Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2016, Qupperneq 24
Vikublað 12.–14. júlí 20168 Flutningaþjónusta - Kynningarblað Allar gerðir af gámum fyrir einstaklinga og atvinnulífið Stólpi Gámar hafa flutt gámasölu og gámaleigu á nýjan og betri stað F yrirtækið Stólpi Gámar flutti nýlega gámasölu og gámaleigu sína á nýjan stað, að Óseyrarbraut 12 í Hafnar- firði. Þar er lokað, afgirt og einstaklega öruggt geymslusvæði. Jafnframt þessu býður fyrirtækið nú upp á þá nýjung í þjónustu sinni að hægt er að vera með gáma fyr- ir utan afgirta svæðið þar sem not- endur þeirra hafa aðgang að þeim allan sólarhringinn, geta gengið að þeim eins og bílskúr. Stólpi Gámar hafa til leigu afar notadrjúga geymslugáma sem koma að fjölbreyttum notum, allt frá geymslu búslóða upp í að nýtast sem aukalagerpláss fyrir verslanir: „Það er hægt að nýta sér þetta á svo margan hátt – enda er töluvert um að fyrirtæki notfæri sér þessa möguleika. Við getum geymt gám- inn sem er í notkun hjá okkur ef ósk- að er. Snemma á þessu ári keypt- um við 100 nýja geymslugáma til að mæta vaxandi eftirspurn en við höfum næga gáma tiltæka til að mæta þessum þörfum fyrirtækja. Þetta eru splunkunýir gámar sem eingöngu eru notaðir til geymslu á búslóðum eða vörum – í þetta fara bara hreinir og þurrir hlutir,“ segir Hilmar Hákonarson, sölustjóri hjá Stólpi Gámar. Leiga á kæli- og frystigámum hefur jafnframt farið vaxandi hjá fyrirtækinu en fyrir skömmu voru teknir gámar í notkun sem til dæm- is fyrirtæki í sjávarútvegi og kjöt- vinnslu nýta sér mikið. Einnig eru þessir gámar úrræði sem verslan- ir nýta sér þegar til dæmis kemur upp bilun í kæli. Þessa þjónustu er yfirleitt hægt að fá með engum fyr- irvara því Stólpi Gám- ar hef- ur nær alltaf tiltæka frysti- gáma sem eru tilbún- ir til notkunar hvenær sem er. Stólpi Gám- ar býður þrjár stærðir af frystigámum; tíu feta gáma sem eru þriggja metra langir, 20 feta sem eru sex metra langir og 40 feta sem eru 12 metra langir. Nánari upplýsingar um gámasölu og gámaleigu hjá Stólpi Gám- ar er að finna á vefsíð- unni stolpigamar.is og í síma 568 0100. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.