Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Page 32
Helgarblað 8.–11. júlí 201628 Menning
Einu eggin á neytendamarkaði
með löggilda vottun
Lífrænu hænurnar
hjá Nesbúeggjum
• Fá lífrænt fóður
• Fá mikið pláss
• Njóta útiveru
nesbu.is
NESBÚ
EGG
HVAR ER SÓSAN?
Það er alltaf gott veður til að grilla. Kjötið, hvernig skuli meðhöndla það, og meðlæti skipta
að sjálfsögðu máli. Allt er þetta þó til einskis ef sósan gleymist, því þar liggur fullkomnunin.
Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson.
Geimverurnar snúa aftur
Þ
að er freistandi að líta svo á að
forsetinn í Independence Day
2, leikinn af Bill Pullman, sé
ígildi Nigel Farage, sem lýsir
yfir degi sjálfstæðis fyrir hina góðu
í baráttu sinni við hreina illsku, og
geimverurnar þá ígildi ESB. En hér
er um að ræða framhald myndar frá
1996. Og hún hefur að mörgu leyti
sömu kosti og galla.
Fyrri myndin var mikið sjónar
spil, og varð reyndar næstvinsælasta
mynd sögunnar á sínum tíma. Við
höfðum sjaldan séð álíka stórslysa
mynd, þar sem öll helstu mannvirki
Bandaríkjanna voru lögð í rúst. Nú er
það hins vegar daglegt brauð, bæði í
bíó og í fréttum. Manni hálfleiddist
undir álíka senum í síðustu XMen.
Og meira er ekki endilega betra.
Það er ágætt að myndin er með
vituð um að hún gerist 20 árum síðar.
Mannkyn hefur lært að vinna saman,
enda þarf líklega geimveruárás til að
við förum að líta svo á að við séum
öll sömu tegundar. Mennirnir hafa
að einhverju leyti tileinkað sér tækni
geimveranna, og jafnvel fundið aftur
leiðina á tunglið.
En helsti galli fyrri myndarinnar
var að eftir að hún lýsti geimverun
um sem nánast ósigrandi í upphafi
leystist svo undarlega auðveldlega
úr öllu saman. Og það er skringi
lega miðaldalegur hugsunarháttur
að láta helstu leiðtoga, bæði forseta
og geimdrottningar, halda í slaginn
persónulega. Til hvers eru þá allir
þessir herir?
Geimverustríðsmyndir er geiri
sem undirritaður er almennt hrifin
af, en því miður er of margt hér sem
misferst. Í næstu mynd mun sögu
sviðið víst færast út í geim, sem er
mátulega spennandi, en vonandi
verða þá aðrir höfundar á ferð. n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
Independence
Day: Resurgence
IMDb 5,6 RottenTomatoes 30% Metacritic 32
Leikstjórn: Roland Emmerich
Aðalhlutverk: Liam Hemsworth, Bill
Pullman og Jeff Goldblum
Handrit: Roland Emmerich og fleiri
120 mínútur
þótt það sé frábært að fá að ferðast
um heiminn að gera það sem maður
elskar henti það illa með annarri
vinnu og fjölskyldulífi, þá sé nýja
brumið einnig fljótt að fara af rokk
stjörnulíferninu, djamminu og
djúsinu.
„Þú brennir bara brýr að baki þér,
og við höfum gert það – oftar en einu
sinni og oftar en tvisvar. Við höfum
farið á festivöl og hagað okkur eins
og hálfvitar, höfum þurft að biðjast
afsökunar margfalt eða borgað
háar fjárhæðir,“ segir Addi og leggur
áherslu á að slíkt komi alltaf í bak
ið á hljómsveitum enda spyrjist slíkt
fljótt út í litlum heimi tónleikahalds
og hátíða.
Hann leggur þó enn frekari
áherslu á að djammlíferni á tón
leikaferðalögum komi niður á þeim
sjálfum og áhorfendum. „Við erum
komnir á þann stað að það er fólk
sem keyrir kannski í sjö klukkutíma
aðra leið til að sjá okkur – fólk sem
er í vinnu og með börn leggur það á
sig. Ég get ekki boðið þessu fólki upp
á að ég eða einhver annar í hljóm
sveitinni sé dauðadrukkinn uppi á
sviði,“ segir hann.
