Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Blaðsíða 24
Vikublað 12.–14. júlí 20168 Flutningaþjónusta - Kynningarblað
Allar gerðir af gámum fyrir
einstaklinga og atvinnulífið
Stólpi Gámar hafa flutt gámasölu og gámaleigu á nýjan og betri stað
F
yrirtækið Stólpi Gámar
flutti nýlega gámasölu og
gámaleigu sína á nýjan stað,
að Óseyrarbraut 12 í Hafnar-
firði. Þar er lokað, afgirt og
einstaklega öruggt geymslusvæði.
Jafnframt þessu býður fyrirtækið
nú upp á þá nýjung í þjónustu sinni
að hægt er að vera með gáma fyr-
ir utan afgirta svæðið þar sem not-
endur þeirra hafa aðgang að þeim
allan sólarhringinn, geta gengið að
þeim eins og bílskúr. Stólpi Gámar
hafa til leigu afar notadrjúga
geymslugáma sem
koma að fjölbreyttum notum, allt
frá geymslu búslóða upp í að nýtast
sem aukalagerpláss fyrir verslanir:
„Það er hægt að nýta sér þetta á
svo margan hátt – enda er töluvert
um að fyrirtæki notfæri sér þessa
möguleika. Við getum geymt gám-
inn sem er í notkun hjá okkur ef ósk-
að er. Snemma á þessu ári keypt-
um við 100 nýja geymslugáma til
að mæta vaxandi eftirspurn en við
höfum næga gáma tiltæka til að
mæta þessum þörfum fyrirtækja.
Þetta eru splunkunýir gámar sem
eingöngu eru notaðir til geymslu á
búslóðum eða vörum – í þetta fara
bara hreinir og þurrir hlutir,“ segir
Hilmar Hákonarson, sölustjóri hjá
Stólpi Gámar.
Leiga á kæli- og frystigámum
hefur jafnframt farið vaxandi hjá
fyrirtækinu en fyrir skömmu voru
teknir gámar í notkun sem til dæm-
is fyrirtæki í sjávarútvegi og kjöt-
vinnslu nýta sér mikið. Einnig eru
þessir gámar úrræði sem verslan-
ir nýta sér þegar til dæmis kemur
upp bilun í kæli. Þessa þjónustu er
yfirleitt hægt að fá með engum fyr-
irvara því Stólpi Gám-
ar hef-
ur nær alltaf
tiltæka frysti-
gáma sem
eru tilbún-
ir til notkunar
hvenær sem er.
Stólpi Gám-
ar býður þrjár
stærðir af
frystigámum;
tíu feta gáma
sem eru þriggja
metra langir,
20 feta sem eru
sex metra langir
og 40 feta sem eru 12
metra langir.
Nánari upplýsingar um
gámasölu og gámaleigu hjá Stólpi
Gám-
ar er að
finna á vefsíð-
unni stolpigamar.is og
í síma 568 0100. n