Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Qupperneq 46
Helgarblað 19.–22. ágúst 201642 Fólk
Skautabani í
hjólaSkautaati
Eyrún Þóra stefnir að því að fá erlend lið til landsins
F
yrir fjórum árum fékk Eyrún
Þóra Guðmundsdóttir í hend-
ur kynningarefni um Hjóla-
skautaat (Roller derby) á
Íslandi. Hjólaskautaat er
jaðaríþrótt sem hefur á undanförn-
um áratugum verið að ryðja sér til
rúms úti í heimi. Eyrún Þóra ákvað
að slá til og mætti á æfingu ásamt
vinkonum sínum. Hún kolféll fyr-
ir sportinu og hefur stundað það af
kappi síðan.
Eyrún Þóra er 25 ára þjóðfræði-
nemi og starfar sem landvörður í
Skaftafelli í sumar. Áður en hún byrj-
aði í hjólaskautaati hafði hún ekki
æft íþróttir að ráði en hafði hug á að
byrja að stunda einhvers konar hreyf-
ingu. Hana grunaði þó ekki að jaðar-
íþróttagrein ætti eftir að leika stórt
hlutverk í lífi hennar né að hjóla-
skautaat yrði hennar helsta áhuga-
mál og ástríða.
„Fyrir fjórum árum fór ég í Hinseg-
in gönguna með vinkonum mínum.
Þar voru stelpur að dreifa kynningar-
efni um Roller derby á Íslandi og vin-
konur mínar urðu afar spenntar fyrir
þessu. Ég var meira að hugsa að mig
langaði til þess að fara að æfa eitt-
hvað og ákvað að slá til vegna þess að
vinkonur mínar voru svona áhuga-
samar. Í dag eru þær allar hættar og
ég er komin á fullt í þetta.“
Álit frá Árnastofnun
Hjólaskautaat er nýyrði yfir Roller
derby á íslensku. Hingað til hefur
félagsskapurinn kallað sig Roller
Derby Ísland en nú verður breyting
þar á.
„Já, það er gaman að segja frá því
að íþróttin er það ný hérlendis að
við vorum bara að taka upp þetta
nafn „hjólaskautaat“. Innganga í
ÍSÍ (Íþróttasamband Íslands) hefur
meðal annars strandað á því að ekki
var til íslenskt heiti yfir íþróttagrein-
ina. Við óskuðum þess vegna eftir
áliti frá Árnastofnun sem komst að
þeirri niðurstöðu að þetta væri besta
orðið. Nú heitir þetta ekki lengur
Roller Derby Iceland heldur hjóla-
skautaat.“
Lítið hefur borið á hjólaskautaati
eða keppnum því tengdu á Íslandi
og fáir sem kannski átta sig á því út
á hvað þetta gengur. Er hægt að segja
frá því í einföldu máli?
„Já, þetta er svokölluð jaðaríþrótt
þar sem leikmenn spila á hjólaskaut-
um. Hópíþrótt þar sem fimm skaut-
arar spila saman í einu og keppt er á
sporöskjulaga braut. Einn í liðinu er
kallaður „Jammer“ og svo eru fjórir
svokallaðir „Blokkerar“. Jammerinn
er með stóra stjörnu á hjálminum
og skorar stig fyrir liðið sitt með því
að hringa (innskot blaðamanns:
skauta einum hring meira en hin-
ir í brautinni) aðra skautara úr hinu
liðinu. Blokkerarnir mynda veggi á
brautinni til að koma í veg fyrir að
Jammerinn úr hinu liðinu nái að
komast að þeim og hringa þá. Svo
er þetta sýning sem gaman er að
fylgjast með því hver spilari á sitt
keppnis nafn og margir spila með
einkennismálningu í andliti. Áður
fyrr var keppt í kjólum, tjú tjúpilsum,
netasokkabuxum, hnéháum sokkum
og stuttum stuttbuxum. Undanfarin
ár hefur þetta verið að breytast í
íþróttamannslegri klæðnað og er
það liður í því að fá viðurkenningu á
sportinu.“
Stefnan að stofna fleiri lið
Eyrún Þóra segir menninguna í
kringum hjólaskautaatið einstaka og
sérlega skemmtilega. Þá koma liðs-
félagarnir að öllum hliðum er tengj-
ast sportinu sem framkallar mikla
ástríðu.
„Þetta er ólíkt öllum öðrum
íþróttum enda erum við að gera
allt sjálfar. Ég hef til dæmis verið að
skipuleggja það að fá lið frá útlönd-
um til Íslands því við höfum enga
til að keppa við. Sem betur fer er Ís-
land í tísku svo allir vilja koma hing-
að. Svo hefur þetta hingað til fyrst
og fremst verið kvennasport og að-
allega konur sem keppa í því. Það
er þó eitthvað að breytast og karlar
farnir að sýna þessu meiri áhuga.“
Eyrún Þóra talar af mikilli
innlifun og augljóst að áhuginn er
mikill. Hún hvetur alla forvitna til
þess að kynna sér byrjendanám-
skeið haustsins og kýla á þetta.
„Í dag æfum við í Kórnum í Kópa-
vogi tvisvar sinnum í viku og það eru
14 keppendur í liðinu, allt stelpur.
En það er stefnan að stofna fleiri lið,
við erum til dæmis búnar að stofna
lið sem keppir á Eurocup í septem-
ber en þar keppa fyrir okkar hönd ís-
lenskar stelpur sem æfa og keppa er-
lendis. Svo er hugmyndin að stofna
fljótlega blandað lið sem getur þá
keppt á móti öðrum blönduðum lið-
um.“
Að lokum bendir Eyrún Þóra á
að hægt sé að nálgast frekari upp-
lýsingar á Facebook-síðunni Roller
Derby Iceland og á heimasíðunni
rollerderby.is. Byrjendanámskeið
hefjast í september. n
„Við erum til
dæmis búnar að
stofna lið sem keppir
á Eurocup í september
en þar keppa fyrir okkar
hönd íslenskar stelpur
sem æfa og keppa
erlendis.
Eyrún Þóra „Ég hef til dæmis
verið að skipuleggja það að fá
lið frá útlöndum til Íslands því
við höfum enga til að keppa
við.“ Þormar Vignir gunnarSSon
Út fyrir
kassann
Kristín Tómasdóttir
skrifar
Við tökum upp söngvara,
hljóðfæraleikara, hljómsveitir,
hljóðbækur, og margt fleira
Stúdíó
NORN
Síðumúla 17, 108 Reykjavík • Sími 561 7200 • studionorn.is • facebook.com/studionorn