Sár skilnaður við stofnmeðlim
Áður en tónleikaferðalagið fyr
ir Óttu hófst urðu mannaskipti í
Sólstöfum sem urðu fréttamatur í
kjölfarið. Einn stofnmeðlimurinn,
trommarinn Guðmundur Óli, sendi
frá sér opinbera yfirlýsingu þar sem
hann kvaðst hafa verið rekinn úr
sveitinni og lýsti atburðarásinni frá
sínum bæjardyrum séð.
Í kjölfarið stefndi hann Aðalbirni
og hinum hljómsveitarfélögum sín
um fyrir að nota nafn og vörumerki
sveitarinnar í óleyfi en málinu var
vísað frá héraðsdómi í byrjun þessa
árs. Addi vill lítið segja um málið, en
það er augljóst að það hefur tekið á
alla hljómsveitarmeðlimi.
„Það er alltaf erfitt þegar leiðir
skilur, hvort sem það tengist vinnu
stöðum, hjónaböndum, keiluklúbb
um eða hljómsveitum. Menn eru
búnir að leggja mikið á sig lengi og
svo þegar samstarfið gengur ekki
upp, þá er eðlilegt að menn verði
ósáttir. Við vissum vel að þetta yrði
ekki gert í sátt og samlyndi, en það
var reynt að gera þetta þannig að allir
gætu gengið burt sáttir. Kannski var
það ómögulegt,“ segir hann.
„En það var annaðhvort að hætta
með hljómsveitina eða skilja við
einn meðlim, og við völdum seinni
kostinn, því okkur langaði að halda
áfram að semja tónlist saman,“ segir
Addi.
Frá því í júní í fyrra hefur Hall
grímur Jón Hallgrímsson, úr Tender
foot og Jeff Who?, því haldið á
kjuðunum og mun halda áfram sem
trommari sveitarinnar.
Hafa alltaf spilað á Eistnaflugi
Næsta verkefni Sólstafa eru tvenn
ir tónleikar á Eistnaflugi. Þar leika
Amiina og Martin CurtisPowell
með sveitinni. Sólstafir hafa spilað
á Eistnaflugi frá því að hátíðin var
haldin fyrst, en aðeins Momentum
hafa verið jafn staðfastir.
Addi rifjar upp að enginn hefði
getast búist við því að hátíðin myndi
lifa svo lengi. Fyrsta árið hafi átta
þungarokkbönd mætt í Neskaup
stað en aðeins um 30 manns verið í
salnum. „Ég bjóst aldrei við að koma
aftur á Norðfjörð,“ segir hann. En tólf
árum seinna er Addi enn að mæta,
og hátíðin orðin að risaviðburði í
rokkheiminum, þar sem alþjóðlegar
stórstjörnur á borð við Meshuggah
og Opeth spila.
Eistnaflug er einn helsti vettvang
ur íslensku þungarokksenunnar,
sem Addi segir vera í miklum blóma
um þessar mundir: „Fólk heldur
vart vatni yfir böndum eins og Mis
þyrmingu, það er bara bjartasta von
in í „blackmetal“ heiminum í dag.
Hvernig gerðist þetta? Þegar við vor
um að spila „blackmetal“ þá var Ís
land sko ekki „hotspot“ fyrir svart
málm. Fólk var bara: „Hvað eruð þið
að reyna? Þið eruð ekki frá Noregi og
ekki Englandi, gleymið þessu!“ Það
er mikill metnaður í hljómsveitum
núna, þær eru að gefa út og ferðast
um heiminn, sem er frábært, því það
er svo mikið af góðum íslenskum
böndum sem hafa bara gefist upp í
gegnum tíðina – aldrei komist lengra
en á Grand Rokk,“ segir Addi.
Sólstafir eru um þessar mundir að
semja lög í sameiningu fyrir næstu
plötu, en lögin segir hann vera í
stöðugri mótun og ómögulegt að vita
hvernig þau enda. „Allt sem maður
gerir í lífinu hefur áhrif á tónlistina.
Oft finnst mér eins og ég sé með
GPStæki á bakinu, svo kem ég heim
og prenta út hvar ég hef verið, það er
svolítið eins og þegar maður semur
lag, þá getur maður sýnt hvar maður
hefur verið, hvað maður hefur hugs
að og hvað maður hefur séð. Ég veit
ekkert hvernig næsta lag verður, lífið
er svo óútreiknanlegt.“ n
„Ég veit ekkert
hvernig næsta
lag verður, lífið er svo
óútreiknanlegt.