Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Qupperneq 24
Helgarblað 8.–11. júlí 201620 Fólk Viðtal
Bandaríkjunum í blindni. Kannski
byrjaði þetta allt þar.“
Það gerðu valdhafar hér líka, ekki
satt?
„Þeir lýstu því yfir að við værum
staðföst þjóð. Við erum auðvitað í
NATO. Nú kemur í ljós að allt málið
var stútfullt af lygi. Hverju eiga ráða-
menn að trúa þegar mál eru kynnt
fyrir þeim? Hversu mikið er hægt að
kanna bakgrunn upplýsinga sem
lagðar eru til grundvallar til að taka
rétta afstöðu?“
Á að fara eftir lögum
Hvað finnst þér um stöðuna á Íslandi
hvað varðar móttöku flóttamanna?
Nýjasta málið snýst um Reginu sem er
ólétt og verið er að vísa úr landi með
tvö lítil börn.
„Ég er lögfræðingur og væri að
brjóta öll prinsipp ef ég segði annað
en að við verðum að fara eftir lög-
um. En af hverju eigum við að brjóta
lög í þessum málaflokki en ekki mála-
flokknum um fjármálastofnanir.“
Hvað fannst þér til dæmis um að-
gerðir prestanna í Laugarneskirkju?
„Ég gagnrýni þá aðgerð mjög. Ef
á að vinna á móti íslenskum lögum
undir merkjum Þjóðkirkjunnar er
ég tilbúin að flytja frumvarp um að-
skilnað ríkis og kirkju í þinginu. Það
er svo mikið af fólki á Íslandi sem á
bágt, hvar endar þetta og hvaða for-
dæmi er verið að skapa? Ég fer að ís-
lenskum lögum sjálf og ætlast til þess
að aðrir geri það líka. Ég get alveg
sagt þér að ég vildi ekki vera dóttir
eða eiginkona neins þeirra lögreglu-
manna sem þurftu að fara í þetta
verk í Laugarneskirkju. Myndbönd
voru tekin upp, og milljónir eru bún-
ar að horfa á þetta. Ég sárvorkenni
þeim og er búin að vera mjög hugsi
yfir þessu.“
Kommentakerfin haughús
Þú hefur verið mjög umdeild sem
stjórnmálamaður, og það hlýtur að
hafa verið talsvert álag. Þú hefur ver-
ið kölluð rasisti og ýmislegt annað.
Hvernig líður þér vegna þess?
„Þannig tal snertir mig ekki neitt
og ekki krakkana heldur. Ég er fædd
og uppalin í sveit og gekk alltaf í þau
verk sem þurfti að vinna, og var aldrei
að spá í hvort aðrir væru að horfa á
mig. Ég verð alltaf svo hissa þegar
þetta gerist. Ótrúlega skrítið að fólk
hafi svona miklar skoðanir á mér.“
Er þetta bara gaman?
„Já, mér finnst þetta svolítið gam-
an. Svo er uppáhaldið mitt þegar mér
er líkt við Söruh Palin í Bandaríkjun-
um. Fólk á svo bágt stundum.“
Hugnast þér Palin?
„Nei, alls ekki, en það er alltaf ver-
ið að reyna að finna eitthvað til að
gera lítið úr mér. Þeir aðilar sem eru
að þessu halda að þeir séu að gera
mér mikinn óleik. Ég hugsa stund-
um um hvað þetta fólk sé eigin lega
að gera í lífinu. Er það að vinna, er
það með laun, er þetta fólk á bótum
eða vinnur það hjá hinu opinbera?
Skattfénu er illa verið þegar tíminn
er nýttur í þetta. Hvað fer þetta fólk
að gera þegar ég hætti? Það hlýtur að
skapast tómarúm. Það er afar skrít-
ið að fólk skuli standa í því á Face-
book að búa til einhverja gervimenn
til þess eins að pönkast í mér. Ég kalla
kommentakerfin bara haughús. Líður
þessu fólki svona illa, eða hefur það
ekkert að gera? Svæsnasti gervimað-
urinn var stofnaður eftir hinn mikla
kosningasigur minn 2013, þegar ég
náði því að verða annar þingmaður
Reykjavíkur. Þá var einhverjum inn-
an míns flokks svo mikið í mun að ég
yrði ekki ráðherra að það var stofn-
aður heill gervimaður sem var látinn
drulla út alla veggi og öll kommenta-
kerfi. Svo kom í ljós að myndin var af
agalega myndarlegum norskum pí-
anósnillingi. Mig grunar hver þetta
var, en ég held að hann viti ekki að ég
veit. Ég setti þetta á Facebook og fór í
viðtal á Stöð 2 í kjölfarið, og þá var öllu
sem gervimaðurinn hafði sett á netið
eytt samstundis.“
Fengur að Lilju
Þú hefur stundum sagt að fjölmiðlar
væru ósanngjarnir við þig og orð þín
hafa verið túlkuð þannig að þú haf-
ir hótað að skera niður fjárframlög til
RÚV. Hafa fjölmiðlarnir verið slæmir?
