Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Qupperneq 20
Vikublað 12.–14. júlí 20164 Flutningaþjónusta - Kynningarblað
Valkostur við
flutningarisana tvo
É
g er valkostur við Eimskip og
Samskip um búslóðaflutn-
inga milli Íslands og Skandin-
avíu og vöruflutninga innan-
lands. Stundum er ég allt að
40% ódýrari, stundum næ ég ekki
að vera ódýrari, það fer allt eftir eðli
verkefnanna hverju sinni. Hér er
engin yfirbygging og þjónustan er
hurð í hurð, það eru engin vöruhús,
lyftarar eða starfsfólk á milli, sem
sagt engir milliliðir, heldur flyt ég
vöruna eða búslóðina upp að dyr-
um í hvert einasta skipti.“
Þetta segir Jón Tómas Ásmunds-
son, sem rekur flutningaþjónustu
undir heitinu Vöruflutningar.is.
Hann hefur starfað við vöruflutn-
inga frá árinu 1993 og kveður þar
mest að reglulegum vöruflutning-
um milli Reykjavíkur og Akureyrar
sem fara fram tvisvar í hverri viku.
En síðustu fimm ár hafa
búslóðaflutningar milli Íslands og
Norðurlandanna verið mjög fyrir-
ferðarmiklir. Jón segist raunar líka
hafa flutt búslóðir til Spánar og er
hann opinn fyrir flutningum hvert
sem er, en langmest kveður að
Skandinavíu-flutningunum. Flutn-
ingabílunum er þá ekið til Seyðis-
fjarðar þar sem þeir fara um borð
í Norrænu. Túrinn tekur allt í allt
tvær vikur.
Jón Tómas segir marga veigra sér
við að nýta sér þjónustu hans þar
sem þeir finni meira öryggi í því að
skipta við þekkt fyrirtæki eins og
Eimskip og Samskip. Reynslan og
orðsporið vinni hins vegar alltaf
með honum og þeir sem hafi einu
sinni átt viðskipti við hann mæli nær
alltaf með honum við aðra. Einfald-
ur rekstur og engin yfirbygging gera
honum kleift að bjóða oft mun betra
verð en stóru flutningafélögin.
„Ég er með þrjá flutningabíla í
eigin eigu en ég kalla alltaf til mín
samstarfsaðila fyrir stærri verkefni.
Ég er í samstarfi við nokkra félaga
sem sinna vöruflutningum eins og
ég en ég er sá eini þeirra sem er í
búslóðaflutningum milli Íslands og
Norðurlandanna. En ég get einfald-
lega tekið það með mér sem hent-
ar hverju sinni og ef ég er búinn að
fylla mína bíla hef ég einfaldlega
samband við félagana.“
Að sögn Jóns Tómasar er um
95% af innlendri starfsemi hans
vöruflutningar og 95% af starfsemi
hans búslóðaflutningar milli landa.
Hann er hins vegar alltaf opinn fyr-
ir annars konar verkefnum og ger-
ir sér far um að bjóða ávallt mjög
samkeppnisfært og hagstætt verð.
Nánari upplýsingar um þjón-
ustuna veitir Jón Tómas í síma
8962063 en einnig er áhugavert að
skoða heimasíðuna voruflutningar.
is og Facebook-hópinn Jón Tómas
Flutningar- Ísland Noregur- Noreg-
ur Ísland, til að fá upplýsingar um
þjónustuna. n
Jón Tómas og Vöruflutningar.is