Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Page 46
Helgarblað 19.–22. ágúst 201642 Fólk Skautabani í hjólaSkautaati Eyrún Þóra stefnir að því að fá erlend lið til landsins F yrir fjórum árum fékk Eyrún Þóra Guðmundsdóttir í hend- ur kynningarefni um Hjóla- skautaat (Roller derby) á Íslandi. Hjólaskautaat er jaðaríþrótt sem hefur á undanförn- um áratugum verið að ryðja sér til rúms úti í heimi. Eyrún Þóra ákvað að slá til og mætti á æfingu ásamt vinkonum sínum. Hún kolféll fyr- ir sportinu og hefur stundað það af kappi síðan. Eyrún Þóra er 25 ára þjóðfræði- nemi og starfar sem landvörður í Skaftafelli í sumar. Áður en hún byrj- aði í hjólaskautaati hafði hún ekki æft íþróttir að ráði en hafði hug á að byrja að stunda einhvers konar hreyf- ingu. Hana grunaði þó ekki að jaðar- íþróttagrein ætti eftir að leika stórt hlutverk í lífi hennar né að hjóla- skautaat yrði hennar helsta áhuga- mál og ástríða. „Fyrir fjórum árum fór ég í Hinseg- in gönguna með vinkonum mínum. Þar voru stelpur að dreifa kynningar- efni um Roller derby á Íslandi og vin- konur mínar urðu afar spenntar fyrir þessu. Ég var meira að hugsa að mig langaði til þess að fara að æfa eitt- hvað og ákvað að slá til vegna þess að vinkonur mínar voru svona áhuga- samar. Í dag eru þær allar hættar og ég er komin á fullt í þetta.“ Álit frá Árnastofnun Hjólaskautaat er nýyrði yfir Roller derby á íslensku. Hingað til hefur félagsskapurinn kallað sig Roller Derby Ísland en nú verður breyting þar á. „Já, það er gaman að segja frá því að íþróttin er það ný hérlendis að við vorum bara að taka upp þetta nafn „hjólaskautaat“. Innganga í ÍSÍ (Íþróttasamband Íslands) hefur meðal annars strandað á því að ekki var til íslenskt heiti yfir íþróttagrein- ina. Við óskuðum þess vegna eftir áliti frá Árnastofnun sem komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri besta orðið. Nú heitir þetta ekki lengur Roller Derby Iceland heldur hjóla- skautaat.“ Lítið hefur borið á hjólaskautaati eða keppnum því tengdu á Íslandi og fáir sem kannski átta sig á því út á hvað þetta gengur. Er hægt að segja frá því í einföldu máli? „Já, þetta er svokölluð jaðaríþrótt þar sem leikmenn spila á hjólaskaut- um. Hópíþrótt þar sem fimm skaut- arar spila saman í einu og keppt er á sporöskjulaga braut. Einn í liðinu er kallaður „Jammer“ og svo eru fjórir svokallaðir „Blokkerar“. Jammerinn er með stóra stjörnu á hjálminum og skorar stig fyrir liðið sitt með því að hringa (innskot blaðamanns: skauta einum hring meira en hin- ir í brautinni) aðra skautara úr hinu liðinu. Blokkerarnir mynda veggi á brautinni til að koma í veg fyrir að Jammerinn úr hinu liðinu nái að komast að þeim og hringa þá. Svo er þetta sýning sem gaman er að fylgjast með því hver spilari á sitt keppnis nafn og margir spila með einkennismálningu í andliti. Áður fyrr var keppt í kjólum, tjú tjúpilsum, netasokkabuxum, hnéháum sokkum og stuttum stuttbuxum. Undanfarin ár hefur þetta verið að breytast í íþróttamannslegri klæðnað og er það liður í því að fá viðurkenningu á sportinu.“ Stefnan að stofna fleiri lið Eyrún Þóra segir menninguna í kringum hjólaskautaatið einstaka og sérlega skemmtilega. Þá koma liðs- félagarnir að öllum hliðum er tengj- ast sportinu sem framkallar mikla ástríðu. „Þetta er ólíkt öllum öðrum íþróttum enda erum við að gera allt sjálfar. Ég hef til dæmis verið að skipuleggja það að fá lið frá útlönd- um til Íslands því við höfum enga til að keppa við. Sem betur fer er Ís- land í tísku svo allir vilja koma hing- að. Svo hefur þetta hingað til fyrst og fremst verið kvennasport og að- allega konur sem keppa í því. Það er þó eitthvað að breytast og karlar farnir að sýna þessu meiri áhuga.“ Eyrún Þóra talar af mikilli innlifun og augljóst að áhuginn er mikill. Hún hvetur alla forvitna til þess að kynna sér byrjendanám- skeið haustsins og kýla á þetta. „Í dag æfum við í Kórnum í Kópa- vogi tvisvar sinnum í viku og það eru 14 keppendur í liðinu, allt stelpur. En það er stefnan að stofna fleiri lið, við erum til dæmis búnar að stofna lið sem keppir á Eurocup í septem- ber en þar keppa fyrir okkar hönd ís- lenskar stelpur sem æfa og keppa er- lendis. Svo er hugmyndin að stofna fljótlega blandað lið sem getur þá keppt á móti öðrum blönduðum lið- um.“ Að lokum bendir Eyrún Þóra á að hægt sé að nálgast frekari upp- lýsingar á Facebook-síðunni Roller Derby Iceland og á heimasíðunni rollerderby.is. Byrjendanámskeið hefjast í september. n „Við erum til dæmis búnar að stofna lið sem keppir á Eurocup í september en þar keppa fyrir okkar hönd íslenskar stelpur sem æfa og keppa erlendis. Eyrún Þóra „Ég hef til dæmis verið að skipuleggja það að fá lið frá útlöndum til Íslands því við höfum enga til að keppa við.“ Þormar Vignir gunnarSSon Út fyrir kassann Kristín Tómasdóttir skrifar Við tökum upp söngvara, hljóðfæraleikara, hljómsveitir, hljóðbækur, og margt fleira Stúdíó NORN Síðumúla 17, 108 Reykjavík • Sími 561 7200 • studionorn.is • facebook.com/studionorn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.