„Þegar upp er staðið finnst mér
það ekki, þeir eru bara svona afskap-
lega áhugasamir um mig. Ég gæti
verið í 2–3 viðtölum á dag og farið
létt með það. Ég hef aldrei nokkurn
tímann beðið sjálf um viðtöl, eða
reynt að koma sjálfri mér á framfæri,
nema þegar ég sendi frá mér yfir-
lýsinguna um að ég væri að hætta á
þingi.“
Á Sigmundur Davíð að leiða
flokkinn áfram?
„Flokksþing verður vonandi
haldið strax í haust og þar verður sú
ákvörðun tekin. Við þurfum líka að
endurnýja okkar stefnu fyrir kosn-
ingar. Við getum ekki farið aftur í
kosningar með loforð um að ná pen-
ingum af kröfuhöfum og fella nið-
ur skuldir heimilanna. Það þarf að
koma eitthvað nýtt til. Sigmundur
verður að taka ákvörðun um hvort
hann gefur kost á sér áfram í for-
mennsku. En ef ég hugsa um þetta
á mannlegum nótum þá er ég alveg
hissa á að Sigmundur hafi ekki bara
einn góðan veðurdaginn staðið upp
og sagt „fokkjú, þið kunnið ekki gott
að meta“.“
Væri betra fyrir flokkinn og þjóð-
ina að hann færi – eða er hann bara
málið?
„Svo ég segi það bara hreint
út, þá studdi ég Höskuld í for-
mannskjörinu 2009. En Sigmundur
Davíð var lýðræðislega kosinn og ég
stend með mínum foringja. Ef Sig-
mundur fer fram og geldur afhroð
er sú staða skýr. Fari hann fram og
vinni stór sigur er sú staða líka skýr.
Flokkurinn á margar flottar konur
og það er mikill fengur að hafa feng-
ið Lilju. Ef Lilja færi í formanns-
framboð í framtíðinni og Sigmund-
ur hætti – myndi ég styðja hana. Það
þarf engan snilling í markaðsmálum
til að sjá að það yrði best fyrir flokk-
inn að ég mundi leiða Reykjavíkur-
kjördæmi suður og Lilja Reykja-
víkurkjördæmi norður. En ég mun
auðvitað ekki gefa kost á mér svo að
hún gæti valið sitt kjördæmi ef hún
hefur áhuga.
Ég mun starfa með flokknum
áfram. Ég er svo pólitísk að ég get
aldrei slitið mig alveg frá þessu.
Sviðið er laust og ég ætla ekki að
vera með einhverja afskiptasemi og
leiðindi á kantinum. Svo er pólitík
svo miklu meira en þingið og snýst
um samfélagið allt. Ég þarf ekki
endilega að sitja í steinhúsi við Aust-
urvöll og reyna að búa til lög.“
Trúi á Guð
Hvað ætlarðu að gera núna? Ætlarðu
að hella þér út í blómaskreytingar eða
lögmennsku?
„Ég veit það ekki, og mér finnst
það svo spennandi. Ég hefði nú
varla farið út í sex ára háskólanám
í lögfræði ef ég ætlaði mér aldrei
að nota það. Ég á eftir að ná mér
í réttindi héraðsdómslögmanns
og hæstaréttarlögmanns. Þegar
ég var nýútskrifuð opnaðist óvænt
sá möguleiki að fara á þing. Það er
mjög skrítin upplifun að sitja á þingi
með háskólamenntun og horfa upp
á kjararáð á einni nóttu hækka laun
ráðuneytisstjóra um það sem sam-
svarar þingfararkaupi á mánuði.
