaksóknari
hefur sömuleiðis talið eðlilegt að
Kristín og Toshiki verði áminnt
vegna málsins þar sem hann tjáði sig
um málið á Facebook og velti fyrir sér
hvort Þjóðkirkjan væri hætt að virða
landslög og ákvarðanir stjórnvalda.
Bætti hann við að mennirnir væru
væntanlega múslímar sem myndu
ekki láta sjá sig í kristinni kirkju
nema þegar það þjónaði hagsmun
um þeirra. Ber að halda því til haga
að fram hafði komið í fjölmiðlum að
Alí og Majed tóku kristna trú, áður
en þeim var vísað úr landi.
Annar embættismaður, Ólafur
Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á
Suðurnesjum, hefur gengið skrefi
lengra og sagt sig úr Þjóðkirkjunni
vegna málsins en lögreglumenn eru
ósáttir við hvernig kirkjan hafi stillt
lögreglumönnum upp við vegg í
málinu.
Ekki allir á bandi biskups
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís
lands, hefur ítrekað fyrri yfirlýsingar
sínar þess efnis að kirkjan standi
með þeim sem standi höllum fæti en
kirkjan ætlaði ekki í stríð við yfirvöld.
En ekki fylkja allir prestar sér að
baki biskupi. Afar skiptar skoðanir
eru meðal presta Þjóðkirkjunnar á
þeirri ákvörðun Agnesar biskups að
styðja og leggja blessun sína yfir þá
ákvörðun Laugarneskirkju og prest
anna að opna sínar dyr fyrir hælis
leitendum sem vísa átti úr landi. Vert
er að taka fram að lögreglunni var
tjáð hvar mennirnir yrðu og reyndu
fulltrúar kirkjunnar í engu að hindra
störf lögreglumanna þegar þeir
sóttu tvímenningana upp að altari
Laugarneskirkju á sjötta tímanum að
morgni 28. júní síðastliðins.
DV leitaði til nokkurra presta og
spurði þá út í afstöðu þeirra til að
gerðanna í Laugarneskirkju, þ.e.
hvort þeir styddu þá ákvörðun kirkj
unnar að skjóta skjólshúsi yfir hælis
leitendur með þeim hætti sem gert
var. Svörin sem fengust endurspegla
þann klofning sem virðist vera innan
þjóðkirkjunnar, og í samfélaginu um
málið, þrátt fyrir að vera ekki tæm
andi. Skoðanir eru skiptar.
Geir Waage, sóknarprestur í
Reykholti, skilur ekki hvað biskupi
hefur gengið til með því að styðja að
gerðirnar og hvað þá að funda með
þeim sem að þeim stóðu. Sakar hann
biskup um aðild að skipulagningu á
lögbroti. Hjálmar Jónsson, sóknar
prestur í Dómkirkjunni, telur altari
kirkjunnar hafa verið misnotað í
pólitískum aðgerðum. Guðrún Karls
Helgudóttir, sóknarprestur í Grafar
vogskirkju, segir skýrt að kirkjan hafi
engin lög brotið. Hildur Eir Bolla
dóttir, prestur í Akureyrarkirkju,
segir aðgerðirnar hafa verið predik
un í verki. n
Vanhugsuð
aðgerð
Á ekki að misnota altari kirkjunnar til
að knýja fram breytingar, segir Hjálmar
Jónsson
„Þessi aðgerð í Laugarneskirkju er
vanhugsuð,“ segir séra Hjálmar Jónsson,
sóknarprestur í Dómkirkjunni. Hann segir
það gott, fallegt og sjálfsagt mál að biðja
með fólki. „Það er auðsótt í hvaða kirkju
sem er. Það sem er ámælisvert er að gera
slíkt að pólitískri aðgerð.“
Hjálmar vill meina að hugmyndin
um kirkjugrið í þessu samband sé fráleit.
Slíkt hafi komið að gagni í löglausum
samfélögum fyrr á öldum. „En að tala um
kirkjugrið til að hindra eða torvelda framkvæmd laga og milliríkjasamninga er í besta falli
kjánaskapur. Eða er Noregur ekki lýðræðisríki?“ spyr presturinn. Hann segir lög og reglur
sífellt vera í mótun og endurskoðun í lýðræðisþjóðfélögum samtímans.
„Vilji fólk breytingar á þeim í einhverjum efnum þá hefur lýðræðið sína farvegi og
opnu leiðir fyrir hvern sem er. En altari kirkjunnar á ekki að nota til þess. Það er misnotkun.“
„Það er betra að
allir segi sig úr
Þjóðkirkjunni og Þjóð-
kirkjan haldi áfram að
predika um það sem
skiptir máli, frekar en að
það séu rosalega margir
í Þjóðkirkjunni og Þjóð-
kirkjan þegi.
Harkalegt Lögreglumenn færa annan
hælisleitandann í járn fyrir utan Laugarnes-
kirkju að morgni 28. júní.
Mynd SkJÁSkot: Stundin/youtubE
Hjálmar Jónsson Er allt annað en
sáttur við hvernig kirkjan hafi verið að
hans mati misnotuð í pólitískum erinda-
gjörðum og baráttu. Mynd Sigtryggur Ari