Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Blaðsíða 14
Vikublað 12.–14. júlí 201614 Fréttir Erlent Klif ehf • Grandagarði 13, Reykjavík Sími 552-3300 • www.klif.is Gróðurhús í úrvali Mislingafaraldur rakinn til andstæðinga bólusetninga Á rið 2000 höfðu mislingar ver- ið upprættir í Bandaríkjun- um. Síðustu tvö ár hafa nokk- ur tilfelli sjúkdómsins skotið upp kollinum. Skýringuna má rekja til foreldra barna sem telja að bólusetningar geti valdið einangrun. Frá þessu greinir tímaritið Time Magazine og vitnar í Associated Press. Þar segir að heilbrigðisyfirvöld í Arizona hafi komist að þeirri niður- stöðu að stærsta mislingafaraldur aldarinnar megi að hluta til rekja til þess að sumir starfsmanna innflytj- enda- og tollaeftirlitsins (ICE) í rík- inu hafi neitað að láta bólusetja sig. Tuttugu og tvö staðfest tilfelli mislinga hafa verið skráð síðan seint í maí. Öll tilvikin má rekja til Eloy Det- ention Center, fangelsi á vegum inn- flytjendaeftirlitsins, rekið af Correct- ions Corporation of America (CCA). Starfsfólkið tregt til Haft er eftir Thomas Schryer, yfir- manni heilbrigðismála í Pinal-sýslu í Arizona, að veiran hafi líklega borist til svæðisins með innflytj- anda en að fangar hafi síðan ver- ið bólusettir. Erfiðara hafi reynst að fá starfsfólk til að gangast undir bólusetningu eða fá þá til að sanna ónæmi sitt. „Fyrir vikið eru það þeir sem smita hver annan og það- an berst þetta út í samfélagið,“ seg- ir Schryer. Á staðnum vinna samtals um 450 manns, þar af um 100 á vegum ICE, en ICE gefur ekki upp nákvæman starfsmannafjölda og setur engar kvaðir á starfsfólk um að gang- ast undir bólusetningar. Fangarn- ir eru um 1.200. Talsmaður ICE, Yasmeen Pitts O‘ Keefe, segir að til ýmissa aðgerða hafi verið gripið til að reyna að hindra frekari smit, svo sem eins og að bjóða upp á bólu- setningar og útvega búnað á borð við hanska og grímur. CCA segir að flestir starfsmenn hafi verið bólu- settir en að þeir sem ekki hafi gert það séu skikkaðir til að nota grímur eða halda sig heima. Banvænt fyrir ungbörn Yfirvöld í Arizona segja að margir starfsmenn CCA hafi verið bólu- settir undanfarna daga. „Þegar það rennur upp fyrir þeim hvaða af- leiðingar þetta hefur á samfélag- ið þá verða fyrirtækin samvinnu- þýðari,“ er haft eftir Cöru Christ hjá Arizona Department of Health Services. „Við vonumst eftir jákvæð- um viðbrögðum frá ICE.“ Fram kemur í greininni að mislingar séu bráðsmitandi en bólusetningar virki afar vel gegn veirunni. Árið 2000 hafi mislingar heyrt sögunni til í Bandaríkjunum en að hræðsla við bólusetningar hafi fært ástandið til verri vegar. Mislingar leggist ekki þungt á fólk ef yngstu börnin séu undanskilin en börn yngri en eins árs geti ekki myndað ónæmi fyrir veirunni. Hún geti því verið þeim banvæn. Í greininni kemur fram að í fyrra hafi farið af stað mislingafaraldur í Disneylandi í Kaliforníu. Yfirvöld gáfu þá út að faraldurinn mætti að stærstum hluta rekja til foreldra sem vildu ekki láta bólusetja börnin sín. Ókeypis bólusetningar og fræðsla Arizona-ríki bólusetur fanga og starfsfólk í Eloy þeim að kostnað- arlausu auk þess sem læknar fræða starfsfólk um mislinga og baráttuna gegn þeim. Schryer segir að fólkið sem sé á móti bólusetningum van- meti hættuna sem fylgi mislingum. Einn starfsmaður lá fjóra daga á spít- ala eftir að hafa veikst illa. „Fjögurra daga sjúkrahúsvist er vísbending um mikil veikindi. Þetta er ekki eitthvað sem maður leikur sér að, kannski eru þau að vanmeta alvarleikann sem fylgir þessari afstöðu.“ n n Sjúkdómurinn var talinn upprættur í Bandaríkjunum n Fangaverðir vilja ekki bólusetningu Einkenni mislinga koma fram um 10–12 dögum eftir smit og geta verið mismikil eftir einstaklingum. Þau byrja oft með flensulíkum einkennum, þ.e. hita, nef- rennsli, sviða í augum, hósta, bólgnum eitlum og höfuðverk. Á þriðja eða fjórða degi veikindanna koma í flestum tilfellum fram útbrot sem ná yfir allan líkamann og standa í 3–4 daga eða þar til sjúkdómur- inn fer að réna. Mislingaveiran getur verið hættuleg og jafnvel valdið dauða. Alvarlegir sjúk- dómar eins og eyrna- eða lungnabólga, kviðverkir, uppköst, niðurgangur og einnig heilabólga geta verið afleiðing mislinga. Alvarlegar heilaskemmdir af völdum mislinga geta einnig komið fram mörgum mánuðum eftir sýkinguna. Einkenni mislinga Af vef Landlæknis Mislingar Veiran getur dregið ung börn til dauða. Mynd 123rf.coM Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Bólusetning Mislingar eru mjög smitandi en börn geta ekki myndað ónæmi fyrir veirunni fyrr en eftir eins árs aldur. Mynd 123rf.coM „Fyrir vikið eru það þeir sem smita hver annan og þaðan berst þetta út í samfélagið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.