Sú launastefna kjararáðs að halda
þingmönnum undir meðal aunum
til dæmis háskólamenntaðra, leiðir
af sér að löggjafinn verður veikari og
veikari. Það er þá annaðhvort fólk
sem á fjársterka maka, eins og Sig-
mundur Davíð, sem getur stund-
að þingmennsku, eða fólk sem er
nægjusamara. Með þessu móti
missum við allt okkar fólk út í at-
vinnulífið þar sem hæfileikar þess
nýtast en við þyrftum að nýta þessa
krafta inni á þingi.“
Ertu femínisti?
„Ekki eins og femínistar skil-
greina sig. Ég vil að konur og karlar
hafi jöfn réttindi í þessu samfélagi
og vil kalla mig jafnréttissinna.“
Trúirðu á Guð?
„Já, ég trúi en er ekki trúrækin. Í
nútímasamfélagi er kirkjan afgangs,
en ég er mjög stolt af því að Dóm-
kirkjan hafi hlutverk í þingsetningu
og öðrum hátíðlegum athöfnum
á þinginu. Ég lít á kirkjuna og ríkið
sem órjúfanlega heild – en ber fulla
virðingu fyrir þeim sem eru trúlausir
eða trúa á eitthvað annað en ég. Það
er trúfrelsi í landinu.“
Hvað með yfirskilvitleg fyrirbæri,
hefurðu til dæmis séð draug?
„Já, ég er mjög trúuð á slíkt. Ég er
meira að segja mjög næm sjálf. Ég
finn á mér hluti og er með gríðar-
lega sterkt innsæi. Ég sá draug í
barnaskólanum sem ég gekk í. Þar
ruggaði ruggustóll af sjálfum sér og
það var alltaf umgangur uppi á lofti
þó að enginn væri þar. Sömuleiðis
er ég sannfærð um líf eftir dauð-
ann og trúi á orku og kraft, til dæmis
í Snæfellsjökli. Við sem erum fædd
hér á Íslandi höfum ákveðna orku
til að bera og erum kannski framar
öðrum þjóðum í innsæi. Við getum
myndað svo mikla orku eins og sást
til dæmis síðast á EM.“
Hlakkar til að hætta
Er eitthvert pláss í lífinu fyrir áhuga-
mál?
„Ég keypti íbúð í Hlíðunum í fyrra
með frábærum garði. Fyrir austan
fjall rækta ég matjurtir með Maríu
systur minni. Það hefur nú ekki
verið mikið um frístundir. Ég hlakka
til að hætta því ég get farið að sinna
fjölskyldu og vinum miklu meira
en að undanförnu. Fyrstu vikurnar
mun ég hvíla mig. Svo finnst mér
dásamlegt að ferðast og er nýlega
orðin mikill Ítalíuaðdáandi.“
Hvað með ástalífið, ertu eitthvað
að fara á stefnumót?
„Ég var gift en skildi 2002. Síðan
þá hef ég verið ein – ekki fundið
þann eina rétta. Ég var einu sinni í
saumaklúbbi með ótrúlega hressum
vinkonum sem skráðu mig á Tinder
og nokkrum mínútum síðar var það
komið í fjölmiðla. Ég entist kannski
10 mínútur þar. Ég verð bara að fara
að ganga í að finna mér kærasta. Ég
held að það væri kostur að hann væri
ekki framsóknarmaður, því ég mundi
helst ekki vilja ræða þau mál við
elskhugann. Húmor skiptir öllu og
að maðurinn sé vel gáfum gæddur,
annað er opið. Það er orðið ansi langt
síðan ég var skotin síðast!“ n
„Ef Lilja færi í for-
mannsframboð í
framtíðinni og Sigmundur
hætti – myndi ég styðja
hana.
Ekki fundið
þann rétta
Alþingiskonan
hafði ekki mikinn
tíma til að leita
að ástinni.
Mynd SiGTryGGur Ari
„Ég finn á mér
hluti og er með
gríðarlega sterkt
innsæi. Ég sá draug í
barnaskólanum sem
ég gekk í.
Fanntófell ehf. | Bíldshöfða 12 | 110 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
· Viðhaldsfrítt, mikil ending og endalausir
möguleikar í hönnun.
· Upplitast ekki, dregur ekki í sig lit, raka,
óhreinindi eða bakteríur.
· Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði
og almenningssvæði.
AKRÍLSTEINN,
HARÐPLAST
OG FENIX
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.