Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Blaðsíða 14
Helgarblað 8.–11. júlí 201614 Fréttir
Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni
sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög
þurru umhverfi.
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna
hornhimnunnar gegn þurrki.
Droparnir eru án rotvarnarefna
og má nota með linsum.
Ég fór í laseraðgerð hjá Sjónlagi í lok maí 2015. Keypti mér
Thealoz dropana eftir aðgerðina og var mjög ánægð, ákvað
samt að prufa að kaupa mér ódýrari dropa og fann rosalega
mikinn mun á gæðum. Þessir ódýrari voru bara ekki að
gera neitt fyrir mig og þurfti ég að nota mikið meira magn.
Mælti með dropunum við tengdamömmu og er hún alsæl
með Thealoz dropana.
Elín Björk Ragnarsdóttir
Þurrkur í augum?
Thealoz augndropar
Fæst í öllum helstu apótekum.
Reyna að hagnast
á hetjunum okkar
n Mörg dæmi um ólöglega notkun á ímynd landsliðsins n Samstarfsaðilar mega einir nota merki KSÍ
A
ðeins samstarfsaðilum KSÍ
er heimilt að nota merki
KSÍ, þar með talinn lands-
liðsbúninginn og leikmenn
klædda honum, í markaðs-
legum tilgangi. Allmörg dæmi eru
um að fyrirtæki hafi í tengslum við
þátttöku karlalandsliðsins á EM, birt
myndir af landsliðsmönnum – til
dæmis úr leikjum – með stuðnings-
kveðju eða öðrum skilaboðum. Slíkt
er óheimilt með öllu og felur í sér
misnotkun á vörumerki KSÍ.
Darri Johansen, markaðsráðgjafi
hjá Pipar/TBWA, hefur fylgst með
ólöglegri notkun fyrirtækja á vöru-
merki KSÍ og landsliðsbúningnum,
fyrir hönd KSÍ. Hann segir að eftir
Englandsleikinn hafi ólögleg notkun
myndefnis tekið kipp. „Þetta jókst
með betri árangri landsliðsins,“ segir
Darri í samtali við DV. Hann segir
dæmi um að fyrirtæki hafi prentað
bæklinga og dreift í hús þar sem
landsliðsmenn í búningi voru á ljós-
myndum. Nokkur brotin hafi birst á
samfélagsmiðlum á borð við Face-
book og Instagram; svo sem í auglýs-
ingum fyrir bjór og annan varning.
Gert í hugsunarleysi
„Í langflestum tilvikum er þetta gert í
hugsunarleysi,“ segir Darri um brot-
in. Hann hafi þá haft samband við
fyrirtækin sem langflest hafi brugðist
vel við athugasemdum, haft skilning
á reglunum og fjarlægt auglýsingarn-
ar eftir mætti. „Einhverjum fannst
súrt að geta ekki tengt sig lands-
liðinu, sérstaklega þeim sem selja
vörur sem tengjast boltanum að ein-
hverju leyti.“
KSÍ orðið alþjóðlegt vörumerki
Darri segir að fáein dæmi hafi kom-
ið upp áður en Evrópumótið hófst en
að þetta hafi færst í aukana eftir því
sem landsliðinu gekk betur á mótinu.
Hann áætlar að um tíu til fimmt-
án dæmi um ólöglega notkun vöru-
merkis KSÍ eða landsliðsbúningsins
hafi komið upp meðan á þátttöku
Íslendinga á EM stóð. „Árangurinn
hefur vakið mikla athygli og íslenska
landsliðið hefur verið mikið í kast-
ljósinu. Í ljósi þessa góða árangurs
má segja að KSÍ og landsliðið séu í
raun orðin alþjóðlegt vörumerki,“
segir Darri.
Hann telur að í ljósi þess þurfi
áfram að fara fram vöktun á notkun
vörumerkisins. „Maður skilur alveg
að fyrirtæki vilji tengja sig við lands-
liðið en það er ekki leyfilegt að hver
sem er geti nýtt sér landsliðsbún-
inginn og landsliðsmenn með þess-
um hætti.“
Lars fyrir Landsbankann
Mjög vinsælt er fyrirtæki semji við
landsliðsmenn um að leika í aug-
lýsingum, til að reyna að auka sölu á
vörum þeirra. Margir landsliðsmenn
í knattspyrnu hafa þannig á undan-
förnum vikum birst í auglýsingum
íslenskra fyrirtækja. Þar má nefna
auglýsingar frá Skyr, Lýsi, Vífilfelli,
Norðlenska, MS og Gilbert úrsmiði,
auk þess sem þjálfarinn Lars Lager-
bäck kom fram í sjónvarpsauglýsingu
fyrir Landsbankann. Í þessum tilvik-
um er ýmist um að ræða auglýsingar
frá styrktaraðilum KSÍ eða auglýs-
ingar þar sem fyrirtæki semja beint
við leikmenn og taka upp auglýsingar
án þess að landsliðið eða KSÍ komi
fyrir. Við þetta er ekkert að athuga.
Samið beint við leikmenn
Þær upplýsingar fengust hjá KSÍ að
landsliðsmönnum sé í sjálfsvald sett
í hvaða auglýsingum þeir leika. Þar
semji fyrirtækin við leikmennina án
aðkomu KSÍ. Fyrirtækjunum sé hins
vegar ekki heimilt að birta myndefni
af landsliðsmönnunum í landsliðs-
búningi eða æfingaklæðnaði KSÍ í
auglýsingum. Dæmi um slíkar aug-
lýsingar eru auglýsingin þar sem
Eiður Smári Guðjohnsen auglýsir
Skyr og Alfreð Finnbogason Lýsi. Að-
eins samstarfsaðilum KSÍ er heimilt
að birta auglýsingar þar sem menn
sjást í landsliðsbúningi. Þeir eru
Borgun, Coca-Cola, Landsbankinn,
Lengjan, Icelandair og N1. n
„ Í langflestum til-
vikum er þetta
gert í hugsunarleysi. Vinsælir Fyrirtæki hafa sum hver gengið full frjálslega um veiðilendur
viðskiptatækifæranna. Mynd epa
Lýsi Alfreð Finn-
bogason leikur í
auglýsingu frá Lýsi.
Þar sést ekkert í
landsliðsbúninginn
eða merki KSÍ, eins
og reglur kveða
á um.
Á æfingu
Nokkuð er síðan Kolbeinn Sigþórsson fór
að birtast í auglýsingum fyrir MS, þar sem
próteindrykkurinn Hleðsla er auglýstur. Það
er í góðu lagi þar sem landsliðsbúningurinn
eða merki KSÍ kemur ekki fyrir.
eiður borðar skyr Mikið var lagt
nýlega í auglýsingaherferð fyrir skyr. Þar
kemur fjölskylda Eiðs fram en ekkert er í
auglýsingunni sem tengir hann beint við
landsliðið. Það er ekki tilviljun enda er MS
ekki samstarfsaðili KSÍ.
Landsbankaauglýsing Lars Lagerbäck
lék nýverið í auglýsingu fyrir Landsbankann.
Landsbankinn er á meðal styrktaraðila KSÍ,
enda sést í lógó sambandsins í auglýs-
ingunni, sem tekin er upp á Laugardalsvelli.
nokkrir saman Vífilfell, einn styrktaraðila KSÍ, tók upp auglýsingu þar sem Aron Einar
Gunnarsson leiðir nokkra landsliðsmenn inn á Laugardalsvöll.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is